Maggi á Texasborgurum í forsetaframboð - býður hamborgara fyrir meðmæli

Enn bæt­ist í hóp for­seta­fram­bjóð­enda. Nýjasti boð­aði fram­bjóð­and­inn ætlar að bjóða upp á ham­borg­ara fyrir með­mæli.

Maggi á Texasborgurum í forsetaframboð - býður hamborgara fyrir meðmæli

„Ég sá mér leik á borði,“ segir Maggi á Texas­borg­urum, fullu nafni Magnús Ingi Magn­ús­son, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­seta. Magnús bæt­ist í hóp sem telur á annan tug manns sem vill verða for­seti Íslands í kom­andi kosn­ingum í júní.

„Það eru svo margir fram­bjóð­endur fram­bæri­legir að bjóða það sama.
Ég til mig eiga jafna mögu­leika og þeir sem hafa boðið sig fram.
Það er eng­inn ofur­sterkur eða neinn með eitt­hvað batt­erí á bak­við sig, eins og Þóra [Arn­órs­dóttir] sein­ast,“ útskýrir Maggi, um aðdrag­and­ann.

Gefur hamborgara

Maggi þarf 1.500 und­ir­skriftir til að öðl­ast kjör­gengi sem for­seti, en hann ætlar að beita helsta vopni sínu í þeirri bar­áttu.

Maggi ætlar að bjóða upp á frían ham­borg­ara og franskar í skiptum fyrir með­mæli á veit­inga­staðnum sínum, Texas­borg­urum. „Svo­leiðis ætla ég að safna með­mæl­endum,“ segir hann. 

Hann kveðst ekki ótt­ast að verða gagn­rýndur fyrir að múta fólki fyrir með­mæli.

„Er ég að borga þeim? Ég er að bjóða þeim upp á ham­borg­ara. Fólk er nú að gefa á kosn­inga­skrif­stof­unum kaffi og með því. Ég hlýt að mega bjóða fólki upp á ham­borg­ara. Ég sé engan mun þarna á milli, nema þetta er bara veg­legra,“ segir hann.

Það atvik varð í Kola­port­inu um helg­ina að Guð­mundur Franklín Jónsson, annar for­seta­fram­bjóð­andi, bað Magga um að skrifa undir með­mæli fyrir for­seta­fram­boð hans, en fékk synjun á grund­velli yfir­vof­andi for­seta­fram­boðs Magga sjálfs.

Eft­ir­far­andi ein­stak­lingar hafa boðað fram­boð til for­seta:

Ari Jós­eps­son, youtube-lista­maður
Andri Snær Magnason rit­höf­undur
Ástþór Magn­ús­son athafna­maður
Benedikt Kristján Mewes mjólk­ur­fræð­ingur
Bæring Ólafsson for­stjóri
Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir rit­höf­undur
Guð­mundur Franklín Jónsson athafna­maður
Guðrún Margrét Páls­dóttir
Halla Tóm­as­dóttir athafna­kona
Heimir Örn Hólmars­son raf­magns­tækni­fræð­ingur
Hildur Þórð­ar­dóttir, heil­ari og þjóð­fræð­ingur
Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi
Sturla Jónsson bíl­stjóri
Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur

Fréttatilkynning Magga á Texasborgurum:

Ég, und­ir­rit­aður, Magnús Ingi Magn­ús­son veit­inga­maður, hef ákveðið að gefa kost á mér til emb­ættis for­seta Íslands og tel mig þannig geta gert gagn og komið mörgu góðu til leiðar. Í þessu emb­ætti er hægt að vinna að hags­munum heild­ar­innar þvert á alla flokka, valda­blokkir og hags­muna­öfl. Ég hef vilja og dug til að leiða fólk saman og þykir vænt um land okkar og þjóð.

Hér fyrir neðan geri ég grein fyrir þeim málum sem ég legg mesta áherslu á, bak­grunni mínum og því sem ég stend fyrir.

Ég fædd­ist árið 1960 og hlaut heil­brigt og gott upp­eldi á venju­legu heim­ili.

Ég bý að góðri menntun og reynslu frá Íslandi, hef rekið mitt eigið fyr­ir­tæki í langan tíma og verið í sam­bandi við fjöld­ann allan af góðu fólki í gegnum tíð­ina.

Ég er kvæntur til tíu ára Analisa Montecello frá Fil­ipps­eyjum.

Ég er trú­aður krist­inn maður og ber virð­ingu fyrir öllum trú­ar­brögðum. Eig­in­kona mín er kaþ­ólskrar trúar.

Ég er ekki tengdur neinum stjórn­mála­flokki og hef kosið eftir sann­fær­ingu hverju sinni.

Ég vil jafn­rétti kvenna og karla og vil vinna að jafn­rétti fyrir alla.
Ég vil að við tökum vel á móti öllu erlendu fólki sem hingað kemur og að við komum fram við það af virð­ingu.

Ég er fylgj­andi öfl­ugu vel­ferð­ar­kerfi og vil efla heil­brigð­is­kerfið. Ég er hlynntur einka­væð­ingu sam­hliða rík­is­reknu heil­brigð­is­kerfi.

Ég er fylgj­andi öfl­ugu mennta­kerfi með áherslu á sköpun og frum­kvæði þar sem allir hafa jöfn tæki­færi á öllum sviðum sam­fé­lags okkar.
Ég er fylgj­andi skýrum leik­reglum sem gera okkur kleift að veita bæði ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum athafna­frelsi innan skýrs ramma. Ég tel slíkt athafna­frelsi og sköp­un­ar­gleði vera for­sendu fram­fara í okkar sam­fé­lagi. 

Ég er með­mæltur því að virkja auð­lindir þjóð­ar­innar. Við verðum að kom­ast að sam­komu­lagi um hvaða orku­lindir á að virkja og hverjar á að vernda. Þetta sam­komu­lag verður að vinna af heil­indum og með víð­tækri fram­tíð­ar­sýn.

Ég hef ekki áhuga á inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en er hlynntur þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort taka eigi upp við­ræður við sam­bandið.

Ég er fylgj­andi skýrum leik­reglum og vil að Bessa­staðir séu vett­vangur umræðu og far­vegur fyrir vilja þjóð­ar­innar. Ég tel því mik­il­vægt að fá nið­ur­stöðu í stjórn­ar­skrár­málin.

Ég á ekki pen­inga á aflandseyjum og skatta­skjólum.

Ég tala og skil ensku, dönsku, sænsku og norsku.

Áhugamál mín eru matur, ferða­lög inn­an­lands og erlendis, mynd­list, tón­list, mót­or­hjóla­ferðir og sam­neyti við góða vini og vina­hópa.

Ég er stoltur af minni fer­il­skrá. Mér hefur auðn­ast að fram­kvæma margt og hef starfað með góðu fólki hér heima og erlendis.

Ég hef starfað mikið úti á landi, t.d. í Mun­að­ar­nesi í Borg­ar­firði, Laug­ar­gerð­is­skóla á Snæ­fells­nesi og Laugum í Þing­eyj­ar­sýslu.

Svo hef ég ferð­ast mikið um landið allt og tekið upp þætti í Eldhúsi meist­ar­anna á ÍNN og kynnst skemmti­legu fólki.

Ég er mat­reiðslu­meist­ari og veit­inga­maður. Sautján ára fór ég í Hótel- og veit­inga­skól­ann að læra til mat­reiðslu­manns. Vann á milli­landa­skipum áður en ég fór að læra kokk­inn á Hótel Sögu. Eftir það vann ég á veit­inga­húsum í Reykja­vík, sem skóla­bryti og kenn­ari að Laugum í Þing­eyj­ar­sýslu og kokkur á sumrin þar. Fór til Þránd­heims í Noregi og vann á Royal Garden-hót­el­inu. Stofnaði eigin veit­inga­rekstur árið 1988 og rak veit­inga­húsið Árberg í Ármúla, veit­inga­húsið Mun­að­ar­nes í Borg­ar­firði, Hótel Eldborg á Snæ­fells­nesi og mötu­neyti hjá rík­is­stofn­unum. Starfaði á skemmti­ferða­skip­inu Black Watch og rak veit­inga­húsið Sjanghæ við Laugaveg. Síðustu árin hef ég svo rekið Sjáv­ar­bar­inn og Texas­borg­ara úti á Granda og veislu­þjón­ust­una Mína menn sam­hliða því. Árum saman hef ég haldið úti þátt­unum Eldhús meist­ar­anna á sjón­varps­stöð­inni ÍNN, þar sem mottóið er afþrey­ing, skemmtun og fróð­leikur. Þar tek ég menn tali sem eru tengdir mat alls­staðar að af land­inu og eru þætt­irnir orðnir um 300 tals­ins.

Ég hyggst fjár­magna mitt fram­boð sjálfur en tek á móti fram­lögum ef ein­hverjir vilja styrkja mig sam­kvæmt þeim reglum sem um það gilda.
Með­mæla­listar liggja frammi á Texas­borg­urum. Ég býð öllum sem skrifa undir Texas-ost­borg­ara með frönskum fyrir við­vikið. Allir eru vel­komnir og ég hvet lands­byggð­ar­fólk sér­stak­lega til að koma við á Texas­borg­urum þegar það á leið í bæinn. Skilyrði fyrir und­ir­skrift á með­mæla­lista er að vera íslenskur rík­is­borg­ari og hafa gild skil­ríki með­ferðis.

Virð­ing­ar­fyllst,
Magnús Ingi Magn­ús­son

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár