Lífeyrissjóðir færa niður eignir og kröfur á United Silicon um 90 prósent

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er búinn að færa niður eign og kröfur á United Silicon um 90 pró­sent. Það sama eftir EFÍA gert. Var­úð­ar­nið­ur­færslur þeirra nema yfir millj­arði króna.

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, sem fjár­festi 1.178 millj­ónum króna í United Silicon, hefur færð niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­ur­inn á í fyr­ir­tæk­inu um 90 pró­sent. Um var­úð­ar­nið­ur­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­launa­sjóði félags íslenskra atvinnu­flug­manna (EFÍA). Þar nemur nið­ur­færslan einnig 90 pró­sentum. Þetta er haft eftir Arnaldi Lofts­syni, fram­kvæmda­stjóra Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins, í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag. Þar kemur einnig fram að fjár­fest­ingin skipt­ist jafnt á milli skulda­bréfa og hluta­bréfa í United Silicon og að öll við­skiptin hafi verið fram­kvæmd eftir ráð­gjöf Arion banka.

Mark­að­ur­inn greinir líka frá því að stjórn­endur Kaup­þings, stærsta eig­anda Arion banka, vilji fá svör um hversu mikið þurfi að afskrifa af átta millj­arða króna lánum hans til United Silicon áður en að hluta­fjár­út­boð í Arion banka, sem er fyr­ir­hugað í haust, fer fram. Arion banki hefur þegar afskrifað allt hlutafé í United Silicon, sem var metið á einn millj­arð króna. Alls átti bank­inn 16,3 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.

Í greiðslustöðvun

United Silicon rekur kís­il­málm­verk­smiðju í Helgu­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­leikar í rekstri kís­il­málm­verk­smiðj­unni sem hóf fram­leiðslu í nóv­em­ber 2016, og rekja má til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­ar­dómur í deilu félags­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­ins. Sam­kvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna. Greiðslu­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins var fram­lengd í vik­unni og gildir nú fram í des­em­ber.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Alls nam fjár­fest­ing líf­eyr­is­sjóða í verk­efn­inu um 2,2 millj­örðum króna. Þar af fjár­festu þrír líf­eyr­is­sjóðir sem eru í stýr­ingu hjá Arion banka í verk­efn­inu fyrir .1375 millj­ónir króna. Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn lagði til langstærstan hluta þeirrar upp­hæðar, eða 1.178 millj­ónir króna. Hinir tveir sjóð­irnir eru Eft­ir­launa­sjóður félags íslenskra atvinnu­flug­manna (EFÍA) og Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna Bún­að­ar­banka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­fólk bank­ans gegnir stjórn­un­ar­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­stöðvum hans í Borg­ar­túni.

Líkt og kemur fram hér að ofan var ráð­ist í fjár­fest­ing­una eftir ráð­legg­ingar frá Arion banka.

Stýrt af starfsmanni Arion banka

Í yfir­­lýs­ingu sem EFÍA birti á heima­­síðu sinni í ágúst kom fram að heild­­ar­fjár­­­fest­ing hans í verk­efn­inu væri 112,9 millj­­ónir króna. Líkt og með aðrar sér­­hæfðar fjár­­­fest­ingar hafi það verið stjórn sjóðs­ins sem tók ákvörðun um hana „að und­an­­geng­inni ítar­­legri grein­ingu sér­­fræð­inga Arion Banka.“ Fram­­kvæmda­­stjóri sjóðs­ins er starfs­­maður Arion banka.

Fjórði sjóð­ur­inn sem lagði United Silicon til fé var Festa líf­eyr­is­sjóður. Festa lagði félag­inu til 875 millj­ónir króna í hlutafé og skulda­bréfa­lán. Sjóð­ur­inn hefur nú færð niður 3,5 pró­senta eign­ar­hlut sjóðs­ins í United Silicon að fullu.

Kjarninn hefur óskað eftir því að fá hlut­haf­alista United Silicon afhentan en ekki fengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár