Varamaður Pírata ákærður fyrir að hóta lögreglumanni því að beita móður hans ofbeldi

Sævar Óli Helgason hefur verið ákærður af rík­is­sak­sókn­ara. Hann er vara­nefnd­ar­maður Pírata í Faxa­flóa­hafn­ar­nefnd. Áður hefur hann fengið dóma fyrir að rasskella konu og grípa í öxl sýslu­manns og bregða fyrir hann fæti.

Varamaður Pírata ákærður fyrir að hóta lögreglumanni því að beita móður hans ofbeldi
Ákærður Sævar Óli er vara­nefnd­ar­maður Pírata í borg­inni. Hann hefur áður fengið dóma fyrir að rasskella konu og grípa í öxl sýslu­manns.

Rík­is­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru gegn Sævari Óla Helga­syni, vara­manni Pírata í Faxa­flóa­hafn­ar­nefnd í Reykja­vík. Honum er gefið að sök að hafa laust eftir mið­nætti mið­viku­dag­inn 23. júlí 2014 í fanga­mót­töku lög­reglu­stöðv­ar­innar við Hverf­is­götu í Reykja­vík, hótað lög­reglu­manni að berja hann og móður hans.

Halldór Auðar Svansson borg­ar­full­trúi Pírata í Reykja­vík hafði ekki vit­neskju um ákæruna í sam­tali við Stundina. Halldór segir að málið verði skoðað innan raða Pírata og til greina komi að svipta Sævar Óla vara­nefnd­ar­sæti verði hann fund­inn sekur. „Þetta eru breyttar for­sendur. Það þarf að skoða hverju þetta breytir. Við þurfum að fara yfir þetta,“ segir Halldór Auðar.

Halldór Auðar segir að Sævar Óli hafi einu sinni tekið sæti í nefnd Faxa­flóa­hafnar. Aðal­maður Pírata í þeirri nefnd er Þórlaug Ágústs­dóttir.

Dæmdur fyrir rasskellingu

Rétt fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í fyrra fjall­aði DV um Sævar Óla sem var þá umboðs­maður Pírata. Sævar Óli hefur í tvígang verið dæmdur fyrir ofbeld­is­brot, árið 2005 og 2006. Árið 2013 var hann dæmdur í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir hús­brot og eign­ar­spjöll á Ráð­herra­bú­stað­inum við Tjarn­ar­götu.

Árið 2006 féll dómur í máli sýslu­manns­ins á Selfossi gegn Sævari Óla, sem hafði gripið í öxl þess fyrr­nefnda og brugðið fyrir hann fæti.

Árið 2005 var Sævar Óli dæmdur fyrir rasskella leik­skóla­kenn­ara sem hann taldi hafi lagt ólög­lega við inn­keyrslu. Í dómnum er atvika­lýs­ing á þá vegu að hann hafi skellt kon­unni á húdd bíls síns og rasskellt þétt­ings­fast. Fyrir vikið hlaut hann sex mán­aða fang­els­is­dóm.

Stuðningsyfirlýsing Pírata

Í kjöl­far frétta­flutn­ings af for­tíð Sævars Óla gáfu Píratar í Reykja­vík út út stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann, sem birt­ist rétt fyrir kosn­ing­arnar í fyrra.

Fjöl­miðla- og við­burða­tenglar Pírata í Reykja­vík, Guð­mundur Fjalar Ísfeld og Heiða Hrönn Sig­mund­ar­dóttir, sögðu flokk­inn vera stoltan „yfir því að hjálpa þessum fönix að rísa úr ösk­unni.“

Í frétt frá þeim tíma kemur fram að í yfir­lýs­ing­unni hafi verið talað um árás­ina á Selfossi sem „rysk­ingar“ og inn­brotin sem „ógæfu­spor“. Yfir­lýs­ing­unni lauk síðan með þessum orðum: „Við erum stolt af því að hafa slíkan mann inn­an­borðs“.

Samkvæmt ákærunni birt­ist stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing Pírata við Sævar um tveimur mán­uðum áður en honum er gefið að sök að hafa hótað lög­reglu­manni.

Reynt var að fá við­brögð Sævars Óla við frétt­inni, en án árang­urs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár