Níu lykilatriði úr loftslagskýrslunni sem var lekið

Banda­rískir vís­inda­menn láku lofts­lags­skýrslu vegna ótta um að stjórn­völd í Washington myndu breyta henni eða halda leyndri.

Ný drög að lofts­lagsút­tekt vís­inda­manna hjá banda­rískum alrík­is­stofn­unum sem send hefur verið for­seta­emb­ætt­inu í Washington fjallar um þær lofts­lags­breyt­ingar sem þegar hafa orðið í Banda­ríkj­unum.

Skýrslu­höf­und­arnir eru afdrátt­ar­lausir í þeirri full­yrð­ingu um að það sé ákaf­lega lík­legt að athafnir manna séu ástæða þess að áhrif lofts­lags­breyt­inga gæti nú þegar. Þessi full­yrð­ing er vit­an­leg and­stæð full­yrð­ingum og trú for­seta Banda­ríkj­anna, Donalds Trump, sem þegar hefur afnumið reglu­gerðir um aðgerðir í lofts­lags­málum og dregið stuðn­ing Banda­ríkj­anna við Par­ís­ar­sam­komu­lagið til baka.

[links]Þess vegna ákváðu skýrslu­höf­und­arnir að leka drögum af skýrsl­unni til fjöl­miðla eftir að sömu drög voru send til for­set­ans. Í frétt The New York Times segir að vís­inda­menn­irnir hafi verið hræddir um að stjórn Trumps myndi breyta skýrsl­unni eða halda henni leyndri.

Drögin að skýrsl­unni sem send var fjöl­miðlum má lesa í heild sinni á vefnum hér. (Athugið að skjalið er 63mb að stærð).

Viðbrögð stjórnar Trumps við lofts­lags­skýrsl­unni munu hafa mikil áhrif á stefnu og ákvarð­anir í lofts­lags­málum í Banda­ríkj­unum á næstu árum. Banda­ríkin eru í öðru sæti á eftir Kína yfir mest meng­andi ríki heims.

Jafnvel þó skýrslan fjalli aðeins um áhrif lofts­lags­breyt­inga í Banda­ríkj­unum sjálfum þá er hún áhuga­verð lesn­ing. Á vef banda­ríska dag­blaðs­ins The New York Times eru talin til níu lyk­il­at­riði úr skýrsl­unni. Þau má lesa í laus­legri þýð­ingu hér að neðan.

Það er heitt úti

Það hlýnar alls staðar í Banda­ríkj­unum, þá sér­stak­lega í vest­lægum ríkjum. Að jafn­aði hækk­aði árs­hita­stig um 1,2 gráður á Faren­heit (0,67 gráður á Celsíus) í Banda­ríkj­unum á seinni helm­ingi síð­ustu aldar. Hita­bylgjur og þurrkar hafa náð hámarki sums staðar í Banda­ríkj­unum, jafn­vel þó sand­storma­tíð fjórða ára­tugs­ins í Norður-Ameríku sé enn hlýjasta skeið í sögu Banda­ríkj­anna.

Meira votviðri við austurströndina

Jafnvel þó skýrslan geti ekki full­yrt um að sterkir felli­byljir verði tíð­ari, þá þykir ljóst að felli­byljir muni bera með sér meira vot­viðri en nokkru sinni og hafa meiri eyði­legg­ing­ar­mátt.

Slæmar fréttir fyrir Kaliforníu

Hlýnun mun að öllum lík­indum auka á minnkun snjó­lags í Kali­forníu sem er grunn­stoð í vatns­forða rík­is­ins. Ef útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður áfram mikið og ef ekki verður hag­rætt í rekstri vatns­bóla mun það valda langvar­andi vatns­skorti í fram­tíð­inni.

Þegar rignir, þá hellirignir

Nú þegar gætir áhrifa lofts­lags­breyt­inga í formi öfga­fyllri rign­inga í Banda­ríkj­unum. Þegar storm­viðri síð­ustu 30 ára eru borin saman við storma á árunum 1900 til 1960 kemur í ljós að úrkoma hefur auk­ist um allt að þriðj­ung. Mest er aukn­ingin í norð­aust­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna og minnst í vest­ustu ríkj­unum.

Sjávarföll hafa þegar valdið vandræðum

Vaxandi sjáv­ar­flóð eru þegar farin að valda flóðum í þétt­býli. Flóð í borgum – bæði á vestur- og aust­ur­strönd­inni – munu verða verri á næstu ára­tugum. Samkvæmt gögn­unum munu borgir jafn­vel verða fyrir flóðum á hverjum degi vegna sjáv­ar­falla, eins og til dæmis í Charleston í Suður-Karólínu. Lægstu stað­irnir í San Francisco eru einnig taldir vera í mik­illi og tíðri flóða­hættu.

Mismunandi áhrif hækkunar sjávarborðs

Stór svæði í Banda­ríkj­unum munu finna fyrir hækkun yfir­borðs sjávar. Gert er ráð fyrir að strand­lengjan við Mexík­óflóa og Norð­aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna muni verða verst úti, ekki síst vegna nátt­úr­legs land­brots. Sjáv­ar­straumar, selta sjávar og aðrir þættir hafa mikið um það að segja hversu mikið vanda­mál sjáv­ar­borðs­hækkun kann að verða.

El Niño er ekki eilífur

Veð­ur­fyr­ir­brigðið El Niño í Kyrra­haf­inu hafði mikið að segja um að hita­met á jörð­inni féllu árin 2015 og 2016. Þesslags veð­ur­fyr­ir­brigði hafa hins vegar tak­mörkuð áhrif á hnatt­ræna og stað­bundn­ari þróun lofts­lags yfir lengra tíma­bil. Heldur eru áhrifin skamm­vinn; Þau geta teygt sig yfir mán­uði og jafn­vel ár.

[adspot]

Maðurinn ber ábyrgð

Skýrslan skilur ekki eftir neinn efa um hver ábyrgð mann­kyns sé á hlýnun loft­lags á jörð­inni: „Það er ákaf­lega lík­legt að áhrif athafna manns­ins séu yfir­gnæf­andi ástæða þess að lofts­lags­breyt­ingar hafi orðið síðan um miðja síð­ustu öld.“ Engar aðrar sann­fær­andi útskýr­ingar geta skýrt nið­ur­stöður gagna­söfn­un­ar­innar.

Undirbúum óvæntar uppákomur

„Mann­kynið er að fram­kvæma for­dæma­lausa til­raun á hnatt­rænum kerfum með gríð­ar­miklum bruna á jarð­efna­elds­neyti og víð­tæku skóg­ar­námi,“ segir í skýrsl­unni. Jafnvel þó tölvu­líkön hafi orðið full­komn­ari með árunum þá geti ekk­ert líkan tekið til­lit til allra þeirra flóknu þátta sem knýja lofts­lag jarðar. Í skýrsl­unni er varað við þýð­ing­ar­miklum og óvæntum lofts­lagstengdum upp­á­komum í fram­tíð­inni. Þessar upp­á­komur geta verið margar ofsa­fengnar nátt­úru­ham­farir á sama tíma. Þeim mun meira sem við breytum lofts­lag­inu þeim mun lík­legri verða þessar óvæntu upp­á­komur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár