Tíu flugvellir í göngufjarlægð frá miðborginni

Þegar ferð­ast er milli flug­valla og mið­borgar er ekki gert ráð fyrir að hægt sé að ganga. Slíkt mundi taka of langan tíma fyrir lúna ferða­langa. Í Reykja­vík er gangan hins vegar innan við hálf­tími.

Reykjavíkurflugvöllur er miðstöðu innanlandsflugs á Íslandi. Þar lenda einnig margar einkaþotur erlendra einstaklinga og fyrirtækja.
Reykja­vík­ur­flug­völlur er mið­stöðu inn­an­lands­flugs á Íslandi. Þar lenda einnig margar einka­þotur erlendra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­tíð­ar­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ekki ráð fyrir flug­velli í göngu­fjar­lægð frá mið­borg­inni. Þar sem flug­völl­ur­inn stendur nú í Vatns­mýr­inni á að rísa blönduð byggð íbúða, þjón­ustu og skrif­stofu­bygg­inga.

[links]Fyrsta skrefið í brott­hvarfi Reykja­vík­ur­flug­vallar hefur þegar verið tekið með lokun norð­austur-suð­vestur flug­braut­ar­innar – sem í umræð­unni um flug­völl­inn hefur fengið nafnið neyð­ar­brautin. Tvær flug­brautir standa eftir, eins og íbúar og gestir mið­borg­ar­innar, eru oft minntir á enda er aðflug að norður-suður flug­braut­inni yfir mið­bænum í norðri.

Þegar far­þegar hafa gengið frá borði má jafnan gera ráð fyrir að far­þeg­arnir panti sér leigu­bíl eða velji sér vél­knú­inn ferða­máta til þess að kom­ast á leið­ar­enda. Það er hins vegar ekki nauð­syn­legt í Reykja­vík enda er Lækj­ar­torg aðeins í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá flug­stöð­inni í Vatns­mýri. Slíka göngu setja fáar hraustar mann­eskjur fyrir sig.

Und­an­farna daga hafa verið fluttar fréttir af því að breska flug­fé­lagið British Airways hygg­ist hefja beint flug milli Kefla­víkur og London City-flug­vall­ar­ins austan við London.

[adspot]

Jafnvel þó London City sé stað­settur innan borg­ar­marka London er hann fjarri því að vera nærri mið­borg­inni. Það eru tæpir 14 kíló­metrar þar á milli. Þar er jafn­framt aðeins ein flug­braut, en ekki tvær eins og í Reykja­vík, auk þess að ríkar kröfur eru gerðar um aðflug að vell­inum svo tak­marka megi hljóð­mengun frá flug­vélum í aðflugi.

Tíu flugvellir í göngufjarlægð

Hér að neðan eru 10 flug­vellir innan borg­ar­marka og áætluð göngu­fjar­lægð frá þeim í miðbæ borg­anna. Listinn er að miklu leyti byggður á sam­an­tekt breska dag­blaðs­ins The Tel­egraph. Við byrjum á Reykja­vík.

Reykjavíkurflugvöllur

  • Fjarlægð frá mið­borg: 2,1 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 26 mín.

London City

  • Fjarlægð frá mið­borg: 13,9 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 2 klst. og 54 mín.

Rio de Janeiro Santos Dumont

  • Fjarlægð frá mið­borg: 2,0 km.
  • Áætlaður göngu­tími 27 mín.

Alþjóðaflugvöllurinn í Gíbraltar

  • Fjarlægð frá mið­borg: 2,1 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 27 mín.

Alþjóðaflugvöllurinn í Pisa

  • Fjarlægð frá mið­borg: 4,3 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 54 mín.

Boston Logan

  • Fjarlægð frá mið­borg: 5,0 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 55 mín. (með ferju­sigl­ingu)

Belfast George Best

  • Fjarlægð frá mið­borg: 4,6 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 56 mín.

Tallinn

  • Fjarlægð frá mið­borg: 6,1 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 1 klst. og 18 mín.

Lisbon Portela

  • Fjarlægð frá mið­borg: 7,9 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 1 klst. og 37 mín.

Nice Cote d'Azur

  • Fjarlægð frá mið­borg: 6,9 km.
  • Áætlaður göngu­tími: 1 klst. og 24 mín.

*Göngu­tími er áætl­aður miðað við nið­ur­stöður úr Google Maps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár