Staðfest: Köttur smitaði manneskju af COVID-19

Teymi vís­inda­manna seg­ist hafa stað­fest fyrsta smit af COVID-19 frá heim­il­is­k­etti í mann­eskju. Þeir eru undr­andi á að það hafi tekið svo langan tíma frá upp­hafi far­ald­urs­ins til sanna að slíkt smit geti átt sér stað.

Ekki yfirgefa kettina ykkar ef þeir veikjast, segir höfundur rannsóknarinnar. Hugsið enn betur um þá í veikindunum en gætið að sóttvörnum.
Ekki yfir­gefa kett­ina ykkar ef þeir veikj­ast, segir höf­undur rann­sókn­ar­innar. Hugsið enn betur um þá í veik­ind­unum en gætið að sótt­vörnum. Mynd: Pexels

Teymi taí­lenskra vís­inda­manna seg­ist hafa „skot­heldar“ sann­anir fyrir því að heim­il­is­köttur hafi smitað mann­eskju af SARS-CoV-2, veirunni sem veldur COVID-19. Þar með eru kettir komnir á lista yfir dýr sem geta borið smit í menn. Á þeim lista eru fyrir hamstrar, minkar og dádýr.

Frá þessu er greint í frétt á vef vís­inda­tíma­rits­ins Nature.

„Við höfum vitað af þessum mögu­leika í tvö ár,“ segir Angela Bosco-Lauth, sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum við við rík­is­há­skól­ann Colorado. Hún telur nið­ur­stöður taí­lensku kollega sinna sann­fær­andi. Það sem komi á óvart er hversu langan tíma það hafi tekið að fá það stað­fest að veiran geti borist frá köttum í fólk. Far­ald­ur­inn hafi jú verið gríð­ar­lega mik­ill.

[adspot]

Nature segir í frétt sinni að rann­sóknir sem gerðar voru fyrr í far­aldr­inum hafi sýnt fram á að kettir geti smit­ast af kór­ónu­veirunni og geti smitað aðra ketti af henni. En að sanna að þeir geti borið hana í menn var nokkuð flókið að sanna. Og það var í raun til­viljun að þessi smit­leið upp­götv­að­ist.

[links]Í ágúst voru feðgar sem greinst höfðu með veiruna í suð­ur­hluta Taílands settir í ein­angrun á háskóla­sjúkra­húsi. Sýni var einnig tekið úr heim­il­is­k­etti þeirra sem reynd­ist sýktur. Þegar verið var að taka sýnið úr kett­inum hnerraði hann í and­lit dýra­lækn­is­ins. Lækn­ir­inn var með grímu fyrir munni og nefi og með hanska á höndum en augu hans voru ekki varin.

Þremur dögum síðar fékk dýra­lækn­ir­inn hita, nef­rennsli og hósta og greind­ist í kjöl­farið með COVID-19. Gerð var ítar­leg smitrakn­ing en allt kom fyrir ekki: Enginn sem lækn­ir­inn hafði umgeng­ist var sýktur af veirunni. Þar með þótti lík­leg­ast að hann hefði smit­ast af kett­inum, útskýrir einn höf­unda rann­sókn­ar­innar, Sarunyou Chusri, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingur og læknir við Háskól­ann í Hat Yai á Taílandi. Rað­grein­ing leiddi svo í ljós að dýra­lækn­ir­inn var sýktur af nákvæm­lega sama afbrigði veirunnar og kött­ur­inn og eig­endur hans.

Vís­inda­menn segja að af þessu þurfi fólk þó ekki að hafa stórar áhyggjur. Líkurnar á því að smit­ast af sýktum köttum séu afar litlar. Sýnt hefur verið fram á að veiru­magn í sýktum köttum sé lítið og að þeir séu fljótir að losa sig við hana. Hins vegar, sé stað­fest að köttur sé sýktur af COVID-19 skuli, líkt og þegar um mann­fólk er að ræða, fara var­lega í umgengni við þá.

Chusri segir að fólk eigi þó alls ekki að yfir­gefa dýrin sín séu þau veik heldur auð­vitað að hugsa enn betur um þau. Það sé enn mann­fólk sem helsta smit­hættan stafi af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár