Magnús fær að flytja í einbýlishús á Kvíabryggju

Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, fær að flytja í ein­býl­is­húsið á Kvía­bryggju. Urgur er föngum vegna meintrar sér­með­ferðar. Fyrir í hús­inu er Hreiðar Már Sig­urðs­son.

Færður
Færður Magnús Guð­munds­son situr af sér fjög­urra og hálfs árs dóm vegna Al-Thani máls­ins. Mynd: Pressphotos

Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, flytur síðar í dag úr her­bergi sínu á gangi aðal­húss fang­els­is­ins á Kvía­bryggju yfir í ein­býl­is­hús þar sem þrír fangar dvelja að jafn­aði. 

Nokkur gremja er í föngum þess vegna, þar sem aðrir fangar hafi verið fyrri til að óska eftir að fara í húsið á undan honum. Magnús situr af sér fjög­urra og hálfs árs dóm vegna Al-Thani máls­ins.

Talsverð umbun felst í því að vera færður í gamla ein­býl­is­húsið, sem var áður heim­ili fang­els­is­stjóra. Lang­flestir fangar á Kvía­bryggju dvelja á gang­inum í aðal­bygg­ingu fang­els­is­ins. Á gang­inum er tals­vert minna næði en í hús­inu. Fangar í hús­inu þurfa ekki að skila far­síma og tölvu á kvöldin. Enn fremur hafa fangar sér eld­hús og stofu sem þýðir að þeir þurfa ekki að bíða eftir mat­máls­tíma og geta fengið sér að borða þegar þá lystir.

Líkt og fyrr segir er rými fyrir þrjá fanga í hús­inu og fyrir er þar Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, auk ann­ars fanga sem ekki er hægt að kenna við hvít­flibba. Að jafn­aði dvelja 23 fangar á Kvía­bryggju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár