Markaðsvirðið í hæstu hæðum

Virði stærstu tækni­fyr­ir­tækja heims hefur rokið upp að und­an­förnu. Einn þekkt­asti penni New York Times segir margt benda til þess að hluta­bréfa­mark­aðir séu yfir­verð­lag­iðir.

Óhætt er að segja að und­an­far­inn ára­tugur á alþjóða­mörk­uðum hafi verið ára­tugur ótrú­legs upp­gangs tækni­fyr­ir­tækja, sem hafa meðal ann­ars verið leið­andi í tækni og þróun snjall­síma­væð­ing­ar­innar.

85 sinnum Ísland

Stærsta fyr­ir­tækið af öllum er Apple, en gengi þess náði hæstu hæðum fyrr í vik­unni. Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er nú 815 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur meira en 85 þús­und millj­örðum króna. Það er meira en 85 sinnum meira en íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í heild sinni. Mark­aðsvirðið hefur þre­fald­ast frá því árið 2013.

Svipaðar sögur er hægt að segja af Amazon, Alphabet (Google) og Microsoft. Mark­aðsvirði þess síð­ar­nefnda er nú 561 millj­arður Banda­ríkja­dala, en það er þre­földun á lið­lega þremur árum.

Til að setja þessar tölur í sam­hengi, þá er mark­aðsvirði Goldman Sachs bank­ans 90,4 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúm­lega einum tíunda af mark­aðsvirði Apple.

Bóla?

Töluvert hefur verið fjallað um það í Banda­ríkj­unum að und­an­förnu, að miklar hækk­anir á hluta­bréfa­mörk­uðum - ekki síst hjá tækni­fyr­ir­tækjum - séu inni­stæðu­lausar, og stutt sé í að „loftið leki úr bólunni“. Hinn virti pistla­höf­undur New York Times, Ruchi Shamra, segir, í

pistli

sem birt­ist 5. ágúst síð­ast­lið­inn, margt benda til þess að alþjóða­mark­aðir séu nú „djúpt“ inn í yfir­verð­lagn­ing­ar­um­hverfi. Og eins og ávallt þegar bólur eru ann­ars vegar, þá tekur eng­inn eftir þeim fyrr en þær eru sprungnar. Hann spyr að því í pistli sínum hvenær bólan muni springa. En að sama skapi bendir hann á, að þrátt fyrir allt þá hafi tækni­fyr­ir­tækin sýnt góðan rekstur.

Allt stútfullt af peningum

Önnur hlið er þó á ten­ingnum, sem margir hafa líka rætt um. Hún snýr að digrum sjóðum tækni­fyr­ir­tækj­anna. Þannig á Apple nú um 250 millj­arða Banda­ríkja­dala í lausu fé frá rekstri og sjóð­irnir eru einnig digrir hjá hinum stóru fyr­ir­tækj­unum. Microsoft er með sjóði upp á 150 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Fyr­ir­tækin þurfa ekki stofna til skulda en gera það stundum, þar sem vaxta­kjörin sem bjóð­ast þeim eru ígildi þess að fá pen­ing­ana gef­ins. Með öðrum orðum; þessi fyr­ir­tæki eru til alls vís þegar kemur að því að feta inn á nýja mark­aði, leiða fram nýja þróun sem erfitt er að sjá fyrir og halda vel á spöð­unum í núver­andi umhverfi.

Það er vissu­lega hægt að tala um bólur, en það er samt ótrú­legt að hugsa til þess að þrátt fyrir Apple sé metið á 815 millj­arða Banda­ríkja­dala, þá er það minna en fjórum sinnum meira en laust fé fyr­ir­tæk­is­ins frá rekstri. Í því sam­hengi er verð­mið­inn kannski ekki svo hár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár