Erlend flugfélög hafa ekki sýnt flugi til Akureyrar eða Egilsstaða neinn áhuga

Ekkert erlent flug­fé­lag hefur skoðað mögu­leik­ann á því að bjóða upp á flug til útlanda frá Akureyri eða Egils­stöðum frá því að Ryanair skoð­aði að fljúga þangað fyrir nokkrum árum síðan. Þetta kemur fram í frétt ferða­vefs­ins Túrista, sem leit­aði svara um málið hjá Isavia. Túristi hefur einnig verið í sam­bandi við tals­menn easyJet, Norwegian og þýsku flug­fé­lag­anna Air Berlin og Germanwings, sem hafa sagt að engin áform séu uppi um að hefja áætl­un­ar­flug til Akur­eyrar. Þau séu hins vegar alltaf að leita að nýjum tæki­færum.

Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt að skipa starfs­hóp til að kanna hvernig koma megi á reglu­legu milli­landa­flugi um flug­vell­ina á Akureyri og Egils­stöðum. Starfs­hóp­ur­inn á að greina fram­kvæmd­ar­atriði, kostnað, þátt­töku ein­stakra rík­is­stofn­ana/​fyr­ir­tækja, lands­hluta og fyr­ir­tækja í við­kom­andi lands­hluta og mark­aðs­setn­ingu. Hópurinn á að skila af sér til­lög­um í formi aðgerða- og kostn­að­ar­á­ætl­un­ar eftir þrjá mán­uði. Full­trúar frá ráðu­neytum, Íslands­stofu og Isavia sitja í hópnum. Stjórn­völd vilja stuðla að auk­inni dreif­ingu ferða­manna um landið með þessum til­lögum.

Fyrir nokkrum árum skoð­aði Ryanair að hefja áætl­un­ar­flug til Íslands, og þá meðal ann­ars til Akur­eyrar. Samkvæmt fréttum Túrista þótti aðflugið fyrir norðan hins vegar of erfitt.

Áætl­un­ar­flug verður í sumar frá Akureyri til aust­ur­strandar Græn­lands, og íslenskar ferða­skrif­stofur bjóða reglu­lega upp á beint flug frá Akur­eyr­ar­velli til útlanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár