Eitt myndrit: Fráviksárin

Stundum er sagt að ein mynd geti sagt meira en þús­und orð. Þetta mynd­rit segir mikið um lofts­lags­breyt­ingar í heim­inum.

Lofts­lags­mál verða sífellt meira áber­andi í dag­legri umræðu hér á Íslandi, í nágranna­ríkjum okkar og í alþjóða­sam­skiptum. Ástæða þess að lofts­lags­breyt­ing­arnar hafa fengið auk­inn hljóm­grunn á und­an­förnum árum er með­fylgj­andi mynd­rit.

Stofnað var til ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar árið 1992. Á árunum þar á undan hafði farið fram mikil og góð umræða um sjálf­bærni, hug­tak sem notað er yfir ferla eða ástand sem hægt er að við­halda í sama fari eins lengi og menn langar.

Ástæða umræð­unnar var alþjóð­leg skýrsla um sjálf­bærni frá 1987, „Okkar sam­eig­in­lega fram­tíð“ (e. Our Common Future), sem vana­lega er ein­fald­lega kölluð Brundtland-ský­slan í höf­uðið á Gro Harlem Brundtland, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs og rit­stjóra skýrsl­unnar. Skýrslan er einn af horn­steinum umræð­unnar um umhverf­is­vernd á hnatt­vísu.

Þá þegar höfðu vís­bend­ingar um lofts­lags­breyt­ingar komið fram og grunur óx um að breyt­ingar í nátt­úr­unni væru af manna­völdum. Nú þykir það ákaf­lega lík­legt að áhrif athafna manns­ins séu yfir­gnæf­andi ástæða þess að lofts­lags­breyt­ingar hafi orðið síðan um miðja síð­ustu öld.

Í drögum að skýrslu vís­inda­manna á launa­skrá banda­ríska rík­is­ins, sem lekið var til fjöl­miðla af ótta við að stjórn­völd vest­an­hafs myndu eiga við eða grafa skýrsl­una, birt­ist mynd­ritið sem sjá má hér að neðan. Mynd­ritið sýnir frá­vik með­al­hita á árs­grund­velli miðað við með­al­hita við­mið­un­ar­tíma­bils­ins 1901 til 1960. Sjá má að síð­ast­liðin 40 ár hefur mun­ur­inn aðeins verið í eina átt.

Stundum er sagt að ein mynd geti sagt meira en þús­und orð. Hægt er að færa rök fyrir því að myndin hér að neðan kom­ist mjög langt með að segja sögu lofts­lags­breyt­inga á jörð­inni.

Hér hefur ekki verið teygt á neinum ásum mynd­rits­ins og engum árum er sleppt. Stuðst er við raun­veru­leg gögn sem aflað hefur verið af vís­inda­mönnum og með vís­inda­legum aðferðum.

Síðan árið 1977 hefur hita­stig á árs­með­al­hiti á jörð­inni aldrei verið minni en með­al­hiti við­mið­un­ar­ár­anna 1901-1960. Síð­ast­liðin sex ár hefur frá­vikið frá með­al­hita við­miðs­ins verið meira með hverju árinu. Í efstu sætum list­ans yfir hlýj­ustu ár á skrá raða síð­ustu 16 ár 21. ald­ar­innar sér í efstu sætin, ef undan er skilið árið 1998.

Markmiðið er 2°c hlýnun

Í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem nær öll ríki heims hafa skuld­bundið sig til að standa við eru mark­mið alþjóða­sam­fé­lags­ins tíunduð; Það er að í lok ald­ar­innar hafi með­al­hiti á jörð­inni ekki orðið meiri en 2°c yfir með­al­hita­stigi jarðar fyrir iðn­bylt­ingu.

Nú þegar er með­al­hiti á jörð­inni orð­inn meiri en ein gráða og aug­ljóst að grípa þarf til rót­tækra aðgerða.

Jafnvel þó hlýnun um fáeinar gráður hljómi eins og smá­mál þá benda rann­sóknir vís­inda­manna til þess að hlýnun með­al­hita um brot úr gráðu geti haft gríð­ar­legar afleið­ingar fyrir nátt­úru jarðar. Búast má við tíð­ari ofsa­viðrum og breyt­ingum á veðr­áttu sem mun leiða til gríð­ar­legs fólks­flótta frá við­kvæm­ustu svæð­unum. Jökul- og hafís bráðnar hraðar sem mun leiða til hærra sjáv­ar­yf­ir­borðs og í kjöl­farið munu stafa hætta að manna­byggðum við sjó.

Svona mætti lengi telja áhrif lofts­lags­breyt­inga á sam­fé­lög og menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár