Fylgi Vinstri grænna hefur aldrei mælst minna í könnun Gallup – 7,2 prósent styðja flokkinn

Píratar hafa næstum því tvö­faldað fylgi sitt frá síð­ustu kosn­ingum og Sam­fylk­ingin hefur aukið sitt fylgi um tæp­lega 40 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist undir kjör­fylgi en Framsókn siglir lygnan sjó.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, hefur aldrei mælst minna í könn­unum Gallup, sem ná aftur til maí­mán­aðar 2004. Í nýj­ustu mán­að­ar­legu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem fram­kvæmd var í júní­mán­uði, mæld­ist fylgið 7,2 pró­sent. Áður hafði það lægst farið í 7,4 pró­sent í febr­úar 2013, í sama mán­uði og Katrín tók við for­mennsku í flokknum af Stein­grími J. Sig­fús­syni sem hafði verið for­maður hans frá stofnun árið 1999. Í viku­legri könnun Gallup sem gerð var í apríl sama ár, í aðdrag­anda kosn­inga, mæld­ist fylgið líka 7,4 pró­sent.

Vinstri græn tapa tæpu pró­sentu­stigi milli mán­aða og hafa nú misst 5,4 pró­sent af fylgi frá kosn­ing­unum sem fram fóru í sept­em­ber í fyrra.

Þegar horft er aftur til kosn­ing­anna 2017, þegar Vinstri græn fengu 16,9 pró­sent atkvæða, hafa Vinstri græn tapað næstum tíu pró­sentu­stigum af fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir ágæt­lega við sig milli mán­aða og mælist með 22,8 pró­sent fylgi. Það er samt sem áður 1,6 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi og yrði versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi ef hún kæmi upp úr kjör­köss­unum.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig milli mánaða

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór í fyrsta sinn í sögu sinni undir 20 pró­sent fylgi í könnun Gallup í apr­íl­mán­uði, þegar fylgið mæld­ist 19,8 pró­sent. Fylgi hans var nán­ast á sama stað í lok maí­mán­aðar þegar 20,1 pró­sent segj­ast nú styðja flokk­inn.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með meira fylgi en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Það má þó litlu muna, fylgið nú er 17,5 pró­sent en var 17,3 pró­sent eftir kosn­ing­arnar.

Sam­an­lagt mælist fylgi stjórn­ar­flokk­anna því 47,5 pró­sent, sem er 6,8 pró­sentu­stigum minna en þeir fengu upp úr kjör­köss­unum í fyrra­haust.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina tekur hins vegar kipp upp á við milli mán­aða og mælist 49 pró­sent. Ekki var úr háum söðli að falla þar sem síð­asta stuðn­ings­mæl­ing, sem sýndi 44,3 pró­sent stuðn­ing, var sú versta sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur nokkru sinni mælst með.

Píratar tvöfaldast en Viðreisn undir kjörfylgi

Píratar bæta vel við sig milli mán­aða og njóta nú stuðn­ings 16,1 pró­sent kjós­enda. Enginn flokkur hefur bætt við sig meiru fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og Píratar, en þá fengu þeir 8,6 pró­sent atkvæða. Síðan þá hefur fylgið næstum því tvö­fald­ast.

Sam­fylk­ingin er líka að mæl­ast tölu­vert yfir kjör­fylgi með 13,7 pró­sent stuðn­ing, sem er 3,8 pró­sentu­stigum meira en sá flokkur fékk upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber 2021.

Sam­an­lagt hafa þessir tveir flokkar því bætt við sig 11,3 pró­sentu­stigum af fylgi á kjör­tíma­bil­inu.

Viðreisn tapar hins vegar tölu­verðu fylgi milli mán­aða og mælist nú með 6,7 pró­sent stuðn­ing, sem er 2,8 pró­sentu­stigum minna en í maí. Flokk­ur­inn er auk þess nokkuð undir 8,3 pró­sent kjör­fylgi sínu.

Flokkur fólks­ins mælist með sjö pró­sent stuðn­ing, sem er svipað og fyrir mán­uði, en undir kjör­fylgi.

Bæði Mið­flokk­ur­inn (4,6 pró­sent) og Sós­í­alista­flokkur Íslands (4,1 pró­sent) mæl­ast undir fimm pró­sent mark­inu og því ósenni­legt að þeir flokkar næðu inn manni ef kosið yrði í dag og nið­ur­staðan yrði í takti við könnun Gallup. Það vantar þó sára­lítið upp á flokk­arnir næðu inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár