Ólafur Ragnar boðar til blaðamannafundar - býður hann sig aftur fram?

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti hefur boðað fjöl­miðla á Bessa­staði klukkan 16.15 í dag.

Ólafur Ragnar boðar til blaðamannafundar - býður hann sig aftur fram?

Ólafur Ragnar Grímsson for­seti hefur boðað til blaða­manna­fundar á Bessa­stöðum síðar í dag. Hann gefur ekki upp efni fund­ar­ins.

Í frétta­til­kynn­ingu til fjöl­miðla er gefið upp númer hjá Örnólfi Thors­syni for­seta­rit­ara og sagt að „nán­ari upp­lýs­ingar“ fáist þar. Örnólfur sagð­ist í sam­tali við Stundina ekki geta veitt neinar nán­ari upp­lýs­ingar.

Spurður um efni fund­ar­ins segir Örnólfur: „Það kemur bara á dag­inn.“

Aðspurður hvort Ólafur Ragnar væri að fara að bjóða sig fram að nýju til emb­ættis for­seta Íslands sagði Örnólfur: „Ég veit það ekki.“

Uppfært: Ólafur Ragnar til­kynnti á fund­inum að honum hafi aftur snú­ist hugur um að hætta sem for­seti og muni því bjóða sig fram á ný.

Fimmtán ein­stak­lingar hafa boðað fram­boð sitt til for­seta. Nú síð­ast steig fram Magnús Ingi Magn­ús­son, betur þekktur sem Maggi í Texas­borg­urum, og sagð­ist bjóða frían ost­borg­ara með frönskum fyrir með­mæli, en 1.500 und­ir­skriftir þarf til að öðl­ast kjör­gengi í for­seta­kosn­ing­unum.

Eft­ir­far­andi ein­stak­lingar hafa boðað fram­boð:

Ari Jós­eps­son, youtube-lista­maður

Andri Snær Magnason rit­höf­undur

Ástþór Magn­ús­son athafna­maður

Benedikt Kristján Mewes mjólk­ur­fræð­ingur

Bæring Ólafsson for­stjóri

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir rit­höf­undur

Guð­mundur Franklín Jónsson athafna­maður

Guðrún Margrét Páls­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Halla Tóm­as­dóttir athafna­kona

Heimir Örn Hólmars­son raf­magns­tækni­fræð­ingur

Hildur Þórð­ar­dóttir, heil­ari og þjóð­fræð­ingur

Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi

Magnús Ingi Magn­ús­son veit­inga­maður

Sturla Jónsson bíl­stjóri

Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár