Bjarni Benediktsson: Meirihlutinn ræður

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt for­seta Alþingis og rík­is­stjórn­ina harð­lega vegna fram­göngu þeirra í ESB-mál­inu það sem af er þing­fundi á Alþingi í dag. Umræður hafa nú staðið í rúma klukku­stund, en umræða um stöðu Alþingis, yfir­lýs­ingu for­seta og umræðu um hana er ekki enn hafin.

Þingmenn gagn­rýndu í upp­hafi þing­fundar að Einar K. Guð­finns­son for­seti þings­ins hefði ekki orðið við beiðni þeirra um að kalla saman þing­fund strax á föstu­dag­inn. Að því loknu tóku við óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir þar sem hver ráð­herra sem var við­staddur fékk eina spurn­ingu um ESB-málið. For­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og umhverf­is­ráð­herra vörðu allir bréf utan­rík­is­ráð­herra til Evr­ópu­sam­bands­ins þess efnis að Ísland væri ekki lengur umsókn­ar­ríki um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Þá voru ráð­herrar spurðir um það hvort skiln­ingur þeirra á því að þings­á­lyktun sem sam­þykkt var á síð­asta þingi hefði ekki lengur gildi ætti þá ekki við um fleiri þings­á­lykt­anir. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, minnt­ist í því sam­hengi á þings­á­lyktun um hval­veiðar og um sjálf­stæði Palest­ínu, en fékk ekki svör.

Meirihlutinn ræður


Að loknum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum átti að hefj­ast umræða um stöðu Alþingis, yfir­lýs­ingu for­seta og umræðu um hana. Þegar þetta er skrifað hefur hún ekki enn haf­ist, en búið er að ræða fund­ar­stjórn for­seta á ný í rúman hálf­tíma.

„Það er auð­vitað mikið áhyggju­efni og alvar­leg staða þegar heil rík­is­stjórn verður upp­vís að því að skilja ekki stjórn­skipan lands­ins,“ sagði Róbert Marshall, þing­maður Bjartrar fram­tíðar. Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist vera Róberti ósam­mála. Rík­is­stjórnin skildi stjórn­skipan lands­ins en stæði bara algjör­lega á sama um hana.

„Meiri­hlut­inn ræður,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann svar­aði gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, lagði þá til að stjórn­ar­and­staðan færi bara heim, þar sem fjár­mála­ráð­herra hefði gert það ljóst að meiri­hlut­inn réði.

Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að það væri rétt hjá Bjarna að meiri­hlut­inn réði. Þess vegna ætti hann að standa við heið­skýr lof­orð sín og leyfa Íslend­ingum að kjósa um málið. „Það er meiri­hluti Íslend­inga sem ræður en ekki meiri­hluti ráð­herr­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár