Samningar fela ekki í sér ríkisaðstoð - PCC getur byggt á Bakka

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) komst í dag að þeirri nið­ur­stöðu að samn­ingar Lands­virkj­unar og Lands­nets við PCC Bakki Silicon frá því í mars 2015 feli ekki í sér rík­is­að­stoð. Þetta kemur fram á vef EFFTA.

Þýska fyr­ir­tækið PCC áformar að byggja kís­il­verk­smiðju á Bakka við Húsavík. Hefur PCC skrifað undir samn­ing við Lands­virkjun um kaup á raf­orku og við Landsnet um flutn­ing á raf­orku. Ekkert er nú því til fyr­ir­stöðu að fram­kvæmdir geti haf­ist, og er búist við því að það ger­ist síðar á þessu ári, en loka­á­kvörðun PCC hefur þó ekki verið tekin enn.

ESA hefur lagt mat á umrædda samn­inga og kynnt sér arð­sem­is­út­reikn­inga sem Lands­virkjun og Landsnet lögðu til grund­vallar á þeim tíma sem samn­ing­arnir tóku gildi, að því er segir í til­kynn­ingu.

„Samkvæmt EES samn­ingnum er opin­berum fyr­ir­tækjum frjálst að sinna verk­efnum á almennum mark­aði ef þau gera það á sömu for­sendum og einka­fyr­ir­tæki, þannig að sam­keppni sé ekki raskað. Þegar það hefur verið stað­fest með hlut­lægum hætti er unnt að úti­loka rík­is­að­stoð. Þegar önnur sjón­ar­mið ráða för og samn­ingar opin­berra fyr­ir­tækja eru ekki í sam­ræmi við arð­sem­is­kröfur á sam­keppn­is­mark­aði felur það hins vegar í sér rík­is­að­stoð,” sagði Oda Helen Sletnes,“ for­seti ESA.

Þegar kannað er hvort samn­ingar séu gerðir á mark­aðs­kjörum er nauð­syn­legt að rýna í skil­mála hvers samn­ings fyrir sig. „Lands­virkjun lagði fram yfir­grips­mikil gögn sem að mati ESA sýna fram á að samn­ing­ur­inn um kaup á raf­orku er arð­samur og skil­málar hans eru slíkir að einka­rekið fyr­ir­tæki myndi sam­þykkja hann við sam­bæri­legar aðstæður,“ segir í til­kynn­ingu.

Landsnet hefur einnig sýnt fram á að fyr­ir­tækið gerir sam­bæri­legar kröfur og einka­rekið fyr­ir­tæki væri lík­legt til að gera við sam­bæri­legar aðstæður. PCC mun greiða gjöld sem ákvörðuð eru á grund­velli raf­orku­laga. Nánar til­tekið hafa útreikn­ingar á kerf­is­fram­lagi og nið­urspennu verið byggðir á gild­andi aðferða­fræði sem beitt er í öllum til­vikum gagn­vart stórnot­endum. PCC er því ekki und­an­þegið gjöldum sem það á með réttu að bera.

Samn­ing­arnir sem um ræðir voru und­ir­rit­aðir í mars á þessu ári í kjöl­far þess að ESA ákvað að hefja form­lega rann­sókn á samn­ingum um sama efni frá árinu 2014. Þar sem samn­ing­unum frá 2014 var rift áður en þeir tóku gildi verður ekki séð að það þjóni til­gangi að ljúka þeirri rann­sókn, segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár