Vilja að Ísland veiti miklu minni þróunaraðstoð en Alþingi samþykkti

Fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar felur í sér fram­leng­ingu á stefnu rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins að því er varðar fram­lög Íslend­inga til þró­un­ar­sam­vinnu og gengur gegn þverpóli­tískri sátt sem náð­ist á Alþingi árið 2013.

Vilja að Ísland veiti miklu minni þróunaraðstoð en Alþingi samþykkti

Ísland verður áfram undir með­al­tali OECD-ríkja og langt undir með­al­tali Norð­ur­land­anna að því er varðar fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu sem hlut­fall af vergum þjóð­ar­tekjum næstu fimm árin sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ætlar að reka sams konar stefnu og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins að þessu leyti.

Árið 2013 náð­ist þverpóli­tísk sátt um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu á Alþingi. 39 þing­menn úr öllum flokkum sam­þykktu þings­á­lyktun þar sem mörkuð var sú stefna að árið 2019 rynnu 0,7% af vergum þjóð­ar­tekjum Íslend­inga til þró­un­ar­mála. Þetta eru hátt í þrefalt hærri fram­lög en núver­andi rík­is­stjórn vill verja til mála­flokks­ins árið 2019 og allt til árs­ins 2022.

Framlög Íslend­inga til þró­un­ar­sam­vinnu nema 0,25% af vergum þjóð­ar­tekjum á þessu ári og sam­kvæmt áætl­un­inni munu þau nema 0,26% út áætl­un­ar­tíma­bil fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar. Þetta eru sömu mark­mið og lagt var upp með í fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar sem sam­þykkt var í fyrra en jafn­framt í takt við til­lögur hag­ræð­ing­ar­hóps síð­ustu rík­is­stjórnar sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, sem nú er utan­rík­is­ráð­herra og fer með mál­efni þró­un­ar­sam­vinnu, átti sæti í á síð­asta kjör­tíma­bili. Lagði hóp­ur­inn til að fram­lög til þró­un­ar­mála yrðu end­ur­skoðuð og fallið yrði frá áformum um hækkun þeirra. 

 

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttirþing­kona Vinstri grænna

„Það er greini­legt að núver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands er and­stæð­ingur þró­un­ar­sam­vinnu. Það er ekk­ert annað en hneyksl­an­legt en í algjöru sam­ræmi við hug­myndir hans og Vigdísar Hauks­dóttur í hag­ræð­inga­hópi rík­is­stjórnar síð­asta kjör­tíma­bils,“ segir Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna í sam­tali við Stundina.

„Það er samt enn sorg­legra að Viðreisn og Björt fram­tíð skuli styðja þessar nið­ur­skurð­ar­hug­myndir til verk­efna sem eiga að gagn­ast þeim allra fátæk­ustu í heim­inum. Það hlýtur að koma mörgum mjög á óvart.“

Í þings­á­lykt­un­inni sem sam­þykkt var árið 2013 var sett fram áætlun um alþjóð­lega þró­un­ar­sam­vinnu Íslands á árunum 2013 til 2016. Vigdís Hauks­dóttir var eini þing­mað­ur­inn sem greiddi atkvæði gegn mál­inu og vakti atkvæði hennar mikla hneykslan.

Í áætl­un­inni var lagt upp með að hlut­fall þró­un­ar­fram­laga, sem var 0,26% árið 2013, myndi hækka jafnt og þétt og nema 0,42% árið 2016. Með þessu móti gæti Ísland varið 0,7% af þjóð­ar­tekjum til þró­un­ar­mála árið 2019 í sam­ræmi við við­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna um fram­lög iðn­ríkja til mála­flokks­ins. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Bjartrar fram­tíðar voru á meðal þeirra sem studdu og

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár