Bréf Gunnars Braga um að afturköllun ESB-umsóknar birt í heild sinni

„Rík­is­stjórn Íslands hefur engin áform um að hefja aðild­ar­við­ræður að nýju. Enn fremur yfir­tekur þessi nýja stefna hvers kyns skuld­bind­ingar af hálfu fyrri rík­is­stjórnar í tengslum við aðild­ar­við­ræður.“ Þetta kemur fram í bréf­inu sem Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra afhenti Edgars Rinkevics, utan­rík­is­ráð­herra Lett­lands, sem fer með for­mennsku í Evr­ópu­sam­band­inu og sendi sam­tímis á Johannes Hahn,fram­kvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðild­ar­við­ræðna sam­bands­ins, í gær til að aft­ur­kalla aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB).

Þar segir einnig að það sé „bjarg­föst afstaða rík­is­stjórn­ar­innar að ekki skuli líta á Ísland sem umsókn­ar­ríki ESB og lítur hún svo á að rétt sé að ESB lagi verk­lag sitt að þessu“.

Bréfið hefur verið birt í íslenskri þýð­ingu á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Hægt er að lesa það í í íslenskri þýð­ingu heild sinni hér að neðan.

Bréf Gunnars Braga Sveinssonar


Latvian Presidency of the Council of the European Union

H.E. Edgars Rinkēvičs

Ministry of Foreign Affairs of the Republic of Latvia

K.Valde­māra iela 3, Rīga LV-1395

Latvia

Commissioner for European Neighbourhood Policy & Enlar­gement Negotiations

Hr. Johannes Hahn

European Commission

Rue de la Loi/ Wetstraat 200, 1049

Brussels Belgium

 


  1. mars 2015


Kæri Edgars, Kæri Hr. Hahn, fram­kvæmda­stjóri.

Rík­is­stjórn Íslands hefur frá því að hún tók við völdum árið 2013 fylgt nýrri og skýrri stefnu varð­andi aðild­ar­við­ræð­urnar við Evr­ópu­sam­bandið.

Þessi stefna var ítrekuð á fundi rík­is­stjórn­ar­innar 10. mars 2015 með sam­þykkt þessa bréfs þar sem fram koma frek­ari skýr­ingar.

Meg­in­þættir stefn­unnar voru, í fyrsta áfanga, að stöðva aðild­ar­við­ræð­urnar að fullu, leysa upp það skipu­lag sem sett hafði verið um við­ræð­urnar og hefja mat á aðild­ar­ferl­inu, sem og þróun mála innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Enn fremur ákvað rík­is­stjórnin að víkja frá allri þátt­töku í starfi sem bygg­ist á stöðu lands­ins sem umsókn­ar­ríkis enda er það í sam­ræmi við þá ákvörðun að stöðva aðild­ar­ferlið að fullu.

Á fundum for­sæt­is­ráð­herra Íslands með for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins og for­seta leið­toga­ráðs­ins í júlí 2013 var þessi nýja stefna útskýrð. Á þeim fundum kom skýrt fram að þessir tveir leið­togar stofn­ana ESB myndu fagna skýrri stefnu varð­andi aðild­ar­ferlið. Enn fremur fóru á síð­ari hluta árs 2013 fram víð­tæk sam­skipti milli Íslands og ESB í tengslum við IPA-verk­efnin.

Eftir það var gengið frá mati á umsókn­ar­ferli Íslands og málið rætt ítar­lega á Alþingi Íslend­inga. Fram­kvæmda­stjórnin hefur sagt upp samn­ingum um IPA-verk­efni.

Nýlega höfðu Ísland og ESB með sér sam­ráð um stöðu mála í aðild­ar­ferl­inu.

Með vísan til fram­an­greinds óskar rík­is­stjórn Íslands eftir því að skýra nánar fyr­ir­ætl­anir sínar.

Rík­is­stjórn Íslands hefur engin áform um að hefja aðild­ar­við­ræður að nýju. Enn fremur yfir­tekur þessi nýja stefna hvers kyns skuld­bind­ingar af hálfu fyrri rík­is­stjórnar í tengslum við aðild­ar­við­ræður.

Í ljósi fram­an­greinds er það bjarg­föst afstaða rík­is­stjórn­ar­innar að ekki skuli líta á Ísland sem umsókn­ar­ríki ESB og lítur hún svo á að rétt sé að ESB lagi verk­lag sitt að þessu.

Ítrekað er mik­il­vægi áfram­hald­andi náinna tengsla og sam­starfs milli ESB og Íslands sem byggj­ast einkum á EES-samn­ingnum. Rík­is­stjórnin ein­setur sér að við­halda nánum tengslum óháð hvers kyns þáttum tengdum aðild­ar­málum.

Enn fremur vill rík­is­stjórnin leggja áherslu á mik­il­vægi þess að við­halda ein­ingu og sam­starfi á erf­iðum tímum í sögu Evrópu þar sem reynir á grunn­þætti öryggis og efna­hags­legrar hag­sældar.

Virð­ing­ar­fyllst,

Gunnar B. Sveins­son

utan­rík­is­ráð­herra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár