Hælisleitendur fá jólauppbót

Rík­is­stjórnin ákvað í morgun að veita 4,6 millj­ónum króna í umfram­greiðslu til hæl­is­leit­enda.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að verja 4,6 millj­ónum króna af ráð­stöf­un­arfé sínu til við­bót­ar­greiðslna til hæl­is­leit­enda.

Und­an­farin ár hafa umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fengið greiðslu í des­em­ber til við­bótar við fastar fram­færslu­greiðslur. Þær greiðslur hafa ekki verið vegna reglu þar um, enda engar slíkar til staðar, heldur hefur verið tekin ákvörðun hverju sinni.

[links]Í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni segir að nú njóti 518 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd þjón­ustu hjá Útlend­inga­stofnun og sveit­ar­fé­lög­unum Reykja­vík, Reykja­nesbæ og Hafn­ar­firði. Af þessum 518 eru 403 full­orðnir ein­stak­lingar og 114 börn.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að það sé ánægju­legt að rík­is­stjórnin hafi getað brugð­ist við með þessum hætti. „Mér finnst afar mik­il­vægt að mál sem þessi séu í föstum far­vegi til fram­tíðar litið þannig að ekki skap­ist óvissa eða mis­munun frá einu ári til ann­ars og við munum í fram­hald­inu vinna að því að það verði gert.“

Þeim hæl­is­leit­endum sem eru í þjón­ustu sveit­ar­fé­laga eða Útlend­inga­stofn­unar hefur fækkað mikið á þessu ári. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en eru nú, líkt og áður sagði, 518. Það þýðir að hæl­is­leit­endum sem eru á for­ræði ríkis eða sveit­ar­fé­laga hefur fækkað um tæpan þriðj­ung á einu ári.

[adspot]Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­l­ing á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­­urra manna fjöl­­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­­is­­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­­bótar þús­und­ krónur fyrir hvert barn. Þær greiðslur sem voru sam­þykktar í morgun koma til við­bótar ofan­greindri greiðslu. Í jóla­upp­bót­inni felst að greiðslan er tvö­földuð í jóla­vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár