Gamlir lykilmenn í FL Group í hópi sem hefur eignast meirihluta í félaginu

Fjögur félög, Trygg­inga­mið­stöðin og hol­lenskt félag hafa eign­ast meiri­hluta í Stoðum, áður FL Group. Innan hóps­ins eru stórir eig­endur í TM og fyrr­ver­andi lyk­il­menn í FL Group. Eina eign Stoða er hlutur í Refresco, sem hefur hækkað mikið í verði.

FL Group var umsvifamikið fjárfestingarfélag á árunum fyrir hrun. Það hét Flugleiðir fram á vorið 2005 þegar félaginu var breytt í fjárfestingafélag.
FL Group var umsvifa­mikið fjár­fest­ing­ar­fé­lag á árunum fyrir hrun. Það hét Flug­leiðir fram á vorið 2005 þegar félag­inu var breytt í fjár­fest­inga­fé­lag. Mynd: Úr safni

Á und­an­förnum mán­uðum hafa tvö félög, ELL 323 ehf. og S121 ehf., eign­ast meiri­hluta í Stoðum, sem áður hét FL Group. Stærsti selj­andi þeirra hluta sem félögin tvö hafa verið að kaupa var GlitnirHoldco, eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitnis, banka sem FL Group og tengdir aðilar voru með tögl og haldir í á loka­metrum íslenska góð­ær­is­ins fyrir hrun. Félagið sjálft átti 32 pró­sent hlut í Glitni. Banka sem lán­aði FL Group sam­stæð­unni tugi millj­arða króna sem leiddi svo til þess að kröfu­hafar bank­ans eign­uð­ust stærstan hluta í félag­inu eftir að það fór í gegnum nauða­samn­ing sum­arið 2009.

Félögin tvö sem hafa verið að kaupa hluti í félag­inu, sem nú heitir Stoðir, eiga nú ásamt hol­lenskum fjár­festi sem þau starfa með rúm­lega 52 pró­sent í Stoðum. Stærstu eig­endur ELL 323 og S121, sem bæði voru stofnuð á síð­ustu mán­uðum af lög­fræði­stofum, eru fjögur eign­ar­halds­fé­lög og Trygg­inga­fé­lagið Trygg­inga­mið­stöðin. Eign­ar­halds­fé­lögin heita Helg­ar­fell ehf., Esjuborg ehf, Einir ehf. og GGH ehf.

[links]

Og eig­endur þeirra, eða helstu stjórn­endur, eru að mestu leyti menn sem gegndu lyk­il­hlut­verkum í FL Group fyrir hrun.

Refresco eina eignin sem er eftir í Stoðum

Stoðum hefur gengið vel að selja eft­ir­stand­andi eignir sínar á und­an­förnum árum og greiða and­virði þeirra út til hlut­hafa sinna, Þ.e. fyrr­ver­andi kröfu­hafa sem breyttu kröfum sínum í hluta­bréf í Stoðum, Hagnaður félags­ins á tíma­bil­inu 2010-2016 nam 36 millj­örðum króna og alls hafa 57 millj­arðar króna verið greiddir út til fyrr­ver­andi kröfu­hafa Stoða. Þótt það hljómi sem gríð­ar­lega há upp­hæð þá nær hún ekki yfir nema hluta þess tjóns sem lán­veit­endur FL Group/Stoða urðu fyrir þegar félagið komst í greiðslu­þrot. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér snemma í apríl 2009, þegar það óskaði eftir heim­ild til að leita nauða­samn­inga við lán­ar­drottna, kom fram að skuldir væru áætl­aðar um 287 millj­arðar króna og að eignir þess væru áætl­aðar um 25-30 pró­sent af and­virði skulda. Því töp­uðu kröfu­hafar Stoða ævin­týra­legum fjár­hæðum á lán­veit­ingum til félags­ins.

[adspot]

Í Stoðum í dag er ein­ungis eftir ein eign, 8.87 pró­sent hlutur í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­ann Refresco. Mark­aðsvirði þess hlutar er um 15 millj­arðar króna. Og það mark­aðsvirði hefur hækkað mikið á und­an­förnum mán­uðum. Frá ára­mótum hefur það hækkað um 24 pró­sent, eða um þrjá millj­arða króna.

Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvenær hóp­ur­inn sem nú á meiri­hluta í Stoðum hóf upp­kaup sín á bréfum, hvað hann greiddi fyrir hlut­inn né hvernig þau kaup voru fjár­mögnuð.

Gamlir lykilleikmenn úr FL Group kaupa í Stoðum

Félögin fjögur sem eiga ELL 323 og S121 með Trygg­inga­mið­stöð­inni heita Helg­ar­fell ehf., Esjuborg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni.

Esjuborg er í 50 pró­sent eigu félags sem heitir Jökla­borg. Það er skráð í 100 pró­sent eigu Jóhanns Arnars Þór­ar­ins­sonar, for­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­ur­inn í Esjuborg er í eig Riverside Capital SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Samkvæmt Panama­skjöl­unum er það félag í end­an­legri eigu Fortown Corp, félags skráð á Möltu. Eigandi þess félags er Örvar Kærne­sted. Riverside Capital á líka 2,63 pró­sent hlut í Trygg­inga­mið­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capital ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar. Örvar var yfir starf­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­þingi í níu ár. Hann er nú umsvifa­mik­ill fjár­festir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins, se fór fram 21. apríl síð­ast­lið­inn.

Einar Örn Ólafsson er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar. Hann á 2,76 pró­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­ráðum í Stoðum. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­banka á árum áður. Hann var meðal ann­ars for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­ur­reistur eftir hrunið. Hann gerð­ist síðan for­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­anum vegna trún­að­ar­brests. Í kjöl­far ráðn­ingar Ein­ars lét Íslands­banki óháðan aðila rann­saka sölu bank­ans á ráð­andi hlut í Skelj­ungi, sem Einar hafði séð um, því bank­inn vildi ganga úr skugga um að eðli­lega hefði verið staðið að söl­unni. Þessi rann­sókn virð­ist ekki hafa leitt neitt óeðli­legt í ljós. Bank­inn greip að minnsta kosti ekki til neinna aðgerða gegn nýjum eig­endum Skelj­ungs né Ein­ari sjálf­um. Hann er í dag umsvifa­mik­ill fjár­festir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­stöð­inni, að und­an­skildum líf­eyr­is­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefnis, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6.34 pró­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­ustu mán­uðum.

Eigendur Helg­ar­fells eru Björg Fenger, Kristín Fenger Ver­munds­dóttir og Ari Fenger. Björg er eig­in­kona Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group/Stoða. Jón tók við sem stjórn­ar­for­maður Stoða á síð­asta aðal­fundi félags­ins fyrir tæpum mán­uði síðan.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í ELL 323 og S121 heitir GGH ehf. Eigendur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­lenska félags­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magnúsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magnúsar Ármann), og BNB Consulting (félag í eigu Bern­hards Boga­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra lög­fræð­is­sviðs FL Group) sem á eitt pró­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félags­ins.

Sam­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­lensk fjár­festis.

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórnir. Í S121 er Gunnar Sturlu­son lög­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­starfs­maður Hannesar Smára­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group, var lög­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­kvæmda­stjóri félaga í eigu Hannesar. Gunnar er líka í stjórn ELL 323. Þar situr hann ásamt Þor­steini M. Jónssyni, sem á árum áður var oft­ast kenndur við kók. Þor­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrunið, sat í stjórn félags­ins og tók við sem stjórn­ar­for­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­ráðum yfir bank­anum.

Veita ekki upplýsingar um söluverðið

Líkt og áður sagði er eina eft­ir­stand­andi eign Stoða 8,87 pró­sent hlutur í Refresco. Bæði Jón Sig­urðs­son og Þor­steinn M. Jónsson hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

Í apríl gerði félagið PAI Partners SAS, sem er fjár­fest­inga­fé­lag sem ein­blínir á Evr­ópu­mark­að, yfir­tökutil­boð í Refresco. Tilboðið var upp á 1,4 millj­arða evra. Samkvæmt því til­boði myndu Stoðir fá 14,4 millj­arða króna fyrir sinn hlut. Það er aðeins minna en skráð mark­aðsvirði Refresco en umtals­vert meira en þeir 12 millj­arðar króna sem hlut­ur­inn var met­inn á í árs­reikn­ingi Stoða fyrir árið 2016.

Til­boð­inu var hins vegar hafnað og Bloomberg greindi frá því í lok apríl að von væri á nýju yfir­tökutil­boði sem gæti hljóðað upp á 1,62 millj­arða evra. Það myndi þýða að hlutur Stoða væri met­inn á 16,7 millj­arða króna, eða tæp­lega 40 pró­sent meira en hann var bók­færður á í lok síð­asta árs.

GlitniHoldco hefur ekki viljað veita upp­lýs­ingar um hvert sölu­verðið var á 40,28 pró­sent hlut þess í Stoðum né hvenær hlut­ur­inn var nákvæm­lega seldur. Því er ekki hægt að slá neinu föstu um hver ávinn­ingur nýju eig­end­anna er af kaup­unum á meðan að svo er. En sé hann í takti við hækk­anir á bréfum Refresco á mark­aði, og það gengi sem rætt er um í nýju yfir­tökutil­boði, er ljóst að þeir munu hagn­ast um millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár