Sigurður Skúli Bergsson settur tollstjóri

Bjarni Bene­dikts­son hefur sett Sigurð Skúla Bergsson tíma­bundið í emb­ætti toll­stjóra.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sett Sigurð Skúla Bergsson, aðstoð­ar­toll­stjóra, tíma­bundið í emb­ætti toll­stjóra frá 1. októ­ber næst­kom­andi, þar til skipað hefur verið í stöð­una.

Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Sigurður Skúli lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 1984 og B.Sc. gráðu í rekstr­ar­hag­fræði frá Hand­els­hjøskole Syd. í Danmörku árið 1990. Hann kom til starfa hjá emb­ætti toll­stjóra árið 1998 og hefur gegnt emb­ætti aðstoð­ar­toll­stjóra frá 2006. Snorri Olsen, sem gegnt hefur emb­ætti toll­stjóra frá 1997 tekur 1. októ­ber við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár