Kennaraskortur yfirvofandi

Mikill fjöldi leik­skóla- og grunn­skóla­kenn­ara starfar ekki við kennslu og kenn­ara­nemum hefur fækkað svo mikið á und­an­förnum árum að kenn­ara­skortur er yfir­vof­andi. Aðeins þriðj­ungur þeirra sem vinna á leik­skólum eru mennt­aðir kenn­arar.

Minnk­andi aðsókn í kenn­ara­nám við bæði Háskóla Íslands og Háskól­ann á Akureyri er alvar­leg vís­bend­ing um yfir­vof­andi kenn­ara­skort hér á landi. Nú er svo komið að háskól­arnir ná ekki að braut­skrá nógu marga kenn­ara til að við­halda eðli­legri nýliðun í stétt­inni.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem segir einnig að stjórn­völd hafi ekki hugað nægi­lega vel að dvín­andi aðsókn í kenn­ara­nám og aðsteðj­andi hættu á kenn­ara­skorti.

Á tíma­bil­inu 2009 til 2016 fækk­aði nýnemum í kenn­ara­nám HÍ og HA úr 440 í 214, og í heild fækk­aði skráðum nem­endum við kenn­ara­deildir skól­anna úr 1.925 í 1.249. „Auk kenn­ara­skorts getur fækkun kenn­ara­nema haft í för með sér minni mögu­leika á sér­hæf­ingu í kenn­ara­námi og þar með eins­leit­ari menntun þeirra. Það getur aftur á móti leitt til minni gæða í skóla­starfi og haft slæm áhrif á náms­ár­angur barna og ung­linga,“ segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þar segir þó einnig að miðað við mark­mið mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytis í frum­varpi til fjár­laga í ár megi binda vonir við að gripipð verði til aðgerða til að bregð­ast við þessu vanda­máli.

Bara þriðjungur í leikskólum menntaður

Skortur á mennt­uðum kenn­urum er sér­stak­lega áber­andi í leik­skólum, og hefur verið um langt skeið, segir Rík­is­end­ur­skoðun. Um þriðj­ungur stöðu­gilda við kennslu, umönnun og upp­eldi barna í leik­skólum er nú skip­aður leik­skóla­kenn­urum, en sam­kvæmt lögum eiga það að vera að lág­marki tveir af hverjum þremur.

Bent er á það að í des­em­ber 2015 hafi 1.758 mennt­aðir leik­skóla­kenn­arar starfað í leik­skólum, en 2.992 leyf­is­bréf hafa verið gefin út til þeirra frá árinu 2009. Því er ljóst að fjöl­margir leik­skóla­kenn­arar starfa ekki við fagið. Þá er einnig talið að helm­ingur mennt­aðra grunn­skóla­kenn­ara sé við störf í grunn­skólum lands­ins. „Þessar síð­ast­nefndu tölur sýna að kenn­ara­skortur verður ekki ein­göngu leystur með fjölgun kenn­ara­nema. Mik­il­vægt er að laða mennt­aða kenn­ara, ekki síst hina yngri, til starfa við skól­ana og búa þannig um hnút­ana að þeir end­ist í starfi.“

Vís­bend­ingar eru um að leng­ing kenn­ara­náms­ins úr þremur árum í fimm hafi dregið úr aðsókn­inni í námið. Rík­is­end­ur­skoðun finnur að því að ekki sé búið að þróa opin­bera mæli­kvarða til að meta kostnað og skil­virkni háskóla­kennslu, þrátt fyrir hvatn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar þar um. Af opin­berum gögnum má þó ráða að árið 2015 hafi hver braut­skráður nem­andi með fimm ára kennslu­rétt­inda­nám að baki kostað rík­is­sjóð að lág­marki 4,3 millj­ónir króna. Hins vegar er staðan þannig að margir ljúka nám­inu á lengri tíma en fimm árum og nokkur hluti hættir námi, því var raun­kostn­aður mun meiri. „Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar er afar mik­il­vægt að auka skil­virkni kenn­ara­deild­anna með því að draga úr brott­hvarfi nem­enda og stuðla að auknum náms­hraða þeirra. Slíkt má þó ekki bitna á gæði náms­ins.“

Lág hlutfall brautskráist

Aðeins 55% grunn­nema í kenn­ara­námi við HÍ hélt áfram á annað ár náms­ins árin 2013 til 2015 en hlut­fallið var 65% hjá HA. Þetta snýst við þegar horft er til fram­halds­náms, þar sem 65% héldu áfram á annað ár í HA en 75% við HÍ. Árin 2012 til 2016 luku aðeins 49 pró­sent nem­enda kenn­ara­deildar HÍ grunn­námi í kennslu­fræðum á þremur árum, en 71 pró­sent nem­enda HA. 62% í HÍ luku fram­halds­námi á réttum tíma, tveimur árum, en 66% hjá HA. Háskól­inn á Akureyri telst því skil­virk­ari en Háskóli Íslands að þessu leyti.

Rík­is­end­ur­skoðun beindi því til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að marka skýra stefnu um efl­ingu kenn­ara­mennt­unar til að koma í veg fyrir aðsteðj­andi kenn­ara­skort í land­inu, og stuðla að auknum gæðum kennslu á öllum stigum. Þá verði skól­arnir að leit­ast við að fjölga nem­endum og auka skil­virkni í kenn­ara­nám­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár