Rúmlega 500 á leið í verkfall - alvarleg staða á Landspítalanum

Rúmlega 500 félags­menn í BHM munu byrja verk­falls­að­gerðir á morgun, en fram­kvæmda­stjóri rann­sókn­ar­sviðs Land­spít­al­ans, Óskar Sesar Reyk­dals­son, segir allt stefna í að áhrifin verði jafn­mikil og áhrifin af lækna­verk­fall­inu, jafn­vel meiri. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Dómur Félags­dóms um lög­mæti verk­fall­anna féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur síð­degis í dag, og voru boðuð verk­föll dæmd lög­mæt. Íslenska ríkið taldi boðun verk­fall­anna ólög­mæta, þar sem ein­ungis félags­menn á ein­stökum stofn­unum greiddu atkvæði um þau. Undir þetta tók Félags­dómur ekki.

Boðað verk­fall 135 ljós­mæðra á Land­spít­al­anum er því lög­mætt en þær hafa boðað verk­föll á þriðju­dögum, mið­viku­dögum og fimmtu­dögum frá og með morg­un­deg­inum. Þá er verk­fall 75 nátt­úru­fræð­inga á spít­al­anum, sem hefst á morgun, einnig lög­mætt. Þau verk­föll bæt­ast við verk­föll 108 geisla­fræð­inga og 215 líf­einda­fræð­inga sem leggja niður störf á morgun. Um 533 starfs­menn á Land­spít­al­anum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum leggja því niður störf á morgun, að því er fram kom í fréttum RÚV.

Lækna­verk­fall­inu lauk með því að stjórn­völd féllust á að hækka laun lækna um meira en 20 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár