Mynd: Nasdaq Iceland

Erlendu eigendur Arion banka selja sig niður en íslenskir lífeyrissjóðir kaupa sig upp

Á síð­ustu fjórum mán­uðum hafa vog­un­ar­sjóðir sem myndað hafa nokk­urs konar kjöl­festu í eign­ar­haldi Arion banka flestir minnkað stöðu sína í bank­anum umtals­vert. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa á sama tíma aukið eign sína um fjórð­ung.

Mikil breyt­ing hefur átt sér stað á hlut­hafa­hópi Arion banka á skömmum tíma. Frá því í lok sept­em­ber í fyrra, fyrir fjórum mán­uðum síðan, hafa tveir stærstu eig­endur bank­ans á und­an­förnum árum selt sam­tals 13,92 pró­sent hlut í honum. Um er að ræða vog­un­ar­sjóð­ina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Mark­aðsvirði þess hlutar sem þeir hafa selt, að mestu á allra síð­ustu vikum, er yfir 23 millj­arðar króna.

Sá síð­ar­nefndi, sem var lengi vel næst stærsti eig­andi Arion banka og átti 9,92 pró­sent hlut í haust, hefur lækkað hlut sinn í Arion banka niður í 2,94 pró­sent. Taconic, sem und­an­farin ár hefur verið langstærsti ein­staki hlut­hafi Arion banka, seldi í síð­ustu viku 6,94 pró­senta hlut á um 11,4 millj­arða króna. Við það fór eign­ar­hlutur sjóðs­ins úr 23,22 pró­sentum í 16,28 pró­sent.

Fleiri erlendir fjár­festar, sem komu inn í hlut­hafa­hóp Arion banka vegna þess að þeir voru kröfu­hafar í Kaup­þingi, hafa verið að lækka stöður sínar hratt. Þannig átti Goldman Sachs International 2,97 pró­sent hlut í bank­anum í lok sept­em­ber en er ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa hans, sem þýðir að eign­ar­hlutur sjóðs­ins er kom­inn fyrir neðan 1,09 pró­sent.

Sömu sögu er að segja af vog­un­ar­sjóð­unum Eaton Vance og Landsdowne partners. Sá fyrr­nefndi átti 2,6 pró­sent í Arion banka fyrir fjórum mán­uðum síðan en á nú 1,37 pró­sent. Hlutur hans hefur því nán­ast helm­ing­ast á skömmum tíma. Landsdowne átti 2,39 pró­sent hlut í Arion banka í lok sept­em­ber en er ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa bank­ans, og hefur því að minnsta kosti selt sig undir 1,09 pró­sent hlut.

Sam­an­lagt virð­ast erlendu eig­end­urnir í Arion banka því að hafa selt um fimmt­ung af eign sinni í bank­anum á nokkrum mán­uðum. Allir þessir eig­endur voru ráð­andi í þeim hópi fyrr­ver­andi kröfu­hafa Kaup­þings sem eign­að­ist stóran hlut í Arion banka í aðdrag­anda skrán­ingu hans á markað. Auk þeirra var breski sjóð­ur­inn Attestor Capital, á meðal ráð­andi hlut­hafa í Arion banka fyrir nokkrum árum, en hann seldi sig hratt niður í bank­anum árið 2019.

Lífeyrissjóðir bæta við sig

Í stað­inn fyrir þessa eig­endur hafa komið inn­lendir fag­fjár­festar. Þeir eru að mestu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Á síð­ustu fjórum mán­uðum hafa þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) bætt við sig sam­an­lagt 4,61 pró­sent hlut í Arion banka. Mark­aðsvirði þess hlutar í dag er um 7,7 millj­arðar króna.

Fleiri líf­eyr­is­sjóðir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Lífsverk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­ustu mán­uðum.

Sam­an­lagður eign­ar­hluti þeirra líf­eyr­is­sjóða sem birt­ast á lista yfir 20 stærstu eig­endur bank­ans var 22,42 pró­sent í byrjun síð­asta árs. Í lok sept­em­ber 2020 hafði hann auk­ist í 29,17 pró­sent og síð­ustu fjóra mán­uði hefur hann farið upp í 36,29 pró­sent. Á rúmu ári hefur hlutur sjóð­anna því stækkað um rúm­lega 60 pró­sent. Það þýðir að fjár­fest­ing þeirra átta líf­eyr­is­sjóða sem eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa í Arion banka er nú um 60 millj­arða króna virði.

Sjóðstýringarfyrirtæki og bankar stækka líka

Fyrir liggur þó að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa ekki keypt öll bréfin sem erlendu vog­un­ar­sjóð­irnir hafa verið að selja að und­an­förnu, að minnsta kosti með beinum hætti. Þorri þess sem út af stendur hefur verið keypt af sjóð- og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum banka eða ein­fald­lega í nafni ann­arra banka.

Sjóðir í stýr­ingu Stefnis, sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Arion banka, hafa aukið veru­lega við hlut sinn í móð­ur­bank­anum. Þeir áttu 1,7 pró­sent hlut í honum í sept­em­ber­lok en eiga nú 2,55 pró­sent. Sjóðir innan Kviku eigna­stýr­ingar hafa einnig bætt vel við sig. Þeir áttu 0,72 pró­sent hlut fyrir fjórum mán­uðum en fara nú með 2,55 pró­sent hlut. Vert er að taka fram að líf­eyr­is­sjóðir eru að jafn­aði á meðal stærstu fjár­festa í þeim sjóðum sem sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækin stýra. Þeir eiga því óbeint við­bót­ar­hlut í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini sín í þessum sjóðum.

Þá hafa eign­ar­hlutir sem skráðir eru í eigu hinna þriggja bank­anna á íslenska mark­aðnum líka auk­ist. Þar er í flestum til­vikum lík­leg­ast um að ræða fram­virka samn­inga sem þeir hafa gert við við­skipta­vini sína, en ekki við­skipti fyrir eigin bók.

Kvika er nú skráður með 1,68 pró­sent hlut í Arion banka, Íslands­banki með 1,44 pró­sent hlut og Lands­bank­inn með 1,09 pró­sent hlut.

Vandséð að selja Íslandsbanka án aðkomu lífeyrissjóða

Samkvæmt ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, verður ráð­ist í sölu á 25 til 35 pró­sent hlut í Íslands­banka í maí eða júní. Tillagan gengur út á að hver og einn kaup­andi megi í mesta lagi kaupa 2,5 til 3,0 pró­sent hlut. Virði þess hlutar sem stefnt er að því að selja í þessu kasti er allt að 65 millj­arðar króna miðað við eig­in­fjár­stöðu Íslands­banka, þótt enn eigi eftir að fram­kvæma verð­mat á bank­anum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið benti á í umsögn sinni um sölu­á­formin að vand­séð væri að selja hluti rík­is­ins í Íslands­banka án aðkomu líf­eyr­is­sjóð­anna nema að erlendir fjár­festir komi að borð­inu. Áhuga­samir slíkir eru hins vegar ekki sjá­an­legir eins og er og stjórn­völd búast ekki við áhuga að utan. Aðrir inn­lendir fjár­festar eru ein­fald­lega með bol­magn til að kaupa svo stóran hlut í bank­anum án þess að skuld­setja sig veru­lega.

Allskonar hagsmunaárekstrar

Í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sölu­á­formin var í fyrsta lagi bent á að sjóð­irnir væru þegar stórir eig­endur í bæði Arion banka og Kviku banka, þar sem líf­eyr­is­sjóðir á meðal 20 stærstu hlut­hafa eiga sam­tals tæp­lega 24 pró­sent hlut.

Í öðru lagi yrði að hafa í huga að líf­eyr­is­sjóð­irnir eigi í mörgum til­vikum hags­muna að gæta sem eig­endur helstu við­skipta­vina bank­anna, en leið­andi hlut­verk líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem vaxið hefur að umfangi um mörg þús­und millj­arða króna á fáum árum, í end­ur­reisn íslensks hluta­bréfa­mark­aðar eftir banka­hrunið hefur gert það að verkum að þeir eiga allt að helm­ing, beint og óbeint, allra hluta­bréfa í skráðum félög­um. Þar er oft um að ræða félög í sam­keppni við hvort ann­að, til dæmis í fjar­skipt­um, trygg­inga­starf­semi og fast­eigna­rekstri.

Í þriðja lagi lagi séu líf­eyr­is­sjóðir við­skipta­vinir bank­anna á ýmsum svið­um. Þeir taki því þátt í fjár­mögnun bank­anna, eru meðal ann­ars fjár­festar í verk­efnum banka og sjóða á þeirra vegum og þiggja marg­vís­lega ráð­gjöf frá bönk­un­um.

Síð­ast en ekki síst yrði að horfa til þess að líf­eyr­is­sjóð­irnir séu á sama tíma að nokkru leyti í sam­keppni við bank­ana á lána­mark­aði. „Líf­eyr­is­sjóð­irnir keppa við bank­ana á íbúða­lána­mark­aði en einnig veita þeir bönk­unum ákveðið aðhald á sviði fleiri teg­unda lána með því að fjár­festa í sjóðum sem stofn­aðir hafa verið til kaupa á skulda­bréfum fyr­ir­tækja. Eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóð­anna á bönk­unum virð­ist þannig geta haft til­tekna hags­muna­á­rekstra í för með sér fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár