Eiginkona forsætisráðherra hagnast á því að sleppa við stöðugleikaskatt

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur leikið lyk­il­hlut­verk í póli­tískri umræðu um losun hafta og við mótun á áætlun til að láta þá losun verða að veru­leika. Eig­in­kona hans var allan þann tíma kröfu­hafi í slitabú föllnu bank­anna.

Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, hefur opinberað að hún eigi kröfur upp á rúman hálfan milljarð króna í slitabú föllnu bankanna.
Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra, hefur opin­berað að hún eigi kröfur upp á rúman hálfan millj­arð króna í slitabú föllnu bank­anna. Mynd: Samsett.

Wintris Inc., félag í eigu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, getur búist við því að fá rúm­lega 120 millj­ónir króna þegar slitabú föllnu bank­anna hafa greitt kröfu­höfum sínum. Alls á félagið kröfur upp á 523 millj­ónir króna og væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa skila ofan­greindri nið­ur­stöðu. Ef stöð­ug­leika­skattur hefði verið lagður á slita­búin hefði það fé sem runnið hefði til kröfu­hafa verið um 300 millj­örðum krónum lægri upp­hæð sem nú verður. Því hagn­ast Wintris umtals­vert á því að slita­búum Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans var gert kleift að ljúka slitum sínum með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags frekar en með álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts.

Anna Sig­ur­laug er eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra.

Keypti skuldabréf á íslensku bankana fyrir hrun

Félag eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á kröfur í slitabú föllnu bank­anna vegna þess að það hafði keypt skulda­bréf útgefin af þeim fyrir hrun. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra, sem sér um upp­lýs­inga­gjöf fyrir hönd Önnu Sig­ur­laugar vegna opin­ber­unar á eign hennar á aflands­fé­lagi. Þegar neyð­ar­lögin voru sett í októ­ber 2008 færð­ust kröfur vegna slíkra skulda­bréfa aftur fyrir inn­stæður í kröfu­hafaröð bank­anna. Sig­mundur Davíð sat ekki á þingi þegar neyð­ar­lögin voru sam­þykkt og enn voru þá nokkrir mán­uðir í að hann yrði kos­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sig­mundur Davíð kom því ekki að þeirri laga­setn­ingu.

Wintris lýsti því almennri kröfu í bú Kaup­þings, Lands­bank­ans og Glitnis til að reyna að fá skulda­bréf sín greidd að ein­hverju leyti. Alls á félagið kröfu upp á 174 millj­ónir króna í bú Lands­banka Íslands, þrjár kröfur upp á sam­tals 220 millj­ónir króna í bú Kaup­þings og eina kröfu í bú Glitnis upp á eina milljón sviss­neskra franka, sem í dag er um 129 millj­ónir króna. Samtals nema kröf­urnar því um 523 millj­ónum króna.

Lyk­ilá­kvörðun í að styrkja stöðu íslenskra stjórn­valda í stöðu­bar­áttu þeirra við erlenda kröfu­hafa vegna slita­búa föllnu bank­anna voru lög sem sam­þykkt voru 13. mars 2012. Í þeim voru slitabú bank­anna færð undir höft og svo­kallað „sól­ar­lags­á­kvæði“, sem gerði höftin tíma­bundin, afnumið. Sig­mundur Davíð var þing­maður þegar þessi lög voru sam­þykkt en var fjar­ver­andi þegar greitt var atkvæði um þau.

Haustið 2013 var skip­aður ráð­gjafa­hópur til að vinna við hafta­af­nám. Á meðal þeirra sem starf­aði í þeim hópi var Benedikt Árnason, þá sér­legur efna­hags­ráð­gjafi Sig­mundar Davíðs. Á grund­velli vinnu þess hóps var settur á fót sér­stakur fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta. Í upp­hafi árs 2015 var bætt við þann hóp. Á meðal þeirra sem komu þá inn í hann var Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá Kviku. Hann er vinur og einn nán­asti ráð­gjafi Sig­mundar Davíðs og var meðal ann­ars for­maður sér­fræð­inga­hóps stjórn­valda um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Auk þess starf­aði Lilja D. Alfreðs­dóttir, sem var í láni hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá Seðla­banka Íslands við verk­efna­stjórnun vegna los­unar fjár­magns­hafta, náið með hópnum.

Sigmundur í aðalhlutverki í Hörpu

Þegar stjórn­völd kynntu áætlun sína um losun hafta í byrjun júní 2015 var blásið til mik­ils blaða­manna­fundar í Hörpu. Þar kynntu Sig­mundur Davíð og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, helstu útlínur áætl­un­ar­innar. Í aðdrag­anda fund­ar­ins setti Sig­mundur Davíð eft­ir­far­andi stöðu­upp­færslu inn á Facebook-síðu sína:

Aætlunin sem kynnt var fólst í því að annað hvort myndu erlendir kröfu­hafar slita­bú­anna sam­þykkja að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag eða að það yrði lagður 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á eignir þeirra. Það stöð­ug­leika­fram­lag þurfti að vera þess eðlis að það myndi ekki hafa nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð Íslands og fjár­mála­stöð­ug­leika. Í grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands um mat á upp­gjöri föllnu fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja á grund­velli stöð­ug­leika­fram­laga, sem birt var í lok októ­ber 2015, kom fram að stöð­ug­leika­fram­lög myndu nema tæp­lega 379 millj­örðum króna. Sú upp­hæð miðar við að hægt verði að selja Íslands­banka á háu verði, og því gæti fram­lagið mögu­lega orðið umtals­vert lægra.

Í áætlun stjórn­valda sem kynnt var í júní 2015 kom fram að tekjur af 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatti myndi skila rík­is­sjóði 682 millj­örðum króna. Það munar því að minnsta kosti 300 millj­örðum krónum á stöð­ug­leika­fram­lags­leið­inni og stöð­ug­leika­skatts­leið­inni.

End­ur­heimtir almennra kröfu­hafa föllnu bank­anna urðu á end­anum betri en þeir höfðu reiknað með. Ljóst er á sam­tölum við þá sem fyrir kröfu­haf­anna hafa starfað að þeir voru afar ánægðir með mála­lyktir. Ljóst er að end­ur­heimtir í bú Glitnis verða á bil­inu 30-35 pró­sent, hjá Kaup­þingi rúm­lega 26 pró­sent og hjá Lands­bank­anum um 15 pró­sent.

Eiginkona forsætisráðherra fær tugi milljóna króna

Miðað við ofan­greindar end­ur­heimtir má ætla að félag eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra fái um 26 millj­ónir króna vegna kröfu sinnar í bú Lands­banka Íslands, um 57 millj­ónir króna vegna kröfu sinnar í bú Kaup­þings og 39 til 45 millj­ónir króna vegna kröfu sinnar í bú Glitnis. Samtals má því ætla að hún fái 122 til 128 millj­ónir króna vegna krafna sinna.

Ef stöð­ug­leika­skattur hefði verið lagður á slita­búin hefðu end­ur­heimtir félags eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra orðið mun lægri, enda allt að 300 millj­örðum króna minna til skipt­anna fyrir almenna kröfu­hafa þeirra. Því er það stað­reynd að félag Önnu Sig­ur­laugar hagn­að­ist fjár­hags­lega á því að ákveðið var að semja við kröfu­hafa um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lag í stað þess að leggja á búin stöð­ug­leika­skatt.

Stór hluti af pólitískum persónuleika Sigmundar Davíðs

Losun hafta og mál­efni slita­búa föllnu bank­anna hafa verið stór hluti af póli­tískum per­sónu­leika Sig­mundar Davíðs á und­an­förnum árum. Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins­fyrir síð­ustu kosn­ingar kom fram að flokk­ur­inn vildi nýta það svig­rúm sem mundi skap­ast við upp­gjör þrota­búa bank­anna til að fjár­magna almennar skulda­nið­ur­fell­ingar á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Í við­tali við Frétta­blaðið sem Sig­mundur Davíð fór í þann 9. mars 2013, skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar, sagði hann eft­ir­far­andi um upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna: „Í slíkum við­ræðum þurfa menn bæði að hafa gul­rót og kylfu. Það þarf að skapa hvata en menn þurfa líka að standa frammi fyrir því að ef þeir séu ekki til­búnir til að spila með verði það þeim ekki til hags­bóta.“

Í við­tali við Kjarnann þann 22. ágúst 2013 sagði Sig­mundur að það væri „sam­eig­in­legir hags­munir kröfu­hafa og íslenskra stjórn­valda að leysa þetta mál þannig að hægt verði að afnema gjald­eyr­is­höftin.“ Það er því ljóst, og raunar hægt að telja mýmörg fleiri dæmi til, að Sig­mundur Davíð hefur komið ítrekað að póli­tískri umræðu um losun hafta og mál­efnum slita­búa föllnu bank­anna án þess að fyrir hafi legið að eig­in­kona hans ætti kröfur upp á hund­ruð millj­óna króna í þau bú.

Situr í ráðherranefnd um efnahagsmál

Sig­mundur Davíð kom einnig með beinum hætti að því ferli sem áætlun um losun hafta var. Hann er enda for­sæt­is­ráð­herra Íslands og málið eitt mesta hags­muna­mál þjóð­ar­innar. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar hans segir m.a.: „Eitt mik­il­væg­asta verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar verður að vinna að afnámi fjár­magns­hafta en gjald­eyr­is­höftin bjaga eigna­verð og draga úr sam­keppn­is­hæfi þjóð­ar­innar.“

Líkt og áður sagði var Sig­mundur Davíð einn þeirra sem var í aðal­hlut­verki á kynn­ingu á áætl­un­inni í Hörpu í júní í fyrra. Hann var eitt and­lita hafta­los­un­ar­á­ætl­un­ar­innar og fór meira að segja í ýmis við­töl á erlendum vett­vangi til að kynna nið­ur­stöð­una.

Yfir­stjórn hafta­los­un­ar­á­ætl­un­ar­innar var í höndum stýrinefndar um losun fjár­magns­hafta. Bjarni Bene­dikts­son leiddi þá nefnd. Auk þess sátu í henni Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, ráðu­neyt­is­stjórar for­sætis- og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyta og Benedikt Árnason, efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur Davíð sat því ekki í þeirri nefnd þótt að sér­legur ráð­gjafi hans hafi gert það.

En hann situr hins vegar í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál ásamt Bjarna Bene­dikts­syni. Þegar Seðla­banki Íslands hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að veita ætti slita­búum föllnu bank­anna und­an­þágur frá fjár­magns­höftum til að klára nauða­samn­inga sína, sem gerð­ist 28. októ­ber 2015, var fjallað um málið í ráð­herra­nefnd­inni. Þá var einnig fjallað um málið í rík­iss­stjórn Íslands. Sig­mundur Davíð sat báða þá fundi.

Sig­mundur Davíð hefur einnig greitt atkvæði í þeim atkvæða­greiðslum sem farið hafa fram um laga­setn­ingar og –breyt­ingar vegna áætl­unar um losun fjár­magns­hafta og fram­kvæmd hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár