Jón, Iða Brá og Örvar í stjórn Stoða

Fjár­hags­staða Stoða hf. er traust þrátt fyrir mikið tap í fyrra. Eigið fé félags­ins nam tæp­lega 13 millj­örðum í árs­lok í fyrra.

Á aðal­fundi Stoða, sem áður hét FL Group og hefur farið í gegnum nauða­samn­ings­ferli, 21. apríl síð­ast­lið­inn, var árs­reikn­ingur félags­ins fyrir árið 2016 lagður fram og sam­þykktur af hlut­höfum, en í stjórn félags­ins voru kosin Jón Sig­urðs­son, Iða Brá Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Arion banka, og Örvar Kjærne­sted fjár­festir.

Jón var á árum áðum for­stjóri FL Group, sem var meðal ann­ars um tíma stór hlut­hafi í Glitni.

Í frétt Mark­að­ar­ins í dag segir að íslenskir fjár­festar ásamt trygg­inga­fé­lag­inu TM hafi fest kaup á ríf­lega fimm­tíu pró­senta hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu Stoðum, sem áður hét FL Group, af Glitni HoldCo og erlendum fjár­mála­stofn­unum.

Afkoma félags­ins í fyrra var nei­kvæð um 4,8 millj­arða króna. Eigið fé félags­ins í árs­lok, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, nam 12,9 millj­örðum króna. 

Heild­ar­eignir eru metnar á 13,3 millj­arða króna en Glitnir HoldCo var stærsti hlut­haf­inn um ára­mót, en eins og áður segir hafa nú íslenskir fjár­festar komið að félag­inu.



Helsta eign stoða er 8,8 pró­sent hlutur í drykkjvar­vöru­fram­leið­and­anum Refresco sem skráð er á markað í Hollandi. 

For­stjóri Stoða er Júlíus Þor­finns­son. 

Aðrir stórir hlut­hafar Stoða, um ára­mótin síð­ustu, voru meðal ann­ars Arion banki, sem á ríf­lega 16 pró­sent hlut, og Lands­bank­inn sem á ríf­lega 13 pró­sent hlut. Íslands­banki á óveru­legan­hlut, eða 1,71 pró­sent hlut. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár