Davíð vill að forsetaembættið beiti sér gegn þöggun og „umræðubanni“

Davíð Oddsson er stoltur af for­tíð sinni og vill að for­set­inn hjálpi Íslend­ingum að rækta garð­inn sinn í stað þess að reyna að bjarga heim­inum. „For­set­inn getur til dæmis stöðvað það að umræðu­bann sé í land­inu um til­tekna þætti,“ sagði hann við opnun kosn­inga­skrif­stofu sinnar í dag.

Davíð vill að forsetaembættið beiti sér gegn þöggun og „umræðubanni“

Davíð Oddsson vill að for­set­inn horfi heim og hugi að and­legum innviðum íslenskrar þjóðar. Þetta kom fram í fram­boðs­ræðu hans við opnun kosn­inga­skrif­stofu sinnar á Grens­ás­vegi á sjötta tím­anum, en Morg­un­blaðið sýndi frá fund­inum í beinni útsend­ingu á Mbl.is, mest lesnu vef­síðu lands­ins.

Davíð er rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins en tók sér sum­ar­leyfi vegna for­seta­fram­boðs síns. Samkvæmt skoð­ana­könnun Maskínu sem gerð var dag­ana 10. til 13. maí ætla tæp­lega 15 pró­sent lands­manna að kjósa Davíð Oddsson. Þetta er minna en fjórð­ungur þess fylgis sem fram­bjóð­and­inn Guðni Th. Jóhann­es­son nýtur sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum Maskínu og Frétta­blaðs­ins. 

Davíð sló á létta strengi í fram­boðs­ræðu sinni og upp­skar mik­inn hlátur stuðn­ings­manna sinna. Hann svar­aði gagn­rýn­is­röddum, hædd­ist að póli­tískum and­stæð­ingum og vís­aði því á bug að hann hefði starfað sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins í því skyni að end­ur­skrifa sög­una. 

Davíð Oddsson og Gústaf Níelsson
Davíð Oddsson og Gústaf Níelsson Vel fór á með Davíð og Gústaf Níels­syni, sagn­fræð­ingi sem Framsókn og flug­vall­ar­vinir gerðu frægan um árið.

Barnabarnið ánægt með grein Hannesar

„Ég er stoltur af minni for­tíð,“ sagði Davíð og velti fyrir sér orðum Guðna Th. Jóhanes­sonar for­seta­fram­bjóð­anda um að hann væri umdeild­asti stjórn­mála­maður á Íslandi. „Hvernig skyldi það nú vera mælt? Ég hef bara ekki hug­mynd um það,“ sagði Davíð og bætti því við að Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hefðu aldrei skorað hátt í „vin­sælda­feg­urð­ar­sam­keppni í land­inu“. Ef litið væri á fylgis­tölur kæmi í ljós að hann sjálfur hefði iðu­lega notið meiri vin­sælda en þau. „Ég veit ekki betur en að ég hafi alltaf fengið miklu fleiri atkvæði en þetta fólk.“

„Ég veit ekki betur en að ég hafi alltaf fengið miklu fleiri atkvæði en þetta fólk.“

Davíð fór ljúfum orðum um umfjöllun Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, stjórn­mála­fræði­pró­fess­ors, um sig og vitn­aði í barna­barn sitt sem hafði lit­ist vel á grein­ina. Þá hædd­ist hann að þeim sem gagn­rýndu skrifin. „Usual suspects urðu alveg arfa­vit­lausir eins og van­inn er, missa sig alltaf þegar ég er nefndur.“

Kampakátur
Kampa­kátur Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi Hæsta­rétt­ar­dóm­ari og vinur Davíðs til margra ára­tuga, lét sig ekki vanta. Hann var hýr á brá.

Umræða um uppgang múslima

Davíð sagð­ist vilja horfa heim og huga að innviðum Íslands, ekki síst hinum and­lega þætti. „For­set­inn getur til dæmis stöðvað það að umræðu­bann sé í land­inu um til­tekna þætti. Hann getur stöðvað þöggun, hann getur verið í far­ar­broddi þess að hvetja til umræðu,“ sagði Davíð.

Hann útskýrði ekki hvað hann meinti en orðin kall­ast þó á við ummæli sem Davíð lét falla í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Þar lýsti hann áhyggjum sínum af því sem þátta­stjórn­andi Bylgj­unnar kall­aði „upp­gang múslima í Evrópu“ og sagði að for­set­inn ætti „ekki að leyfa mönnum að banna umræðu“. Fullyrti hann að víða í Skand­in­avíu væru hverfi sem lög­reglan færi ekki inn í nema í rútu­bílum, fylktu liði.

Davíð sagð­ist ekki vilja að þannig færi til dæmis fyrir Selfossi.

„Útlend­ingar, flótta­fólk á bágt – margt af því – og við eigum að reyna að veita þeim lið, en við verðum að gera það af skyn­semi,“ sagði Davíð sem marg­sinnis hefur beint spjótum sínum að flótta­mönnum og útlend­ingum í leið­ara­skrifum Morg­un­blaðs­ins und­an­farin ár.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár