Tæplega 60 manns hafa þegar komið til landsins á dvalarleyfi fyrir fjarvinnufólk

Samkvæmt nýjum tölum frá Útlend­inga­stofnun hafa 111 manns, þar af 105 Banda­ríkja­menn, sótt um dval­ar­leyfi fyrir fjar­vinnu­fólk. 59 manns hafa þegar komið til lands­ins á grund­velli þessa nýja mögu­leika.

Útlend­inga­stofnun hefur mót­tekið alls 111 umsóknir um vega­bréfs­á­rit­anir fyrir fólk utan EES sem vill koma til Íslands og vinna fyrir erlend fyr­ir­tæki til allt að sex mán­aða. Mögulegt hefur verið að sækja um slík dval­ar­leyfi frá því í októ­ber í fyrra.

Alls hafa 59 manns þegar komið til lands­ins og fengið dval­ar­leyfi, sem er nokkuð stökk frá því í febr­úar. Þá voru ein­ungis 10 manns búin að fá útgefin dval­ar­leyfi — en þau eru ekki form­lega gefin út fyrr en fólk kemur til lands­ins. Fyrst var sagt frá þessu á tækni- og nýsköp­un­ar­vefnum Northstack í morgun.[links]

Dval­ar­leyfin eru gefin út fyrir fólk sem kemur hingað til lands að vinna í fjar­vinnu, maka þeirra og börn. Fjar­vinnu­starfs­menn­irnir geta tekið fjöl­skyldur sínar með sér án þess að þurfa að færa lög­heim­ili sitt eða öðl­ast íslenska kenni­tölu.

Þessir fjar­vinnu­starfs­menn greiða því ekki tekju­skatt og eiga ekki rétt á neinni end­ur­gjalds­lausri þjón­ustu frá hinu opin­bera hér á landi. Komi börn á skóla­skyldu­aldri með í för þarf að sýna fram á að þau séu í fjar­námi að utan, fái heima­kennslu eða fá sam­þykki um að koma þeim að í skólum hér á landi.

105 af 111 umsóknum frá Bandaríkjunum

Banda­ríkja­menn eiga 105 af þeim 111 umsóknum sem hafa borist hingað til, sam­kvæmt tölum frá Útlend­inga­stofnun. Rætt var við einn fjar­vinn­andi Banda­ríkja­mann á Íslandi um fyr­ir­komu­lagið í umfjöllun New York Times um fjar­vinnu og skatta­mál í síð­ustu viku.

Sá sagði nokkuð dýrt að búa á Íslandi, en sömu­leiðis að hann sæi ekki eftir því að hafa komið til lands­ins ásamt eig­in­konu sinni í jan­úar síð­ast­liðnum. Hann myndi gera þetta aftur.

Af þeim 111 umsóknum sem hafa borist hafa 104 þegar verið sam­þykktar, sem þýðir að lík­lega er von á að minnsta kosti 45 manns til við­bótar við þau 59 sem hafa þegar komið til lands­ins á grund­velli þess­arar nýju teg­undar dval­ar­leyfis.

[adspot]

Fólk þarf að vera tölu­vert tekju­hátt til þess að eiga kost á því að sækja um dval­ar­leyfi í fjar­vinnu, en þeir útlend­ingar sem sækja um lang­tíma­vega­bréfs­á­ritun til að stunda hér fjar­vinnu þurfa að vera með erlendar tekjur sem sam­svara að minnsta kosti einni milljón króna á mán­uði.

Ef maki við­kom­andi er með í för þá þarf fjar­vinnu­starfs­maður að sýna fram á tekjur upp á að minnsta kosti 1,3 millj­ónir króna á mán­uði.

Fólk þarf að sýna fram á ráðn­ing­ar­sam­band eða verk­efna­samn­inga, starfi það sjálf­stætt. Einnig þarf fólk að sýna fram á að það hafi ýmist íslenskar eða erlendar sjúkra­trygg­ingar allan þann tíma sem það ætlar að dvelja á Íslandi.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra átti frum­kvæði að því að koma þessu úrræði á kopp­inn, en hún ásamt Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra stóð að reglu­gerð­ar­breyt­ingum sem gerðu þessa útfærslu dval­ar­leyfis mögu­lega, síð­asta haust.

Hún hefur boðað að unnið sé að því að „stíga enn stærri skref“ hvað varðar fjar­vinnu erlendra sér­fræð­inga frá Íslandi, svo hægt verði að bjóða þeim að starfa héðan um lengri tíma en þá sex mán­uði sem heim­ild er fyrir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár