Ein kona fyrir hverja níu karla í æðstu stöðum íslensks fjármálaheims

Karlar eru alls­ráð­andi í íslenskum fjár­mála­geira og konur sjald­séðar í æðstu stjórn­un­ar­stöðum. Í úttekt Kjarnans, sem náði til 87 æðstu stjórn­enda fyr­ir­tækja sem starfa í íslensku fjár­fest­inga- og fjár­mála­kerfi, kemur í ljós að ein­ungis sjö konur stýra þeim fyr­ir­tækjum en 80 karlar. Því eru níu pró­sent þeirra stjórn­enda sem stjórna pen­ing­unum í íslensku sam­fé­lagi konur en 91 pró­sent þeirra karlar.

Kjarninn taldi saman æðstu stjórn­endur við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra trygg­inga­fé­laga, orku­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja, rekstr­ar­fé­laga verð­bréfa- og fjár­fest­inga­sjóða, inn­láns­deilda, verð­bréfa­miðl­ara og Fram­taks­sjóðs Íslands. Nið­ur­staðan varð sú sem greint er frá hér að ofan.

Lög sem taka á kynjahlutfalli stjórna

Í sept­em­ber 2013 tóku gildi lög hér­lendis sem gerðu þær kröfur að hlut­fall hvors kyns í stjórnum fyr­ir­tækja með fleiri en 50 starfs­menn væri að minnsta kosti 40 pró­sent. Þetta leiddi til þess að ansi mörg fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóðir þurftu að ráð­ast í miklar breyt­ingar á sam­setn­ingu stjórna sinna, enda var hlut­fall kvenna í stjórnum sem féllu undir lög­gjöf­ina ein­ungis 20 pró­sent í árs­lok 2009.

Í árs­lok 2013, eftir að lögin tóku gildi, voru konur orðnar 31 pró­sent stjórn­ar­manna í þeim félögum sem þau náðu yfir. Einungis um helm­ingur fyr­ir­tækj­anna sem falla undir lögin upp­fylltu skil­yrðin á þessum tíma.

Ekki liggja fyrir sam­bæri­legar tölur um stöð­una í árs­lok 2014. Lögin ná hins vegar ein­ungis til stjórna fyr­ir­tækj­anna, ekki stjórn­enda. Í þeim leð­ur­stólum eru konur enn ákaf­lega fáséðar, sér­stak­lega þegar kemur að störfum sem fela í sér stýr­ingu á pen­ingum. Og pen­ingar láta jú heim­inn snú­ast.

Karlar eyðilögðu allt, en stýra samt áfram

Fyrir banka­hrun var íslenski pen­inga­geir­inn þétt­set­inn körlum. Karlar stýrðu öllum helstu bönk­unum, öllum helstu fjár­fest­inga­fé­lög­unum og öllum stærstu fyr­ir­tækj­unum. Og þessir karlar skil­uðu af sér íslensku fjár­mála­kerfi ónýtu og án nokk­urs trú­verð­ug­leika. Menn­ingin sem ein­kenndi óhófið sem fylgdi þessum stjórn­endum var einnig mjög karllæg.

Þrátt fyrir sex og hálft ár sé liðið frá hruni þá virð­ast ekki hafa orðið miklar breyt­ingar á því hvort kynið stýrir fjár­magn­inu. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, er enn eina konan sem stýrir við­skipta­banka. Hinir þrír, Lands­bank­inn, Arion banki og MP banki, eru allir með karl við stýrið. Lands­bank­inn er eini bank­inn sem er með jafn marga karla í fram­kvæmda­stjórn og konur, fjóra af hvoru kyni. Hjá Arion banka eru karl­arnir sjö en kon­urnar þrjár, hjá Íslands­banka karl­arnir fimm en kon­urnar fjórar og hjá MP banka eru karl­arnir sjö en ein­ungis ein kona.

Spari­sjóðum lands­ins stýra fimm karlar en ein kona. Sú heiti Anna Karen Arn­ar­dóttir og er spari­sjóðs­stjóri hjá Spari­sjóði Suður-Þing­ey­inga.

Karlar, karlar, karlar

Alls eru rekin tíu rekstr­ar­fé­lög verð­bréfa- og fjár­fest­inga­sjóða á Íslandi. Þau höndla með hund­ruð ef ekki þús­undir millj­arða króna. Þau heita nöfnum eins og t.d. Stefnir, Lands­bréf, Íslands­sjóðir, GAMMA og Júpíter. Og öllum tíu er stýrt af körlum.

Alls eru níu verð­bréfa­fyr­ir­tæki á Íslandi eft­ir­lits­skyld. Æðstu stjórn­endur þeirra allra eru karlar. Karlar stýra líka báðum eft­ir­lits­skyldu verð­bréfa­miðl­unum lands­ins og einu inn­láns­deild sam­vinnu­fé­lags (Hjá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga) sem starf­rækt er á land­inu.

Lána­fyr­ir­tækjum lands­ins, sem eru Borgun, Valitor, Lýsing, Straumur fjár­fest­inga­banki, Byggða­stofnun og Lána­sjóður sveita­fé­laga, er stýrt af fimm körlum og einni konu. Hún heitir Lilja Dóra Hall­dórs­dóttir og er for­stjóri Lýsingar.

[caption id="attachment_24751" align="alignnone" width="687"] Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, for­stjóri VÍS, er eina konan sem stýrir skráðu félagi á Íslandi í dag.[/caption]

Lífeyrissjóðunum að langmestu leyti stýrt af körlum

Íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir eru langstærstu fjár­festar lands­ins. Þeir eiga tæp­lega 2.700 millj­arða króna og þurfa að koma um 120 millj­örðum krónum í vinnu fyrir sig á ári. Til marks um stærð þeirra á íslenskum mark­aði þá er inn­lend verð­bréfa­eign þeirra metin á rúm­lega 1.900 millj­arða króna. Sjóð­irnir eiga, beint og óbeint, yfir helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í Kaup­höll­inni í dag.

Þeir eiga auk þess þorra skráðra útgef­inna skulda­bréfa á íslenska mark­að­inum. Tíu stærstu sjóð­irnir eru lang­um­svifa­mestir. Þeir eiga um 81 pró­sent af öllum eignum íslenska líf­eyr­is­kerf­is­ins. Allir stjórn­endur þeirra eru karlar og starfs­menn í eigna­stýr­ingu þeirra að lang­mestu leyti karlar. Alls eru æðstu stjórn­endur líf­eyr­is­sjóða 23. Tveir þeirra eru konur, þær Gerður Guð­jóns­dóttir, sem stýrir líf­eyr­is­sjóði starfs­manna sveit­ar­fé­laga, og Auður Finn­boga­dóttir, sem stýrir líf­eyr­is­sjóði verk­fræð­inga. Til við­bótar er Herdís Dröfn Fjeld­sted for­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands, sem er að stórum hluta í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna. Þórey S. Þórð­ar­dóttir er síðan fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, en þau fjár­festa auð­vitað ekki.

Tegund fyr­ir­tækja karlar konur
Við­skipta­bankar 3 1
Spari­sjóðir 5 1
Lána­fyr­ir­tæki 5 1
Verð­bréfa­fyr­ir­tæki 9 0
Verð­bréfa­miðl­anir 2 0
Rekstr­ar­fé­lög verð­bréfa- og fjár­fest­inga­sjóða 10 0
Eft­ir­lits­skyld inn­láns­deild sam­vinnu­fé­lags 1 0
Líf­eyr­is­sjóðir 21 2
Fram­taks­sjóður Íslands 0 1
Orku­fyr­ir­tæki 7 0
Skráð félög á mark­aði 12 1
Félög á leið á markað 3 0
Óskráð trygg­inga­fé­lög 2 0
80 7

Ein kona stýrir skráðu félagi

Þegar kemur að skráðum félögum á mark­aði er kynja­hlut­fallið ekk­ert mikið skárra en ann­ars­staðar. Raunar er ein­ungis ein koma æðsti stjórn­andi skráðs félags, Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, for­stjóri VÍS. Karl­arnir eru hins vegar tólf. Þrjú félög hafa til­kynnt um skrán­ingu á þessu ári: Reitir, Eik og Síminn. Þeim eru öllum stýrt af körlum.

Æðstu stjórn­endur skráðra félaga og félaga á leið á markað | Create infographics

Í stjórnum skráðra félaga sitja fimm konur sem stjórn­ar­for­menn en átta karlar. Af öllum stjórn­ar­mönnum eru 30 konur en 37 karlar. Í þeim þremur félögum sem eru á leið á markað sitja níu karlar í stjórn en sex konur.

Stjórn­ar­for­menn skráðra félaga | Create infographics

Stjórn­ar­menn í skráðum félögum | Create infographics

Og restin er...karlar

For­stjóri Kaup­hallar Íslands er karl. Seðla­banka­stjóri, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans eru allt karlar. For­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sem leiða sitj­andi rík­is­stjórn og ráða lang­mestu innan hennar, eru báðir karlar. Og allir for­stjórar orku­fyr­ir­tækja lands­ins; Lands­virkj­unar, Orku­veitu Reykja­víkur, ON, HS Orku, Orkubús Vest­fjarða, Lands­nets og Orku­söl­unnar eru líka allt karlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár