Klezmer-partývél úr látúni

Hljóm­sveitin Látún safnar fyrir fram­leiðslu á fyrstu plötu sinni. Það er gert með hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund.

Hljóm­sveitin Látún skellti sér í Stúdíó Sýrland í sumar og tók upp tíu lög, þar af átta frum­samin. Til að klára fjár­mögnun á fram­leiðslu plöt­unnar ákvað bandið að hefja hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund.

Hljóm­sveitin Látún hefur verið starf­andi frá 2018 og telur sjö með­limi, sem eru Eiríkur Steph­en­sen sem spilar á bariton­sax, slag­verk og syngur bak­raddir, Fjalar Sig­urð­ar­son á túbu, Halldóra Geir­harðs­dóttir sem spilar á altosax og syngur bak­raddir, Hallur Ing­ólfs­son trymb­ill sem sér einnig um hróp og köll, Sólveig Morávek á ten­ór­sax og syngur bak­raddir, Sævar Garð­ars­son á trompet og Þorkell Harð­ar­son sem leikur á altó­sax og klar­ínett.

[adspot]Á plöt­unni, sem mun bæði koma út sem LP-vinyl­plata og geisla­diskur, er að finna tíu lög og þar af eru átta frum­samin. Auk frum­sömdu lag­anna má finna á plöt­unni Vegir liggja til allra átta eftir Sigfús Hall­dórs­son og Ave Eva eftir Megas en Magga Stína syngur síð­ar­nefnda lagið með hljóm­sveit­inni. Upp­töku­stjórn og eft­ir­vinnsla var í höndum Hafþórs Tempó Karls­sonar.

Sævar trompet­leik­ari Látúns segir að það hafi ansi fljótt orðið ljóst í hvað stefndi þegar hljóm­sveit­ar­með­limir fóru að mæta með frum­samin lög á æfingar. „Frá byrjun var eng­inn einn tón­list­ar­stíll undir en ein­hvern veg­inn var mest spilað af balkan-klezmer-fönk-salsa skotnum lögum og það varð að lokum stefna hljóm­sveit­ar­innar. Flest lag­anna eru því af hress­ustu gerð en þó eru tvö þarna inn á milli sem stíga ögn léttar til jarðar. Það mætti kalla þetta balkan-fönk, eða kannski klezmer-ska en inn á milli flétt­ast kar­ab­ískir tónar. Sumir hafa jafn­vel gengið svo langt að kalla sveit­ina Klezmer-partý­vél úr látúni. Það var nokkuð ljóst frá upp­hafi að þessi lög væru á leið­inni á plötu og með styrk frá Hljóð­rita­sjóði í vor var ráð­ist í upp­tökur í Stúdíó Sýrlandi.“

Sævar segir að það hafi ekki verið lagt upp með neitt sér­stakt þema í upp­hafi en þegar horft sé á plöt­una og hljóm­sveit­ina sjálfa þá sé aug­ljós­lega um að ræða eins­konar suðu­pott. „Suðupott af fólki úr mis­mun­andi áttum (tón­list­ar­fólk, leik­ari, tveir verk­fræð­ingar og kvik­mynda­fram­leið­andi) og suðu­pott úr tón­list­ar­stefnum og hug­myndum sem mynda þessa plötu. Suðu­pottur sem upp­haf­lega varð til milli félaga í Lúðra­sveit­inni Svan en síðan vorum við svo heppin að fá Hall og Dóru með í hóp­inn. Hljóð­færa­skip­anin er ansi sér­stök og það eitt og sér býr til ein­staka stemmn­ingu sem gaman er að hafa náð að fanga í upp­tökum og núna vænt­an­lega á plötu. Vonandi tekst okkur að fylgja plöt­unni eftir sem fyrst með tón­leikum en tím­inn verður að leiða í ljós hvenær það verður hægt, svona í ljósi heims­far­ald­urs­ins.

Það bregst ekki þegar Látún spilar á tón­leikum að við­staddir missi vald á fótum sínum og fara út á gólf að sprikla. Enda er þetta afskap­lega dansvæn tón­list, upp­full af takti og guð­dóm­legri innri spennu sem hefur þessi áhrif á þá sem á hlýða. Nú er málið að koma plöt­unni út og gera sig klár fyrir að heims­far­aldr­inum linni, svo hægt sé að hitt­ast, dansa og faðm­ast. Þá er gott að eiga sveit eins og Látún innan handar sem kemur blóð­inu til að ólga og fótum til að bera búk­inn á dans­gólfið.

Það má meira að segja for­kaupa Látún í partý á Karolina Fund síð­unni – það lof­orð verður reyndar ekki upp­fyllt fyrr en eftir að far­ald­ur­inn rénar og partý­hömlur verða teknar af okkur.“

Hægt er að skoða verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár