Mest lesnu fréttir ársins: Laugarásvídeó, Sveinn Andri og Ísmaðurinn

Þetta eru mest lesnu fréttir Stund­ar­innar á árinu sem er að líða.

Mest lesnu fréttir ársins: Laugarásvídeó, Sveinn Andri og Ísmaðurinn

15 

 

Bréf til nauðgara

Bryn­hildur Yrsa Guð­munds­dóttir var ein þeirra kvenna sem deildu reynslu sinni í lok­uðum hópi á Facebook, Beauty tips, þegar #þöggun bylt­ingin fór af stað. Henni hafði verið nauðgað af tveimur mönnum á þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum fyrir 20 árum síðan. Bryn­hildur sagði síðan sögu sína í Stund­inni, þar sem sam­skipti hennar við menn­ina voru birt.

Hún sendi þeim bréf þar sem hún rakti sína hlið mála og sagð­ist hafa mætt mjög drukkin á svæðið, svo drukkin að hún gat ekki einu sinni tekið þátt í því að tjalda. „Ég get ekki sagt hvernig þetta byrj­aði en ég get sagt hvernig ég upp­lifði þetta,“ skrif­aði Bryn­hildur.

Nauðgað af þremur mönnum
Nauðgað af þremur mönnum Bryn­hildur hafði hlakkað lengi til að fara á þjóð­há­tíð og drakk sig ofurölvi. Hún vissi ekki fyrr en hún vakn­aði upp við að vinir hennar voru að hafa við hana kyn­ferð­is­mök.

14 

 

Guðbergur um Hallgrím: „Hvaða kynvillingur hefur haft svona slæman smekk?“

Í októ­ber birti Stundin frétt um pistil eftir Guðberg Bergsson í DV sem vakti hörð við­brögð hjá mörgum. Í pistl­inum hædd­ist Guð­bergur að Hall­grími Helga­syni rit­höf­undi sem hafði stuttu áður stigið fram og sagt frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hann var beittur 22 ára gam­all. Hall­grímur segir frá ofbeld­inu í skáldævi­sögu sinni, Sjó­veikur í München, og ræddi það meðal ann­ars í við­tölum við Frétta­tím­ann og Stundina.

„Þess vegna sagði kvik­indi: Hvaða kyn­vill­ingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við sak­lausa þjó­hnappa hans? Líklega mun hið sanna seint koma í ljós. Til þess þyrfti skáldið, að eigin sögn, að skrifa þús­und blað­síðna bók með brenn­andi efni við 1000 gráðu skap­andi hita,“ skrif­aði Guð­bergur.

Umdeildur
Umdeildur „Þess vegna sagði kvik­indi: Hvaða kyn­vill­ingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við sak­lausa þjó­hnappa hans?,“ skrif­aði Guð­bergur

13 

 

Enn að berjast við heilaþvott Votta Jehóva

Það vakti mikla athygli þegar syst­urnar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand gerðu til­raun til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­sæt­is­ráð­herra.

Daginn eftir að Vísir hafði greint frá mál­inu kom 5. tölu­blað Stund­ar­innar út en þar var við­tal við Hlín, þar sem hún ræddi meðal ann­ars um upp­eldið í Vottum Jehóva, upp­reisn og sjálfs­vinnu til að losna undan heila­þvotti söfn­uð­ar­ins.

Viðtalið var tekið áður en Hlín reyndi að fjár­kúga Sigmund Davíð á þeim for­sendum að hún hefði gögn undir höndum sem sýndu fram á fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, útgef­anda og einn eig­anda DV. Hvað sem því leið gaf við­talið les­endum inn­sýn í hug­ar­heim umtöl­uð­ustu konu Íslands.

Kúgaði Sigmund
Kúgaði Sigmund Eitt af skrýtn­ari og jafn­framt merki­legri fréttum árs­ins var fjár­kúgun systr­anna Hlínar Ein­ars­dóttur og Malínar Brand á Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni.

12 

 

Ísmaðurinn í viðtali: Fastur í ísnum í viku með þriggja ára dóttur sína

Stundin sagði frétt af óförum Ísmanns­ins, eins og Sigurður Pét­urs­son skip­stjóri er gjarna kall­aður. Fréttin vakti hins vegar athygli fyrir aðrar sakir en les­endum virt­ist blöskra að Sigurður sem er 67 ára gam­all væri giftur 19 ára stúlku.  

Sigurður er búsettur á Græn­landi og er stúlkan þaðan. Hann hafði stofnað til sam­bands við hana er hún var fimmtán ára og átti með henni barn sem hún fæddi 16 ára gömul. Í kjöl­far frétt­ar­innar var birtur pist­ill á femínska vefrit­inu Kven­frelsi undir fyr­ir­sögn­inni „Er Ísmað­ur­inn kyn­ferð­is­brota­maður?“ en þar velti höf­undur því fyrir sér hvort Sigurður hafi brotið lög með sam­bandi sínu við stúlk­una.

Ísmaðurinn
Ísmað­ur­inn Sigurður ásamt sam­býl­is­konu sinni, hinni nítján ára Önnu Man­ikut­dlak.

11

 

Flúði heimabæinn eftir hópnauðgun

Á þeim 25 árum sem liðin eru frá stofnun Stíga­móta hafa um 7.000 konur sagt frá 10.000 nauðgurum. Sögurnar eru ýmiss konar, eins og þessar konur segja frá.

Hafdísi Björg Rand­vers­dóttur er ein þess­ara kvenna. Hún greindi frá því í við­tali við Stundina að henni hefði verið nauðgað af tveimur strákum þegar hún var fjórtán ára. Strák­arnir sem um ræðir voru eldri en hún, 18 og 19 ára. Þeir voru félags­lega sterkir og til­heyrðu stórum vina­hópi.

Hafdís stóð ein uppi eftir nauðg­un­ina þar sem málið var fellt niður hjá lög­reglu og hún sögð ljúga. Annar ger­and­inn áreitti hana á götum úti og vinir hans, og hennar, tóku þátt í áreit­inu.

 

Gengu í lið með gerendunum
Gengu í lið með ger­end­unum Hafdís stóð ein uppi eftir nauðgun þar sem málið var fellt niður hjá lög­reglu og hún sögð ljúga. Annar ger­and­inn áreitti hana á götum úti og vinir hans - og hennar - tóku þátt í áreit­inu.

10

 

Mun ekki gefa börnum nammi framar

Frétt um Hafliða Ragn­ars­son, marg­verð­laun­aðan konfekt­gerð­ar­mann, vakti mikla athygli á árinu. Hann sagð­ist vera hættur að bjóða börnum að smakka konfektið sitt eftir að honum hafði verið lýst sem „barna­perra“ í fjöl­miðlum. „Ég er búinn að banna starfs­fólk­inu að gefa börn­unum nammi og mun ekki gera það sjálfur í fram­tíð­inni heldur,“ sagði Hafliði.

Stuttu fyrir birt­ingu frétt­ar­innar hafði lög­reglu borist tvær til­kynn­ingar vegna karl­manns sem gæfi börnum sæl­gæti í Graf­ar­holti. Rætt var við Auði Hann­es­dóttur, móður sex ára stúlku sem hafði þegið sæl­gæti frá manni nálægt frí­stunda­heim­il­inu Stjörnu­landi nokkrum dögum áður. Auði var mjög brugðið vegna atviks­ins og lét starfs­fólk frí­stunda­heim­il­is­ins strax vita. Í kjöl­farið var sendur póstur á alla for­eldra.

Síðan kom í ljós að málið var mjög sak­laust, en um var að ræða Hafliða sem þekkti stúlku í hópnum og gaf börn­unum súkkulaði.

Í kjöl­far frétt­ar­innar skrif­aði Óttar Guð­munds­son geð­læknir pistil um málið sem var með þeim mest lestu á árinu sem er að líða.

Konfektgerðarmaður
Konfekt­gerð­ar­maður Hafliða Ragn­ars­son er hættur að bjóða börnum að smakka konfekt sitt aftur.

9 

„Þetta fór eins og mikill meirihluti svona mála“

Hildur Björk Mar­grét­ar­dóttir er eitt af and­lit­unum á bak við erf­iða töl­fræði í kyn­ferð­is­brota­málum. Hún seg­ist hafa verið mis­notuð í æsku af manni sem tengd­ist henni. Hún lýsti brotum manns­ins, afleið­ingum þeirra og hvernig hún náði að vinna sig út úr ofbeld­inu. Hildur seg­ist hafa náð mestum bata þegar hún fór að opna sig um málið.

Hún kærði mann­inn til lög­reglu fyrir nærri tíu árum síðan en mál­inu var vísað frá þar sem um var ræða orð gegn orði. Meintir ger­endur eru aðeins dæmdir sekir í fimmta hverju til­kynntu kyn­ferð­is­broti gegn börnum.

Hildur Björk Margrétardóttur
Hildur Björk Mar­grét­ar­dóttur Hildur er eitt af and­lit­unum á bak við erf­iða töl­fræði í kyn­ferð­is­brota­málum. Hún seg­ist hafa verið mis­notuð í æsku af manni sem tengd­ist henni.

7

 

Nauðgað af þjóðþekktum manni og þögnin var þungbær

Ósk Gunn­laugs­dóttir var ein þeirra kvenna sem rauf þögnin á Facebook-hópnum Beauty tips undir myllu­merk­inu þöggun. Ósk hefur glímt við áfallastreituröskun frá því að henni var nauðgað, þegar hún var sautján ára, af þjóð­þekktum manni.

Í við­tali við Stundina sagð­ist hún hafa upp­lifað mik­inn létti þegar hún sagði frá sögu sinni á Beauty tips. „Almenn­ings­á­litið er svo grimmt. Enn í dag koma allar þessar raddir upp; „Hvað gerði hún til að eiga þetta skilið?“, „af hverju var hún heima hjá honum?“ eða „hann er svo flottur að hann þarf ekki að nauðga“,“ sagði Ósk.

Ósk Gunnlaugsdóttir
Ósk Gunn­laugs­dóttir Ósk var ein þeirra kvenna sem rauf þögnin á Facebook-hópnum Beauty tips undir myllu­merk­inu þöggun.

6

 

Tólf ára drengur lést af óútskýrðum orsökum

Sá vof­vei­legi atburður átti sér stað í sumar að Aron Andri Hall Arn­ars­son lést í svefni eftir að hann kom heim í Graf­ar­holtið úr Flór­ídaferð. Dán­ar­or­sökin var óút­skýrð og rann­sökuð af þýskum sér­fræð­ingi.

Andlát Arons var fjöl­skyld­unni gríð­ar­legt áfall og blésu aðstand­endur for­eldra hans, Sig­ur­rósar Gísla­dóttur og Arnars Más Hall Guð­munds­sonar, til söfn­unar til að styrkja þau vegna kostn­að­ar­ins sem fylgir útför, töp­uðum vinnu­stundum og fleiri ver­ald­legum rösk­unum sem hljót­ast af ást­vina­missi.

Stundin sendir aðstand­endum hans sam­úð­ar­kveðjur.

Aron Andri með systur sinni
Aron Andri með systur sinni Hann skilur eftir sig þriggja ára og 18 ára systur.

5

 

Ummæli eiginkonu Bjarna ekki í samræmi við gögn af framhjáhaldssíðu

IceHot1-mál Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra vakti gíf­ur­lega athygli á árinu. Upp­lýs­ingum af fram­hjá­halds­síð­unni Ashley Madison var lekið á netið í ágúst og þar var eitt net­fang sem skar sig úr, bjarniben@n1.is.

Svo fór að eig­in­kona Bjarna, Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, steig fram eftir viku af gróu­sögum og upp­lýsti á Facebook-síðu sinni að þau hjónin hafi búið til aðgang­inn í sam­ein­ingu. Hún full­yrti að eftir það hefði aðgang­ur­inn legið ósnertur. Allt bendir til að það hafi ekki verið fylli­lega rétt þar sem aðgang­ur­inn hafði verið upp­færður síðar á árinu, líkt og Vísir greindi frá.

Í frétt Stund­ar­innar voru sjálf­virkar færslur á árunum 2011 og 2013 tengdar við aðrar færslur og var það leið­rétt.

Fjármálaráðherra
Fjár­mála­ráð­herra IceHot1-mál Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra vakti gíf­ur­lega athygli á árinu.

3

 

Stúlka kærð fyrir að kæra lögreglumann fyrir nauðgun

Rétt tæp­lega 46 þús­und manns lásu frétt sem birt­ist í byrjun nóv­em­ber um mál Tönju M. Ísfjörð.

Hún leit­aði til lög­regl­unnar eftir heim­sókn á hót­el­her­bergi eldri manns sem hún þekkti og treysti, en hann var fyrr­ver­andi öku­kenn­ari hennar og starf­andi lög­reglu­maður.

Hún kærði hann fyrir nauðgun, en eftir að rík­is­sak­sókn­ari vís­aði mál­inu frá kærði mað­ur­inn hana fyrir rangar sak­ar­giftir. „Mér fannst allt bregð­ast, bæði rétt­ar­kerfið og fjöl­skyldan,“ útskýrði Tanja.

Lög­reglu­mað­ur­inn sagði málið hins vegar ofurein­falt: „Hún hefur mig þarna fyrir rangri sök.“

Kærði lögreglumann
Kærði lög­reglu­mann Maðurinn var að vinna fyrir lög­regl­una á þeim tíma sem hann var kærður fyrir ­nauðgun. Hann vék tíma­bundið frá störfum en hefur nú snúið aftur. Myndin af lög­reglu­mann­inum er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint.

2, 4 og 8

 

Mál Sveins Andra Sveinssonar

Fréttir um lög­mann­inn Svein Andra Sveins­son vöktu gíf­ur­lega athygli á árinu sem er líða. Fréttir um sam­skipti hans við ungar konur rað­ast í annað, fjórða og átt­unda sætið á lista yfir mest lesnu fréttir árs­ins.

Fyrsta fréttin af mál­efnum Sveins Andra birt­ist í lok maí og sú sem lenti í fjórða sæti list­ans fjall­aði um að vin­kona Rebekku Rós­in­berg, tví­tugrar stúlku sem stóð þá í fað­ern­is­máli við Svein Andra og hafði komið fram í við­tali við DV í fyrra þar sem hún sagði frá reynslu sinni af Sveini Andra, væri að safna reynslu­sögum af lög­mann­inum á Facebook-hópnum Beauty Tips. 

Umræð­urnar mörk­uðu upp­haf Beauty tips bylt­ing­ar­innar #þöggun, sem fjallað var um í erlendum miðlum.

Næsta frétt fjall­aði um eft­ir­mála þessa máls og þá stað­reynd að DNA-próf hefði sýnt fram á að Sveinn Andri væri í raun barns­faðir Rebekku. Þetta var næst mest lesna frétt Stund­ar­innar á árinu, en um 47 þús­und manns lásu. 

Að lokum greindi Stundin frá því í des­em­ber­mán­uði að Facebook-sam­skipti Sveins Andra við Ástríði Rán Erlends­dóttur, sem lést á Vogi í fyrra, hefðu ratað í skáld­sög­una Líkvaka.

Lögmaður
Lögmaður Fréttir um Sveinn Andri Sveins­son voru mikið lesnar

1

 

Ljóta leyndarmálið á vídeóleigunni

Mest lesna frétt árs­ins 2015 á Stund­inni var umfjöllun um Laug­ar­ásvídeó Gunnars Jós­efs­sonar og kyn­ferð­is­brota­menn sem hafa verið við­loð­andi mynd­banda­leig­una. Alls lásu ríf­lega 64 þús­und manns frétt­ina.

Sonur Gunnars til­kynnti meint kyn­ferð­is­of­beldi föður síns til lög­reglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völd fjar­lægðu dóttur eig­and­ans af heim­il­inu. Ung kona lýsti hræði­legri reynslu sem hún seg­ist hafa orðið fyrir í bak­her­bergi leig­unnar þegar hún var sex ára gömul. Þar störf­uðu tveir dæmdir kyn­ferð­is­glæpa­menn. Þrátt fyrir þetta hefur leigan hlotið jákvæða athygli og fyrir nokkrum árum var blásið til fjár­söfn­unar henni til stuðn­ings.

DV greindi frá því nýverið að víd­eó­leigan hættir rekstri nú um ára­mótin.

Eigandi vídeóleigunnar
Eigandi víd­eó­leig­unnar Gunnar Jós­efs­son hefur rekið Laug­ar­ásvídeó í 30 ár. Hjá honum störf­uðu dæmdir kyn­ferðis­brota­menn en auk þess hafa alvar­legar ásak­anir verið bornar á hann sjálfan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár