Alaba er gimsteinn Austurríkis

David Alaba er gim­steinn Aust­ur­ríkis. Mun hann ná sér á strik gegn Íslandi?

David Alaba er gim­steinn­inn í fót­bolt­anum í Aust­ur­ríki og hefur verið það síðan hann varð yngsti leik­mað­ur­inn til að spila fyrir lands­liðið. Hann var þá 17 ára og lék sinn fyrsta leik gegn Frökkum, 2009. Í tveimur fyrstu leikj­unum á EM, í 2-0 tapi gegn Ung­verjum og 0-0 jafn­tefli við Portúgal, hefur hann ekki náð sér á strik og verið langt frá sínu besta. En eng­inn ætti að efasta um hæfi­leik­ana.

Lengi á meðal þeirra bestu

Alaba hefur verið lyk­il­maður í liði FC Bayern og átt þar góðu gengi að fagna, svo ekki sé meira sagt. Hann hefur unnið alla titla sem í boði eru og sýnt hæfi­leika sína. Hann er fæddur 24. júní 1992, og verður því 24 ára eftir tvo daga. Hann kom í gegnum knatt­spyrnu­aka­demíu FC Bayern og þaðan inn í aðal­liðið, þar sem hann hóf leik sem vinstri bak­vörður, þrátt fyrir að leika meira sem miðju­maður í ung­linga­lið­unum. Hann hefur blómstrað í þeirri stöðu, í afar sterku liði FC Bayern.

Fjölhæfur og góður alhliða leikmaður

Hans helsti kostur er mikil fjöl­hæfni. Hjá Aust­ur­ríki hefur hann oftar en ekki leikið á miðj­unni, og verið prímus­mót­or­inn í spili liðs­ins. Þá er hann varn­ar­sinn­aður að upp­lagi og þykir afburða­snjall í því að leysa úr erf­iðum stöðum, á litlu svæði, og hefja sókn­irnar aft­ar­lega á vell­inum.

Á EM til þessa hefur þetta ekki gengið nægi­lega vel hjá honum, og aug­ljóst að and­stæð­ing­arnir hafa kort­lagt hann nokkuð vel, og lagt áherslu á að setja hann undir pressu um leið og bolt­inn berst til hans.

Liðsheildin besta vopnið

Þó Alaba sé kannski ekki álitin í allra fremstu röð í Evrópu, þá er hann ekki svo langt undan. Að vera reglu­legur byrj­un­ar­liðs­maður hjá FC Bayern frá því hann var 19 ára, er ekki lítið afrek. Þá hefur hann leikið 48 lands­leiki fyrir Aust­ur­ríki, og 30 ung­linga­lands­leiki. Það verður að telj­ast óvenju­lega mikið í ljósi þess hann er tæp­lega 24 ára gam­all. Hann er því leik­reyndur þrátt fyrir ungan aldur.

Það er eins með Alaba, og marga aðra góða leik­menn, að sam­staða í varn­ar­leiknum hjá liði and­stæð­ing­anna, er það sem skiptir máli. Það mun reyna á miðju­menn íslenska liðs­ins, að reyna að kæfa niður klókindin í Alaba, og auð­vitað fleiri góðum leik­mönnum. En eins og alltaf þegar íslenska liðið mætir til leiks, þá er lyk­ill­inn að árangri sam­staða í vörn og sókn frá aftasta manni til hins fremsta. Þannig getur Ísland unnið Alaba og félaga í Aust­ur­ríki á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár