„Einstakur atburður“ í sögu þjóðar

Leita þarf sjö þúsund ár aftur í tímann eftir sambærilegu eldgosi og því sem nú stendur yfir á Reykja­nesskaga. Kristín Jóns­dóttir eldfjalla- og jarð­skjálfta­fræðingur telur líklegt að gosið geti staðið um talsverða hríð en ólíklegt sé að það standi árum saman. „Dáleiðandi fegurð sem jafnast ekki á við neitt sem maður hefur séð,“ segir Andri Snær Magnason rithöfundur.

Mæðgurnar Ásta Þorleifsdóttir og Lilja Steinunn Jónsdóttir.
Mæðgurnar Ásta Þor­leifs­dóttir og Lilja Steinunn Jóns­dóttir. Mynd: Heida Helgadottir

Hraun­rennsli úr eldgosinu við Fagradals­fjall í Geldinga­dölum hefur verið jafnt og stöðugt frá því byrjaði að gjósa 19. mars síðastliðinn. Það gefur tilefni til að ætla að gosið geti staðið yfir um nokkuð langa hríð en þó er ekki líklegt að gosið muni standa árum saman. Hraun­rennslið er hins vegar fremur lítið, svo lítið að ekki þarf að draga mikið úr því til að gosrásin stíflist og gosinu ljúki þar með.

Eldgosið sem um ræðir er einstakur atburður að því marki að leita þarf aftur um sjö þúsund ár til að finna sambærilegt gos á Reykja­nesskaga, segir Kristín Jóns­dóttir, eldfjalla- og jarð­skjálfta­fræðingur og hópstjóri náttúruvár­vöktunar hjá Veður­stofu Íslands. „Gos á Reykjanesi var kannski komið á tíma ef við skoðum sjö, átta hundruð ár aftur í tímann en að það skyldi gerast akkúrat núna, á þessum tímum sem við lifum, er í raun einstakt. Þetta gos hefði alveg eins getað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið undanfarið ár