Segist ekki hafa meint „tilmæli“

Björt Ólafs­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra segir að nefnd um veit­ingu íviln­ana hafi fengið leið­sögn en ekki til­mæli. Það sé „dálitið ný ég“ að þurfa að orða hlut­ina „á lög­fræði­máli“.

Segist ekki hafa meint „tilmæli“

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir að með ummælum sínum um til­mæli til nefndar um veit­ingu íviln­ana hafi hún verið að vísa til leið­sagnar sem nefndin hafi fengið og felist í yfir­lýstri stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

Þetta kemur fram í svari Bjartar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið en eins og fram kom í morgun er ekki rétt að nefnd um veit­ingu íviln­ana til nýfjár­fest­inga hafi fengið til­mæli um breyttar áherslur við afgreiðslu umsókna. „Nefndin hefur ekki fengið slík til­mæli,“ segir í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um til­mælin sem Björt vís­aði til í þing­ræðu.

Stundin óskaði eftir skýr­ingum Bjartar á þessu. Í svari sínu segir hún: „Já það er auð­velt að útskýra það. Orðin „til­mæli“ og „leið­sögn“ eru í minni mál­notkun mjög skyld og þegar ég ræddi þetta við Oddnýju Harð­ar­dóttur í þing­inu var það sú hugsun sem ég vildi færa fram. Ég þarf að gæta að því hvernig ég orða hlut­ina, en ef ég segi alveg eins og er þá hafði ég ekki áttað mig á því að í notkun þessa orðs, í þessu sam­hengi, hefði svo ákveðna merk­ingu.  Það sem ég var að vísa til með orðum mínum er stefna rík­is­stjórn­ar­innar. Hún er mjög skýr í þessum málum og kemur fram í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Þeirri leið­sögn hefur verið komið á fram­færi til ráðu­neyt­anna allra sem vinna nú eftir henni.“

Björt bregst einnig við fréttum Stund­ar­innar og Kvenna­blaðs­ins á Facebook. „Já góðan dag­inn. Kvenna­blaðið vill meina að ég hafi sagt Oddnýju Harð­ar­dóttur ósatt. Glæp­ur­inn snýst um að ég not­aði orðið "til­mæli" þegar við vorum að ræða stefnu rík­i­s­tjórn­ar­innar um íviln­anir til meng­andi stór­iðju, sem þessi rík­is­stjórn ætlar að láta af. Stað­reyndin er sú að orðin "til­mæli" og "leið­sögn" eru í minni mál­notkun mjög skyld. Vafa­laust þarf ég að vanda mig betur, orða hlut­ina á meira lög­fræði­máli? Það verður dálitið ný ég, en ok. En svo það sé alveg skýrt þá var ég að vísa til stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Hún er mjög skýr í þessum málum og kemur fram í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Og eftir honum vinna nú öll ráðu­neytin.“ 

Þá gagn­rýnir hún Stundina fyrir að hafa ekki birt svar sitt strax. „Ég svar­aði reyndar blaða­manni Stund­ar­innar varð­andi þetta mál, en honum hefur ekki fund­ist það mik­il­vægt að birta mitt svar í sinni grein. Geri það þá bara hér,“ skrifar hún og birtir svar sitt í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár