Dregið úr framlögum til framhaldsskólakerfisins: „Umtalsverður sparnaður“

Stytting námstíma til stúdentsprófs skilar umtals­verðum sparn­aði að því er fram kemur í rík­is­fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þrátt fyrir lækkun á framlögum munu útgjöld á hvern nem­anda aukast um 3–5% á ári að raun­virði

Framlög til fram­halds­skóla munu drag­ast saman á næstu árum ef fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gengur eftir. Gert er ráð fyrir óbreyttum fram­lögum að raun­gildi árið 2018, en eftir það munu þau lækka árlega um 0,6 pró­sent sem svarar til 630 millj­óna útgjalda­lækk­unar á árunum 2018 til 2022.

Í grein­ar­gerð áætl­un­ar­innar er til­greint að „umtals­verður sparn­aður“ komi fram í fram­haldskólakerf­inu vegna stytt­ingar námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú. „Sá sparn­aður end­ur­spegl­ast í lægri framlögum til málefna­sviðs­ins. Þrátt fyrir lækkun á framlögum til fram­halds­skólastigs­ins aukast útgjöld á hvern nem­anda um sem nemur 3–5% á ári að raun­virði,“ segir í áætl­un­inni.

Gert er ráð fyrir því að fram­halds­skólanem­endum haldi áfram að fækka. Svo virð­ist sem 25 ára reglan svo­kall­aða verði áfram í gildi, en hins vegar er stefnt að því að grípa til aðgerða til að auð­velda ein­stak­lingum sem ekki hafa lokið form­legu námi eftir grunn­skóla að afla sér við­ur­kenndrar mennt­unar. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár