Fyrsta nýja trjátegundin í 47 ár uppgötvuð af vísindamönnum fyrir slysni

Vís­inda­menn fundu nýja trjá­teg­und í Nýju-Kaledóníu eftir 17 ára rann­sókn­ar­starf. Ekki hefur fund­ist ný trjá­teg­und í heim­inum í 47 ár. Tréð er af sömu ætt og apa­hrellir, eða apa­þrauta­tré.

Ný tegund af apaþrautatré, eða apahrelli, hefur uppgötvast á eyju í Kyrrahafi eftir 17 ára rannsóknarstarf.
Ný teg­und af apa­þrauta­tré, eða apa­hrelli, hefur upp­götvast á eyju í Kyrra­hafi eftir 17 ára rann­sókn­ar­starf. Mynd: Skógrækt ríkisins/Deadline News

Vís­inda­menn hafa fundið nýja trjá­teg­und og er þetta fyrsta nýja teg­undin sem finnst í 47 ár. Starfs­menn kon­ung­lega Grasa­garðs­ins í Edinborg hafa stundað rann­sóknir á á eyj­unni Nýju-Kaledóníu í Kyrra­hafi í 17 ár, en á eyj­unni er afar sér­stætt sam­an­safn af flóru. Tréð, sem er af sömu ætt­kvísl og apa­þrauta­tré, eða apa­hrellir (Araucaria, e. Monkey Puzzle), sem hafa fund­ist víða í Nýju Kaledóníu, hvar er að finna þrettán teg­undir af trénu. Trén vaxa einnig í Ástralíu, Chile og víðar í Suður-Ameríku. Talið var að ein­ungis 19 teg­undir væru til af þess­ari ætt­kvísl, en í raun eru þær að minnsta kosti 20. Frétta­vefur Skóg­ræktar rík­is­ins greinir frá þessu.

Fannst fyrir tilviljun

Lífríki eyj­unnar hefur verið ógnað vegna nikk­el­fram­leiðslu. Hin nýja teg­und fannst, fyrir algjöra til­viljun, á stað þar sem til stendur að grafa fyrri nýrri nikk­el­námu. Á seinni hluta síð­asta árs komu skosku vís­inda­menn­irnir auga á nokkur tré sem virt­ust frá­brugðin öðrum - og var það rétt athugað. Í ljós kom að laufin, eða nál­arnar, voru stærri en á öðrum apa­þrauta­trjám og lögun köngl­anna önnur. 

Fram kemur á vef Skóg­rækt­ar­fé­lags­ins að með ítar­legum rann­sóknum hafi verið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hin nýju tré væru nægi­lega frá­brugðin öðrum Araucaria-trjám til að þau gætu verið skil­greind sem ný teg­und.

200 milljón ára gömul tegund í hættu

Enn er þó mikil vinna eftir við rann­sóknir á erfða­efni teg­und­ar­innar og er nú meg­in­á­hersla lögð á verndun hennar á svæð­inu. Útbreiðsla hennar á eyj­unni virð­ist vera bundin við svæði þar sem á að hefja mikla fram­leiðslu á nikkel með náma­gröfti og til­heyr­andi raski.

Ræktuð í görðum á Íslandi

Tréð hefur enn ekki fengið við­ur­kennt fræði­heiti, en er talin hafa vaxið á jörð­inni í um 200 millj­ónir ára, eða á meðan risa­eðl­urnar réðu ríkjum. Hin eig­in­legu apa­þrauta­tré hafa verið ræktuð í görðum um allan heim í fjölda ára, enda eru þetta lang­líf og nokkuð harð­ger, sígræn tré. Þau vaxa ekki hratt, en geta náð allt að 50 metra hæð. Vís­inda­menn­irnir gáfu í kjöl­farið út grein í American Journal of Botany um rann­sókn­ina og nið­ur­stöð­urnar. Þar kemur meðal ann­ars fram að Norður-Kaledónía er ein mesta upp­spretta nikk­els á jörð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár