Prestur líkir Vantrú við hryðjuverkasamtökin ISIS

Örn Bárður Jónsson sókn­ar­prestur birtir mynd af vopn­uðum manni merktum Vantrú skjóta kirkj­unnar menn með ásjónu engla í höf­uðið. „Ég fæ ekki orða bund­ist,“ segir for­maður Vantrúar.

Teikningin sem Örn Bárður birtir
Teikn­ingin sem Örn Bárður birtir Á mynd­inni er ýjað að því að Vantrú sé í reynd að skjóta kirkj­unnar menn í höf­uðið, líkt og ISIS.

Séra Örn Bárður Jónsson, sókn­ar­prestur í Nes­kirkju, líkir guð- og trú­leys­is­sam­tök­unum Vantrú við hryðju­verka­sam­tökin ISIS Facebook-færslu. 

Örn Bárður birtir mynd á Facebook-síðu sinni þar sem spurt er hvort það sé stigs- eða eðl­is­munur á Vantrú og hryðju­verka­sam­tök­unum ISIS. Á mynd­inni sést maður, vopn­aður hríð­skota­byssu og merktur ISIS og Vantrú, skjóta vængj­aða kirkj­unnar menn í höf­uðið. Á mynd­inni er spurn­ingin: „Stigs- eða eðl­is­munur?“

Uppfært 29. ágúst kl. 17:20: Örn Bárður hefur beðist afsök­unar á teikn­ing­unni og seg­ist hafa farið fram úr sér. „Ég vil biðj­ast afsök­unar á að hafa vegið ómak­lega að félögum í Vantrú og öðrum sem kunna að hafa tekið þetta til sín. Mér þykir leitt að hafa látið þetta frá mér fara og bið þolendur að fyr­ir­gefa mér mis­tökin,“ skrifar Örn á bloggi sínu, en hann hefur tekið mynd­ina út af Facebook-síðu sinni. 

 

Örn Bárður Jónsson
Örn Bárður Jónsson Sókn­ar­prestur í Nes­kirkju.

Annar prestur, séra Carlos A. Ferrer mót­mælir birt­ing­unni. „Klárlega eðl­is­munur. Vantrú beitir tján­inga­frelsi, hin vopnum. ISIS tekur af lífi, Vantrú vegur að æru. Það er ekki gott að minnka umræð­una svona.“

Félagasamtök um trúleysi tengd við ofbeldi

Sindri Guð­jóns­son, for­maður Vantrúar, gerir athuga­semd við teng­ingu Arnar Bárðar á Vantrú við ISIS, ekki síst á þeim grund­velli að Vantrú stundar ekki morð eða annað ofbeldi.

„ISIS drepur og nauðgar.“

„Ég fékk senda skjá­mynd af Facebook vegg séra Arnar Bárðar, prests. Þar spyr hann hvort það sé stigs eða eðl­is­munur á Vantrú og ISIS. Ég fæ ekki orða bund­ist. Við spyrjum mál­efna­lega hvort það sé eðli­legt að við borgum félags­gjald í félög sem við til­heyrum ekki. ISIS drepur og nauðgar. Kastar fólki ofan af bygg­ingum. Heggur höf­uðið af fólki og tekur upp á mynd­band. Gera hluti á torgum, sem Nasistar myndu gera í felum. Við skrifum greinar á inter­netið. Er það sam­bæri­leg hegðun? Hvernig eru sið­ferð­is­við­mið þessa manns? Þetta er tals­maður stofn­unar sem þiggur meira en 4 millj­arða á fjár­lögum. Væri ekki nær að svara efn­is­lega mál­flutn­ingi Vantrúar? Er það kristi­legt að líkja okkur í Vantrú við ISIS? Og er það Vantrú sem gengur fram með öfgum?“

Örn Bárður sat meðal ann­ars í stjórn­laga­ráði sem mót­aði drög að nýrri stjórn­ar­skrá. Hann lærði meðal ann­ars predik­un­ar­fræði og boð­miðlun í Yale Divinity School í Banda­ríkj­unum.

Trúuðum fækkar hratt

Fyrr í vik­unni voru birtar nið­ur­stöður könn­unar sem sýndi að aðeins helm­ingur Íslend­inga væri trú­aður. Spurt var: „Burtséð frá því hvort þú sækir trú­ar­legar sam­komur eða staði, myndir þú segja að þú værir trú­aðir ein­stak­lingur, ekki trú­aður ein­stak­lingur eða trú­leys­ingi?“ 51 pró­sent sögð­ust vera trú­aðir, en í sömu könnun árið 2012 sögð­ust 57 pró­sent vera trú­aðir. Könnunin var hluti af alþjóð­legri könnun Gallups. Meðaltal trú­aðra í heim­inum öllum er 63 pró­sent.

Vantrú er félag trú­leys­ingja sem rekur vefritið van­tru.is. Félagið hefur þá yfir­lýstu stefnu að „veita mót­vægi við boðun hind­ur­vitna og vinna gegn áhrifum þeirra í sam­fé­lag­inu“. Félagið var stofnað árið 2004 og hafa margar greinar verið skrif­aðar um boð­skap Arnar Bárðar á vef­inn.

Bæði félagið Vantrú og Sindri Guð­jóns­son, for­maður þess, tóku vel í fyrr­greinda afsök­un­ar­beiðni Arnar Bárðar. „Kann vel að meta afsök­un­ar­beiðn­ina, og hún er tekin til greina,“ skrif­aði Sindri við blogg Arnar Bárðar.

Ég fékk senda skjá­mynd af Facebook vegg séra Arnar Bárðar, prests. Þar spyr hann hvort það sé stigs eða eðl­is­munur á...

Posted by Sindri Guð­jóns­son on Friday, 28 August 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár