„Eitthvað mjög skrítið að gerast“ í umferðinni

Gunnar Geir Gunnarsson, deildar­stjóri öryggis-og fræðslu­deildar Umferðar­stofu, fer yfir árið í umferðinni með Stundinni. Hann er uggandi yfir fjölgun í umferðar­slysum á árinu miðað við árin á undan. Stærstu breytinguna segir hann vera aukningu á slysum á rafmagns­hlaupa­hjólum.

Gunnar Geir Gunnarsson, deildar­stjóri öryggis- og fræðslu­deildar Umferðar­stofu, er uggandi yfir fjölgun umferðar­slysa og slasaðra á tíma­bilinu janúar til september á árinu 2021, en á því tímabili voru umferðar­slys orðin fleiri en allt árið 2020 og 2019 sömuleiðis. „Það er eitthvað mjög skrýtið að gerast. Við erum eiginlega bara mjög uggandi yfir þessum tölum,“ segir Gunnar. 

Aðspurður um það hver helsta breytingin á þessu tímabili miðað við árin tvö á undan er segir hann fjölgun slysa á rafmagns­hlaupa­hjólum vera stærstu breytinguna en á þessu tímabili hafa 30 einstaklingar slasast alvarlega á þeim farar­tækjum. Algengasta tegund alvarlegra slysa á þessu tímabili var að óvarinn vegfarandi féll af farartæki, eða 42 slys, og þar á eftir voru 32 slys sem rekja má til útaf­aksturs eða bílveltna og þriðja algengasta tegund slyss er ekið á óvarinn vegfaranda. 

Hvað óvarða vegfarendur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Mikill hluti hlaupahjólaslysum stafar af árekstrum við illa hönnuð umferðarmannvirki. Flest gatnamót í Reykjavík eru hönnuð sem farartálmi fyrir gangandi og hjólandi. Þræða þarf krákustíga. Fláar upp á gangstéttir eru víða þannig að erfitt er að komast slysalaust upp þá á rafskútu. Nýjir stígar er síðan lagðir þannig að göngu og hjólastígar fléttast saman í kaðlaprjónsmunstri sem fjölgar tækifærum til árekstra.
    0
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Hvert er hlutfall slysanna eftir hlutfalli samgöngutækja í umferð?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár