Dav­íðs­tím­inn Davíð Oddsson leiddi Sjálf­stæð­is­flokk­inn aftur til valda með rúm­lega helm­ingi atkvæða í borg­ar­stjór­ar­kosn­ing­unum 1982.

Meirihlutinn molnaði í borginni

Reykja­vík­ur­borg var um langa tíð valda­mið­stöð Sjálf­stæð­is­flokks­ins, borg­ar­stjórar flokks­ins urðu margir for­menn líka og þar með for­sæt­is­ráð­herrar. Þar til molna fór undir meiri­hlut­anum og glund­roði tók við.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði hreinan meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur allt frá því að hann bauð fyrst fram nýstofn­aður árið 1930 og nán­ast sleitu­laust til 1994.

Höf­uð­borgin varð þannig aðal­vígi og nán­ast prí­vat umráða­svæði hans lung­ann úr síð­ustu öld með ýmsum afleið­ingum.

Síðar breytt­ist það og flokk­ur­inn reytir enn hár sitt í örvænt­ingu.

Ævintýralegt fylgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði í kringum 50 pró­sent fylgi í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum allt frá fyrstu tíð og stundum miklu meira.

Hann byrj­aði í rúm­lega 53 pró­sentum 1930, fór í rúm­lega 54 pró­sent 1938, lá í kringum fimm­tíu um og eftir stríðs­árin, en rauk svo upp í næstum 58 pró­sent árið 1958. Þá var odd­viti flokks­ins Gunnar Thorodd­sen, þáver­andi borg­ar­stjóri.

Gunnar steig þó skömmu síðar til hliðar og við tók fyrsta konan sem borg­ar­stjóri, Auður Auðuns. Henni virð­ist þó ekki hafa verið treyst full­kom­lega, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár