Jafnrétti kynjanna mest á Íslandi tíunda árið í röð

Jöfnuður á milli kynj­anna mælist mestur á Íslandi á heims­vísu tíunda árið í röð sam­kvæmt skýrslu Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins. For­sæt­is­ráð­herra segir árang­ur­inn spegla það mikla starf sem unnið hefur verið á Íslandi í þágu jafn­réttis en að enn sé verk að vinna.

Kvennafrí 2018
Kvenna­frí 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Tíunda árið í röð trónar Ísland á toppi lista Alþjóðaefnhagsráðsins yfir ríki þar sem kynjajafnrétti mælist mest. Ísland hefur náð að brúa rúmlega 86 prósent kynjabilsins hér á landi, sem er mest allra ríkja samkvæmt skýrslu Alþjóðaefnhagsráðsins. Á eftir Íslandi eru Noregur, Svíþjóð og Finnland efst á listanum. Skýrslan var birt í morgun og úttektin nær yfir 149 lönd og leggur mat á jafnrétti kynjanna í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði.

Bakslag í stjórnmálaþátttöku kvenna

Ísland mældist með 87 prósent í skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins á síðasta ári og hefur því farið eilítið aftur. Þegar kemur að stjórnmálaþáttöku kvenna stendur Ísland sig best allra ríkja en þó er enn 33 prósent bil á milli kynjanna þegar kemur að þátttöku í stjórnmálum hér á landi. Í skýrslunni segir að bilið hafi stækkað hér á landi á síðasta ári en það er meðal annars vegna þess hve konum fækkaði á Alþingi í síðustu Alþingiskosningum. Ísland mælist einnig með lægsta launamisrétti kynjanna en í skýrslunni segir að Ísland eigi enn langt í land þegar kemur að konum í stjórnunarstöðum fyrirtækja.[adspot]

Ekki enn tekist að uppræta ofbeldi gegn konum hér á landi

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að sæti Íslands á lista Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins end­ur­spegli það mikla starf sem unnið hefur verið í þágu jafn­rétt­is­mála á Íslandi, á vett­vangi stjórn­valda, innan fræð­anna og í gras­rót­inni, í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu „Við eigum kvenna­hreyf­ing­unni á Íslandi mikið að þakka fyrir að hafa rutt braut­ina og þrýst á breyt­ingar í sam­fé­lag­inu. Lyk­il­at­riðið er að skilja að jafn­rétti kynj­anna er ekki náð og að það kemur ekki af sjálfu sér,“ segir Katrín og bendir á að enn að enn sé verka að vinna.

„Þegar ég er spurð um árangur Íslands á alþjóðavettvangi nefni ég oft almenna leikskóla og fæðingarorlof sem lykilstefnumál. En síðan vitum við líka að ofbeldi gegn konum er bæði orsök og afleiðing kynjamisréttis og það hefur okkur því miður ekki tekist að uppræta hér á landi. Við eigum enn verk að vinna og ég hlakka til að leiða þennan málaflokk fyrir hönd ríkisstjórnarinnar næstu árin,” segir Katrín.

Telja að það taki 108 ár til ná fullu jafnrétti kynjanna

Í skýrslu Alþjóðaefnhagsráðsins segir að framfarir í jafnréttismálum gangi hægt á heimsvísu og í niðurstöðu skýrslunnar kemur fram að það muni taka 108 ár að ná fullu jafnrétti karla og kvenna í heiminum.

Í skýrslunni segir að lág stjórnmálaþáttaka kvenna og launamunur kynjanna séu helstu hindranirnar í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Niðurstöður skýrslunnar benda til að enn eru mun færri konur en karlar sem taka þátt í stjórnmálum og launamunur kynjanna mælist 51 prósent í heildina í heiminum.

Þegar að það kemur að stjórnmálaþátttöku þá hefur aðeins 23 prósent kynjabilsins verið brúað í heiminum. Aðeins sjö lönd hafa náð að brúa yfir 50 prósent kynjabilsins þegar að kemur að þátttöku í stjórnmálum, það eru Ísland, Níkaragva, Noregur, Rúanda, Bangladesh, Finnland og Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár