Katrín og Bjarni hefja ekki formlegar viðræður

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar-græns fram­boðs, og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, munu ekki hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður.

Katrín greinir frá þessu í sam­tali við RÚV og segir að ekk­ert ákveðið að hafi orðið til þess­arar nið­ur­stöðu, það sé ein­fald­lega of langt á milli þess­ara tveggja flokka. Hún segir að staðan sé snúin og úti­lokar ekki að komið sé að þeim tíma­punkti að mynda breiða þjóð­stjórn.

Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa fundað um mögu­leik­ann á myndun rík­is­stjórnar und­an­farna daga. Flokk­arnir tveir hafa þó ekki meiri­hluta á þingi og þurftu því að minnsta kosti einn flokk til við­bótar til þess að geta myndað meiri­hluta­stjórn.

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag hafa Viðreisn, Björt fram­tíð, Sam­fylk­ingin og Píratar rætt saman óform­lega und­an­farna daga. 

Benedikt Jóhann­es­son for­maður Við­reisnar greindi frá því á X-inu í morgun. Hann segir flokk­ana fjóra hafa verið að reyna að finna út úr því hvað það var sem við­ræður flokk­anna og VG strönd­uðu á. Hug­myndir VG um kvóta­kerfið séu til að mynda lengst frá hug­myndum Við­reisn­ar.

Allir þessir fjórir flokkar virð­ist hins vegar vera á þeirri skoðun að ekki hafi verið full­reynt með sam­starf þeirra. Bene­dikt sagði Við­reisn, Bjarta fram­tíð, Sam­fylk­ing­una og Pírata því hafa verið að fara yfir sínar mál­efna­á­hersl­ur. Þau hafi kom­ist að því að mik­ill sam­hljómur sé á milli þeirra fjög­urra í mörgum mál­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár