Mæla á fyrir tillögu um að Alþingi biðjist afsökunar á Landsdómsmálinu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem felur í sér að Geir H. Haarde, og þeir þrír ráð­herrar sem ekki var ákveðið að ákæra, verði beðin afsök­unar á Lands­dóms­mál­inu. Til stendur að mæla fyrir mál­inu í dag.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt dag­skrá Alþingis á Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, síðar í dag að mæla fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þrettán þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni. Tillagan hefur tví­vegis áður verið lögð fram án þess að hafa kom­ist á dag­skrá. Hún snýst um að þing­­menn­irnir vilja að Alþingi álykti að „rangt hafi verið að leggja til máls­höfðun á hendur ráð­herrum vegna póli­tískra aðgerða eða aðgerða­leysis, sbr. til­lögu til þings­á­lykt­unar á 138. lög­gjaf­ar­þingi[...], að rang­lega hafi verið staðið að atkvæða­greiðslu um til­lög­una og að rangt hafi verið að sam­þykkja hana.“

Auk þess vilja þing­menn­irnir að Alþingi álykti að þeir fyrr­ver­andi ráð­herrar sem upp­haf­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lagan beind­ist að, og sá ráð­herra sem höfðað var mál gegn, verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni „frá hlut­að­eig­andi aðilum.“

Til­lagan sem þing­menn­irnir 13 vilja að verði ályktað um snýst um höfðun saka­máls vegna refsi­verðrar hátt­semi í emb­ætt­is­færslur á hendur Geir H. Haarde, sem var for­sæt­is­ráð­herra Íslands í aðdrag­anda hruns­ins, Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur, sem var utan­rík­is­ráð­herra og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í rík­is­stjórn, Árna M. Mathiesen, sem var fjár­mála­ráð­herra, og Björg­vini G. Sig­urðs­syni, sem var við­skipta­ráð­herra. Tillaga um að höfða mál gegn Geir var sam­þykkt á sínum tíma með 33 atkvæðum gegn 30 í i sept­em­ber 2010. Tillaga um að höfða mál gegn hinum þremur var felld.

Auk Sig­mundar Davíðs eru þau Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þór­ar­ins­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Karl Gauti Hjalta­son, Ólafur Ísleifs­son, Sigurður Páll Jónsson, Þor­steinn Sæmunds­son, Óli Björn Kárason, Páll Magn­ús­son, Ásmundur Frið­riks­son og Brynjar Níelsson á til­lög­unni. Henni var útbýtt á Alþingi í núver­andi mynd 2. des­em­ber í fyrra.

Núverandi ráðherrar á meðal þeirra sem samþykktu ákæruna

Á meðal þeirra sem sam­­þykktu ákæruna á hendur Geir í þing­inu í sept­­em­ber 2010 voru nokkrir ráð­herrar sem nú sitja í rík­­is­­stjórn með Sjálf­­stæð­is­­flokkn­­um. Þeir eru Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra, Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir og Ásmundur Einar Daða­­son. Sigurður Ingi var raunar einn flutn­ings­manna þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar um máls­höfð­un­ina gegn ráð­herrum. Þau kaus Stein­grímur J. Sig­­fús­­son, for­­seti Alþing­is, einnig með ákærunni.

Rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í skýrslu sinni sem birt var í apríl 2010 að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­­­manna­­­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í sept­­­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ing­i­­­björgu Sól­­­rúnu Gísla­dóttur og Björg­vin G. Sig­­­urðs­­­son, fyrir Lands­­­dómi vegna þess­­­arar van­rækslu.

Þegar alþing­is­­­menn kusu um málið varð nið­­­ur­­­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var ákærð­­­ur. Nokkrir þing­­­menn Sam­­­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins en hlífa sínum flokks­­­mönn­­­um.

Lands­­­dóms­­­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­­­haf­­­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­­­með­­­­­ferð­ina til Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls Evr­­­ópu. Það mál tap­að­ist í nóv­­em­ber síð­­ast­liðn­­­um.

Skipu­lagt eftir flokkspóli­­tískum línum

Flutn­ings­­menn segja í grein­ar­gerð að nið­­ur­­staða Lands­­dóms hafi sýnt að ekki hafi verið til­­efni til ákæru, að ekki hefði verið gætt sam­ræmis við beit­ingu laga um Lands­­dóm þar sem lög­­unum hefur ekki verið beitt í öðrum til­­vikum er varða stjórn­­­mála­­legar ákvarð­­anir og aðgerðir sem stefnt hafa hags­munum rík­­is­ins í hættu.

Þá telja þeir að atkvæða­greiðsla um máls­höfðun hafi borið þess merki þess að nið­­ur­­staða um það hverja skyldi ákæra „hefði ann­að­hvort verið til­­vilj­ana­­kennd eða skipu­lögð eftir flokkspóli­­tískum lín­um“, og að lýð­ræð­is­­legu stjórn­­­ar­fari lands­ins standi ógn af því ef reynt sé að fá starf­andi eða fyrr­ver­andi stjórn­­­mála­­menn dæmda til fang­els­is­vistar vegna póli­­tískra aðgerða eða aðgerða­­leysis „án þess að um hafi verið að ræða ásetn­ing um brot“.

Ýmsar stjórn­­­mála­­legar stefnur og ákvarð­an­ir, eða aðgerða­­leysi, geti verið skað­­legar hags­munum rík­­is­ins án þess að ætl­­unin hafi verið að valda tjóni. „Slíkt álita­­mál beri að leiða til lykta í kosn­­ingum en ekki fyrir dóm­stól­­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár