Vilja að Ögmundur biðjist afsökunar á ummælum um konur

Fram­kvæmda­stjórn Ungra vinstri grænna, ung­liða­hreyf­ingar VG, vill að Ögmundur Jónasson, þing­maður flokks­ins, biðji VG og allar konur í stjórn­málum afsök­unar á ummælum sínum í Viku­lok­unum um helg­ina.

„Ég er nátt­úru­lega oft búinn að heyra þessa ræðu. Nú eru þær að lýsa sinni upp­lifun og ég efast ekki um að hún sé sönn en þó hef ég stundum á til­finn­ing­unni að konur séu að nýta sér svona tal sjálfum sér til fram­dráttar,“ sagði Ögmundur meðal ann­ars í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag­inn. Þessum orðum hans var harð­lega mót­mælt af bæði Björtu Ólafs­dóttur, þing­manni Bjartrar fram­tíðar, og Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þær höfðu báðar rætt um stöðu kvenna í stjórn­málum og að þeim þætti við­horfið til kvenna öðru­vísi en karla.

Ung vinstri græn segj­ast harma ummælin, og að þau telji það „óásætt­an­legt að þing­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs tali eins og hin versta mál­pípa feðra­veld­is­ins.“ VG sé hreyf­ing sem kenni sig við kven­rétt­indi og femín­isma og það sé því alveg ljóst að ummæli Ögmundar séu þvert á stefnu flokks­ins.

„Telur UVG því nauð­syn­legt að for­ysta flokks­ins geri almenn­ingi það ljóst að þessi ummæli séu þvert á stefnu flokks­ins, og reyni ekki að þegja þau af sér. Fram­kvæmda­stjórn UVG krefst þess að Ögmundur Jónasson biðji hreyf­ing­una afsök­unar á ummælum sínum sem og allar konur í stjórn­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár