Ekki fleiri bómullarpinna úr plasti, hnífapör, diska, sogrör og blöðruprik

Lagt er til í drögum að nýju frum­varpi að óheim­ilt verði að afhenda end­ur­gjalds­laust einnota bolla og mat­ar­í­lát úr öðru plasti en frauð­plasti sem ætluð eru undir drykki og mat­væli til neyslu, líkt og algengt er á skyndi­bita­stöðum.

Bannað verður hér á landi að setja til­teknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað, sam­kvæmt nýju frum­varpi Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og aulinda­ráð­herra. Lagt er til að lögin öðlist að meg­in­stefnu gildi þann 3. júlí árið 2021.

Drög að frum­varp­inu eru komin á sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 16. jan­úar næst­kom­andi.

Meðal vara sem bannað verður að setja á markað eru einnota bómull­arp­innar úr plasti, hnífa­pör, diskar, sogrör, hrærip­innar og blöðru­prik sem og mat­ar­í­lát, drykkj­ar­í­lát og bollar úr frauð­plasti. Und­an­tekn­ingar eru gerðar ef vörur flokk­ast sem lækn­inga­tæki.

Sömu­leiðis er lagt til að óheim­ilt verði að afhenda end­ur­gjalds­laust einnota bolla og mat­ar­í­lát úr öðru plasti en frauð­plasti sem ætluð eru undir drykki og mat­væli til neyslu, líkt og algengt er á skyndi­bita­stöðum. Skal gjaldið vera sýni­legt á kassa­kvittun.

Markmiðið að draga úr áhrifum af notkun plasts

Meg­in­mark­mið frum­varps­ins er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og styðja við notkun end­ur­not­an­legra vara en með því er inn­leidd ný Evr­óputil­skipun sem er fyrst og fremst beint að ýmsum algengum plast­vörum sem finn­ast helst á ströndum.

Til­skip­un­inni er einnig ætlað að styðja við myndun hringrás­ar­hag­kerfis og efla úrgangs­for­varnir með því að styðja við notkun sjálf­bærra og end­ur­not­an­legra vara, fremur en einnota vara.

Skilyrðislaust bann við að setja vörur á markað úr oxó-plasti

Þá er í frum­varp­inu lagt til skil­yrð­is­laust bann við því að setja vörur á markað sem gerðar eru úr plasti sem er nið­ur­brjót­an­legt með oxun eða svo­kallað oxó-plast.

Vörur úr slíku plasti hafa rutt sér til rúms á mark­aði síð­ustu ár, einkum vissar teg­undir plast­poka, en eðli þess er að sundr­ast í öragnir sem eru skað­legar heilsu og umhverfi og er vax­andi vandi á alþjóða­vísu, að því er kemur fram í frum­varps­drögum.

Í frum­varp­inu er enn fremur kveðið á um sér­staka merk­ingu sem til­teknar einnota plast­vörur eiga að bera um með­höndlun vör­unnar eftir notkun og þau nei­kvæðu áhrif sem varan hefur ber­ist hún út í umhverfið. Þær vörur sem greinin mun taka til eru ýmsar tíða­vörur, blaut­þurrkur til heim­ilis– og einka­nota, ýmsar tóbaks­vörur og bollar fyrir drykkj­ar­vörur.

Staðgönguvörur fáanlegar

Einnota drykkj­ar­í­lát úr plasti sem eru með tappa eða lok úr plasti verður sam­kvæmt frum­varp­inu ein­ungis heim­ilt að setja á markað ef tapp­inn eða lokið, er áfastur ílát­inu á meðan notkun þess stendur yfir.

Í til­felli plast­var­anna sem frum­varpið tekur til eru fáan­legar á mark­aði stað­göngu­vörur sem eru margnota eða inni­halda ekki plast og nota má í stað­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár