„Ég ætla að yfirgefa viðskiptaveldið mitt frábæra að fullu“

Donald Trump ætlar að halda blaða­manna­fund 15. des­em­ber til að útskýra hvernig hann ætlar að skilja að hags­muni við­skipta­veldis síns frá for­seta­emb­ætt­inu.

Donald Trump hefur haldið fundi með fólki sem hann hugsar sér að gera að ráðherrum eða embættismönnum í forsetatíð sinni. Fundirnir hafa allir farið fram í gullslegnum húsakynnum Trump í New York eða í skálum golfklúbba hans.
Donald Trump hefur haldið fundi með fólki sem hann hugsar sér að gera að ráð­herrum eða emb­ætt­is­mönnum í for­seta­tíð sinni. Fund­irnir hafa allir farið fram í gullslegnum húsa­kynnum Trump í New York eða í skálum golf­klúbba hans. Mynd: EPA

Auð­jöf­ur­inn Donald Trump, nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, ætlar að sleppa tak­inu af við­skipta­veldi sínu að fullu og kynna fyrir fjöl­miðlum hvernig hann ætlar að fara að því 15. des­em­ber næst­kom­andi. Þetta er haft eftir Trump í dag, meðal ann­ars á vef Reuters.

Trump hefur boðað til blaða­manna­fundar ásamt fjöl­skyldu sinni 15. des­em­ber þar sem hann kynnir áform sín um hvernig hann ætlar að skilja að við­skipta­hags­muni sína og hags­muni Banda­ríkj­anna.

„Ég ætla að halda rosa­legan frétta­fund í New York með börn­unum mínum 15. des­em­ber og ræða þá stað­reynd að ég ætla að yfir­gefa við­skipta­veldið mitt frá­bæra að fullu til þess að geta ein­beitt mér að því að stjórna land­inu svo Ameríka verði frá­bær að nýju,“ sagði Trump.

Hefð er fyrir því í Banda­ríkj­unum að nýkjörnir for­setar segi sig frá öllum fyr­ir­tækja­rekstri og setji hlut­lausa aðila yfir fyr­ir­tækin á meðan þeir gegna emb­ætt­inu. Það er hins vegar ekki laga­leg kvöð heldur óskrifuð regla.

Trump hefur áður sagt að hann sjái ekki hvernig hags­munir hans sem eig­andi stórra fyr­ir­tækja með hags­muni á alþjóða­vísu muni skar­ast við starf hans sem for­seti Banda­ríkj­anna.

Þegar vanga­veltur voru um hvað yrði um fyr­ir­tæki Trump í aðdrag­anda kosn­ing­anna var því lofað að börnin hans myndu taka við stjórn­ar­taumunum til þess að fría Donald Trump ábyrgð og hags­munum. Slíkt var harð­lega gagn­rýnt enda aug­ljóst að slíkt myndi ekki full­nægja hefð­inni.

„Þess vegna er verið að útbúa lög­form­leg skjöl sem skilja mig alger­lega frá við­skipta­rekstri. For­seta­emb­ættið er mun mik­il­væg­ara,“ sagði Trump einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár