Bandaríkin íhuga nýja tolla á kínverskar vörur

Banda­ríkja­stjórn íhugar að stór­auka tolla­lagn­ingu á kín­verskan inn­flutn­ing til að ýta þar­lendum stjórn­völdum að samn­inga­borð­inu í við­skipta­stríði land­anna tveggja.

Viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og Kína harðnar með frekari tollalagningu.
Við­skipta­stríð milli Banda­ríkj­anna og Kína harðnar með frek­ari tolla­lagn­ingu. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hefur opin­berað áætl­anir sínar um 25 pró­senta toll á kín­verskar inn­flutn­ings­vörur að and­virði 200 millj­arða Banda­ríkja­dala. Forseti Banda­ríkj­anna hafði áður hótað tolla­lagn­ingu á umræddum vörum, en sagði þær myndu aðeins ná tíu pró­sentum. Þetta er haft eftir tveimur heim­ild­ar­mönnum frétta­síð­unnar Bloomberg.

Samkvæmt frétt­inni standa yfir einka­fundir milli Steven Mnuchin fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna og aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herrra Kína, Liu He, þar sem báðir aðilar leita að leiðum til að hefja samn­inga­við­ræður milli land­anna beggja í yfir­stand­andi við­skipta­stríði.

Banda­ríkin settu á 25 pró­senta tolla á 34 millj­arða virði af kín­verskum inn­flutn­ingi í byrjun júlí­mán­aðar og búist er við frek­ari tolla­lagn­ingu á 16 millj­arða inn­flutn­ingi í dag. Banda­ríkja­for­seti Donald Trump hefur einnig nýlega hótað 10 pró­senta tollum á 200 millj­arða Banda­ríkja­dala virði af kín­verskum vörum, nái löndin ekki að semja sín á milli.

Samkvæmt miðlum Bloomberg á Trump hins vegar að hafa skipað við­skipta­full­trúa Banda­ríkj­anna Robert Lightizer að hækka 10 pró­senta tolla­markið sitt á 200 millj­arða dala inn­flutn­ing­inn í 25 pró­sent. Miðlar frétta­veit­unnar sögðu hins vegar breyt­ing­arnar á áhersl­urnar ekki hafa enn náð í gegn, en mögu­lega yrði hætt við þær ef þær sæta mik­illi opin­berri gagn­rýni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár