Hópur Íslendinga skipuleggur mótmælaaðgerðir gegn múslimum

Íslenska Þjóð­fylk­ingin fund­aði á Café Catalínu og skipu­lagði mót­mæli: „Þetta getum við líka verið með á Aust­ur­velli, enga mosku hér.“ – „Snilldin“ – „Verđ til­bùinn međ 4 fàna ÌÞ à stöng og 6 skilti“

Hópur Íslendinga skipuleggur mótmælaaðgerðir gegn múslimum

Svo virð­ist sem Íslenska Þjóð­fylk­ingin, nýstofn­aður stjórn­mála­flokkur fólks sem er mót­fallið fjöl­menn­ingu og vill tak­marka komu inn­flytj­enda til Íslands í enn meira mæli en gert er nú þegar, sé með mót­mæli og beinar aðgerðir á prjón­unum. Þar verður spjótum sér­stak­lega beint að múslimum og rétti þeirra til að reisa sér bæna­hús hér á landi. 

Stundin hefur ekki náð tali af Helga Helga­syni, for­manni Þjóð­fylk­ing­ar­innar, í dag en á umræðu­vett­vangi flokks­ins á Facebook má sjá mynd­band af manni sýna félögum sínum spjald úr froðuplasti sem virð­ist vera í vinnslu. Þar á að standa „enga mosku hér“. Samkoman á sér stað fyrir utan Café Catalínu í Kópavogi þar sem hreyf­ingin hélt stofn­fund sinn á dög­unum.

 

 „Þetta held ég að væri mjög snið­ugt að við myndum vera með á staðnum þar sem við keyrum niður Ártúns­brekk­una (…) vera með þetta skilti á morgn­ana þegar umferðin er alveg vit­laus, við þurfum ekki að vera nema kannski fimm sex þarna, taka tíma frá 7 til 9 og vera með kaffi með okkur á brúsa, ha“ segir maður í mynd­band­inu. „Snilldin,“ svarar konan sem tekur upp mynd­bandið. Þá segir mað­ur­inn að skiltið sé úr froðuplasti og kosti lítið. „Þetta getum við líka verið með á Aust­ur­velli, enga mosku hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár