Sjálfstæðisflokkurinn neitar að svara fyrir endurgreiðslu styrkja sem Bjarni lofaði fyrir kosningar 2009

Fyrir alþing­is­kosn­ingar árið 2009 lof­aði Bjarni Bene­dikts­son því að 55 millj­óna króna leyni­legir styrkir frá FL Group og Lands­bank­anum til Sjálf­stæð­is­flokks­ins yrðu end­ur­greiddir. Nú neitar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að svara hvort styrkirnir hafi verið end­ur­greiddir.

Sjálfstæðisflokkurinn neitar að svara fyrir endurgreiðslu styrkja sem Bjarni lofaði fyrir kosningar 2009
Styrkj­endur Enn er óupp­lýst hversu mikið af styrkj­unum hefur verið greitt til baka.

Styrkja­málið svo­kall­aða, sem kom upp fyrir kosn­ing­arnar 2009 og varð­aði stór­fellda styrki til Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er óupp­gert. Talsmenn flokks­ins, for­menn og gjald­kerar, hafa ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um málið. Fyr­ir­tækin sem taka hefðu átt við greiðsl­unum benda á Sjálf­stæð­is­flokk­inn með svör og neita að upp­lýsa hvort greiðslur hafi borist frá flokknum í sam­ræmi við boð­aðar end­ur­greiðslur.

Nýi formaðurinn
Nýi for­mað­ur­inn Af lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2009, þegar Bjarni tók við for­manns­emb­ætti. Stuttu síðar þurfti hann að takast á við hið eld­fima styrkja­mál.

Eitt af fyrstu stóru mál­unum sem Bjarni Bene­dikts­son þurfti að glíma við í emb­ætti for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins var styrkja­málið. Skömmu fyrir páska 2009 kom í ljós að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði þegið háa styrki nokkrum dögum áður en lögum um fjár­stuðn­ing við stjórn­mála­flokka var breytt árið 2006 á þann veg að sett var hámarks­upp­hæð, 300 þús­und krónur, sem stjórn­mála­flokkar máttu taka við á ári frá lög­að­ilum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk styrki frá FL …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Styrkir til stjórnmálaflokka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár