Ritstjóri DV á skattaskjólslistanum: „Kallinn er í Panamaskjölunum“

DV birtir skýr­ingar Eggerts Skúla­sonar á því hvers vegna hann er á skatta­skjólslist­anum.

Ritstjóri DV á skattaskjólslistanum: „Kallinn er í Panamaskjölunum“

DV greinir frá því í dag að Eggert Skúlason, rit­stjóri blaðs­ins, sé meðal Íslend­inga sem áttu félag í skatta­skjólum. Eggert er nefndur þar ásamt Finni Ing­ólfs­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, Róberti Wessmann og Boga Pálssyni, mági Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Útskýrir málið í frétt DV

Eggert útskýrir málið í sam­tali við blaða­mann DV. „Ég vitna í yfir­lýs­ingu mína frá því í maí í fyrra, þar sem ég opin­ber­aði þetta. Það vekur hins vegar athygli mína að í þessu skjali er ég tengdur við félag sem ég átti ekki. Það vekur upp spurn­ingar. Ég greiddi skatta og skyldur af tekjum og málið hefur verið full rann­sakað af þar til bærum yfir­völdum,“ segir Eggert í sam­tali við blaða­mann DV.

Eggert sendi yfir­lýs­ing­una í kjöl­far þess að blaða­maður Stund­ar­innar hafði sam­band við hann til að spyrja hann út í rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á honum, en Eggert var til rann­sóknar þegar hann skrif­aði bók þar sem hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að rann­sóknir sér­staks sak­sókn­ara á efna­hags­brotum væru ofsóknir. 

Sagðist hafa átt félög erlendis

Í yfir­lýs­ing­unni sagð­ist Eggert hafa átt „félög erlendis“, en ekki var tekið fram að um skatta­skjól væri að ræða, þótt hann láti að því liggja nú:

Yfir­lýs­ing Eggerts var birt á Press­unni þann 7. maí í fyrra í kjöl­far fréttar Stund­ar­innar:

„Í árs­byrjun 2011 hóf skatt­rann­sókn­ar­stjóri rann­sókn á skatt­skilum mínum frá árinu 2005. Ég hafði greitt mér arð úr félögum erlendis frá á árunum 2006 til 2008. Nam upp­hæðin sam­tals um sjö millj­ónum króna. Ég gerði grein fyrir þessum arð­greiðslum á skatt­fram­tali mínu og greiddi fjár­magnstekju­skatt af arð­greiðsl­unum.“

„Endilega hrauna yfir kallinn“

Eggert tjáir sig um málið á Facebook-síðu sinni í dag. „Jebb. það er opin­bert. Kallinn er í Panama­skjöl­unum. Sætti rann­sókn skatta­yf­ir­valda og því máli er lokið. Greiddi skatta og skyldur. Endilega hrauna yfir kall­inn. Koma svo, ekki láta sitt eftir liggja. Opið til klukkan 18 í dag,“ skrifar hann.

Hluti listans birtur í sænskum sjónvarpsþætti

Í umfjöllun DV.is um skatta­skjólslist­ann er byggt á skjá­skoti úr þætt­inum Uppdrag Granskning í sænska rík­is­sjón­varp­inu í gær­kvöldi. Þátt­ur­inn verður sýndur á RÚV í kvöld klukkan 20.55. Þar er ekki sér­stak­lega fjallað um Íslend­ing­ana sem sjást á list­anum. Meðal þeirra eru Sindri Sindra­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Pharmaco, Sigþór Sig­mars­son, stjórn­ar­maður í Novator, Magnús Steph­en­sen, fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í XL Leisure Group, Hafþór Haf­steins­son, Kristján S. Thoraren­sen, eig­andi Heima­húss­ins, og Jóhann Hall­dórs­son, eig­andi eign­ar­halds­fé­lags sem heldur utan um höf­uð­stöðvar íslenskrar erfða­grein­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár