Peningaþvættissérfræðingur DNB hætti í kyrrþey í bankanum

DNB skipti um yfir­mann eft­ir­lits gegn pen­inga­þvætti í kyrr­þey í haust. Norskir fjöl­miðlar tengja starfs­loks hans við Sam­herj­a­skjölin og aðkomu DNB að fjár­magns­flutn­ingum fyrir Samherja í gegnum bank­ann. DNB neitar hins vegar að starfs­lokin teng­ist Sam­herj­a­má­inu.

Peningaþvættissérfræðingur DNB hætti í kyrrþey í bankanum
Nýr pen­inga­þvætt­is­sér­fræð­ingur Nýr sér­fræð­ingur í bar­átt­unni gegn pen­inga­þvætti, Hege Hagen, hefur tekið við í DNB. Kjerstin Braathen er for­stjóri DNB en Cape Cod átti í við­skiptum við bank­ann áður en hún tók við starfi sínu í sumar.

Pen­inga­þvætt­is­sér­fræð­ingur DNB bank­ans, Roar Østby, sagði upp störfum í bank­anum í haust og er upp­sagn­ar­fresti hans að ljúka. Í norskum fjöl­miðlum eru starfs­lokin sett í sam­band við Sam­herj­a­málið. „Roar Østby sagði upp starfi sínu fyrr í àr og hættir því miður í DNB,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi DNB, Thomas Midteide. í sam­tali við Dagens Nær­ingsliv.  Hann hefur leitt vinnu DNB í gegn pen­inga­þvætti  og fjàr­mögnun hryðju­verka í mörg ár.

DNB NOR er stærsti bank­inn í Noregi og á norska ríkið rúm­lega 34 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu.

9,1 milljarðs millifærslur

Eins og greint var frá í sam­vinnu­verk­efni Stund­ar­innar Wikileaks, frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks í Rík­is­sjón­varp­inu og katör­sku sjón­varps­stöðv­ar­innar Al Jazeera á þriðju­dag­inn hætti DNB við­skiptum við félag tengdu Samherja í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í Kyrra­haf­inu í maí í fyrra.

DNB gerði þetta vegna þess að bank­inn taldi að óvissa væri um raun­veru­legt eign­ar­hald félags­ins og þar af leið­andi  væri uppi grunur um að það væri notað til að stunda pen­inga­þvætti. Þegar óvissa er um eign­ar­hald slíkra fyr­ir­tækja geta fjár­mála­fyr­ir­tæki metið það sem svo að hætta sé á að hægt sé að nota fyr­ir­tækin til að stunda pen­inga­þvætti og geta bankar þá ákveðið að loka á við­skipti sín við þau.

Samherji hafði neitað þetta félag, Cape Cod FS,  til að greiða laun sjó­manna sinna í Afríku allt frá árinu 2010. Samtals milli­færðu félög Samherja 9,1 millj­arð króna inn á reikn­inga Cape Cod FS á tíma­bil­inu og sama upp­hæð var milli­færð af reikn­ingum félags­ins á tíma­bil­inu. Milli­færsl­urnar út af reikn­ing­unum voru aðal­lega launa­greiðslur til Austur-Evr­ópu­búa eða „Rússa“ eins og Sam­herj­a­menn köll­uðu þá, sam­kvæmt banka­yf­ir­litum frá hinum ýmsu fyr­ir­tækjum Samherja. Um var að ræða fimm banka­reikn­inga sem DNB NOR lok­aði vegna hættu á pen­inga­þvætti.  

Sam­herj­a­málið hefur vakið mikla athygli í Noregi og er mikið um það fjallað í norskum miðlum. 

DNB gagnrýndur fyrir lélegt eftirlit

DNB NOR hefur verið í fréttum síð­ustu ár, líkt og nokkrir aðrir stórir bankar á Norð­ur­lönd­unum, fyrir að hafa ekki staðið sig í stykk­inu hvað varðar eft­ir­lit með pen­inga­þvætti. Breskur sér­fræð­ingur í pen­inga­þvætti, Gavin Neilsson, hefur sagt í við­tölum við sænska fjöl­miðla að Norð­ur­löndin séu á milli 5 og 10 árum á eftir Bret­landi og Banda­ríkj­unum þegar kemur að vörnum gegn pen­inga­þvætti. 

Norska fjár­mála­eft­ir­litið, Fin­an­stil­sy­net, hefur meðal ann­ars gagn­rýnt bank­ann fyrir að hafa ekki sinnt eft­ir­liti með við­skipta­vinum sínum út frá hættu á pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka nægi­lega vel.

Í bréfi til DNB NOR í fyrra sagði norska fjár­mála­eft­ir­litið hins vegar að svo virt­ist sem bank­inn væri að taka sig taki að þessu leyti. 

„Að Roar hætti hefur ekk­ert með Sam­herj­a­málið að gera.“

Neita tengslum við Samherjamálið

Uppp­lýs­inga­full­trúi DNB neitar því hins vegar að starfs­lokin hafi eitt­hvað með Sam­herj­a­málið að gera. „Að Roar hætti hefur ekk­ert með Sam­herj­a­málið að gera. Hann hefur sagt upp störfum sjálfur eftir að hafa unnið á þessu sviði í mörg ár,“ segir hann. 

Ljóst er hins vegar að DNB hafði upp­lýs­ingar um Sam­herj­a­málið þegar Roar Østby ákvað að hætta í bank­anum.  Þetta sýna gögn sem fyrir liggja í Sam­herj­a­skjöl­unum, meðal ann­ars gögnin þar sem ákveðið var að loka banka­reikn­ingum þess­ara félaga. 

Í frétt Dagens Nær­ingsliv um málið er fundið að því að DNB hafi ekki til­kynnt um starfs­lok Östbys eða þá stað­eynd að nýr yfir­maður hefði tekið við því að leiða vinnu bank­ans gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka með skömmum fyr­ir­vara. Bankinn segir að um 1000 milli­stjórn­endur séu í bank­anum og að ekki sé gert opin­bert sér­stak­lega þegar breyt­ingar verða á starfs­högum þeirra sem gegna þessum hlut­verkum. 

„Ikke under Samherji len­ger“

Ekki „lengur undir Samherja“

Í gögn­unum um starf­semi Samherja í Afríku kemur fram að norski bank­inn hafi talið félagið á Marshall-eyjum vera „undir Samherja“ á ein­hverjum tíma­punkti.

Í grein­ingu DNB NOR á félag­inu, sem gerð var áður en banka­reikn­ingum þess var lokað, kemur fram að félagið til­heyri Samherja ekki lengur og að í dag séu þrír ein­stak­lingar skráðir eig­endur sam­kvæmt starfs­manni hjá starfs­manna­leig­unni JPC Shipmana­gement á Kýpur sem útveg­aði Samherja starfs­menn á verk­miðju­tog­ara félags­ins í Afríku, meðal ann­ars Namibíu: „Ekki lengur undir Samherja.  3 ein­stak­lingar eru efstir í eig­enda­keðj­unni.“ (Ikke under Samherji len­ger. 3 pri­vat­per­soner på topp i eierstrukt­uren). 

Starfs­maður JPC Shipmana­gement sendi hins vegar aðeins stað­fest­ingu á eign­ar­haldi þess félags en ekki félags­ins á Marshall-eyjum. Starfs­mað­ur­inn  sagði að engin hluta­bréf, eða „bearer shares“ á ensku, væru gefin út fyrir félagið í skatta­skjól­inu en að eign­ar­hald félags­ins væri hið sama og á starfs­manna­leig­unni á Kýpur. 

Þetta var ekki nægi­lega grein­ar­gott svar að mati DNB NOR og kemur fram í grein­ingu bank­ans að það hafi í raun „enga vit­neskju“ um end­an­legt eign­ar­hald Cape Cod FS. Ljóst er hins vegar að það var Samherji sem not­aði og fjár­magn­aði þetta félag á Marshall-eyjum, meðal ann­ars með milli­færslum frá Kýpur og Namibíu. Því er ekki hægt að segja að JPC hafi verið eig­andi Cape Cod FS en það er hægt að full­yrða að það var Samherji sem not­aði Cape Cod. 

Á þessum for­sendum sagði DNB upp við­skiptum við þetta félag og lok­aði banka­reikn­ingum þess í maí 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár