Yfir sex þúsund boða komu sína í „byltingu“ á Austurvelli

Boða „bylt­ingu“ og „upp­reisn“ á Aust­ur­velli í dag.

Yfir sex þúsund boða komu sína í „byltingu“ á Austurvelli
Mótmæli Frá fyrri mót­mælum á Aust­ur­velli. Mynd: Pressphotos

Yfir 6.400 manns hafa boðað komu sína á mót­mæla­fund undir yfir­skrift­inni  „Bylting! Uppreisn!“ á Aust­ur­velli í mið­borg Reykja­víkur í dag klukkan fimm. 

Tilefni mót­mæl­anna er marg­vís­legt en þau bein­ast gegn rík­is­stjórn lands­ins. Í kynn­ingu mót­mæl­anna eru til­von­andi mót­mæl­endur beðnir um að deila ástæðum and­stöðu sinnar:

„Almenn­ingur sér sig nú knú­inn til að koma núver­andi rík­is­stjórn frá störfum, hún er að valda var­an­legum, óaft­ur­kræfum skaða fyrir þjóð­ina. Við erum reið. Við líðum þetta ekki lengur. Mót­mæl­endur komið endi­lega með lykla með ykkur til að búa til hávaða og koma skila­boð­unum á fram­færi að þeir lyklar sem rík­is­stjórnin hefur að fram­tíð lands­ins hafa þeir ekki umboð fyrir lengur, og skulu skila. Nú stendur þjóðin saman og lætur heyra í sér! Endilega póstið á vegg­inn hér þau atriði sem ykkur finnst vera helst á baugi og þau atriði sem fá ykkur til að vilja upp­reisn, núna!“

Flestir mótmæla spillingu

Ástæður mótmælanna
Ástæður mót­mæl­anna Þeir sem boða þátt­töku í mót­mæl­unum, eða „bylt­ing­unni“, til­greina mis­mun­andi ástæður fyrir henni.

Af þeim 6.400 sem boðað hafa komu sína nefna 1.800 að til­efni mót­mæla þeirra sé „spill­ing“. Rúmlega 1.300 nefna mak­ríl­frum­varpið. Aðrar helst til­greindu ástæð­urnar eru: „Sið­blinda“, launa­ó­jöfn­uður, virð­ing­ar­leysi gagn­vart þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum, virð­ing­ar­leysi gagn­vart kosn­inga­lof­orðum, nið­ur­brotið sjúkra­kerfi, tengsla­leysi við almenn­ing, umhverf­is­mál, bein hags­muna­tengsl þing­manna og ráð­herra við fyr­ir­tæki, meint yfir­vof­andi einka­væð­ing Lands­virkj­unar, „Sig­mundur Davíð“, að mál aldr­aðra og öryrkja séu ekki löguð, að ósk um nýja stjórn­ar­skrá sé ekki virt, hús­næð­is­verð og -skortur, hækkun á mat­ar­skatti, slit ESB-við­ræðna, „Bjarni Ben“, leigu­verð, ill með­ferð á auð­lindum, van­virð­ing við verka­menn, vopna­væð­ing lög­regl­unnar, „rán á auð­lindum“, auð­ræði, leið­rétt­ing á hús­næð­is­lánum, „nýfas­ismi og útlend­inga­hatur“ og margt fleira.

Sagði skynjun þjóðarinnar rofna frá raunveruleikanum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í við­tali á Eyjunni í gær að hann teldi að þjóðin, eða sá hluti þjóð­ar­innar sem misst hefði trú á stjórn­mála­mönnum og rík­is­stjórn­inni, hefðu orðið fyrir „rofi á milli raun­veru­leika og skynj­unar“.

Í könnun fyr­ir­tæk­is­ins MMR í lok síð­asta mán­aðar kom fram það við­horf að þjóðin telur vera rof á milli leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar og þjóð­ar­innar. Einungis 5 pró­sent svar­enda töldu Sigmund Davíð og Bjarna Bene­dikts­son vera „í tengslum við almenn­ing“. Þá töldu um tíu pró­sent svar­enda að þeir væru „heið­ar­legir“.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur farið hratt minnk­andi. Í könnun MMR í byrjun mán­að­ar­ins mæld­ist fylgi rík­is­stjórn­ar­innar minna en fylgi flokks Pírata, eða 30,7 pró­sent á móti 32 pró­sent fylgi Pírata.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár