Kvennafrídagurinn endurvakinn í ár

Kvenna­hreyf­ingin og heild­ar­sam­tök launa­fólks ætla að boða til úti­fundar 24. októ­ber næst­kom­andi klukkan 15, undir yfir­skrift­inni kjara­jafn­rétti strax. Allar konur eru hvattar til þess að leggja niður störf snemma þann dag og fylkja liði niður á Aust­ur­völl. Vonast er til þess að tug­þús­undir kvenna taki þátt.

Forsíða Morgunblaðsins 25. október 1975
Forsíða Morg­un­blaðs­ins 25. októ­ber 1975 Um 25 þús­und konur tóku sér kvenna­frí árið 24. októ­ber 1975 og mættu á kröfufundi víðs vegar um land. Vonast er til þess að enn fleiri mæti í ár. Mynd: timarit.is

Þann 24. októ­ber næst­kom­andi er 41 ár liðið frá því að 25 þús­und íslenskar konur lögðu niður störf og fylktu liði á Lækj­ar­torg. Mark­miðið var að sýna fram á mik­il­vægi vinnu­fram­lags kvenna og það tókst vel. Atvinnu­lífið lam­að­ist og máttur kvenna­sam­stöð­unnar varð öllum ljós um stund. Í ár á að end­ur­taka leik­inn, eins og hefur verið gert nokkrum sinnum síðan, eða árin 1985, 2005 og 2010.

Fundinn ber upp í sömu viku og Alþing­is­kosn­ingar fara fram. „Það er auð­vitað ekki oft sem 24. októ­ber lendir svo skömmu fyrir Alþing­is­kosn­ingar og auð­vitað von­umst við til þess að úti­fund­ur­inn verði til þess að jafn­rétt­is­mál verði mál mál­anna hjá nýrri rík­is­stjórn,“ segir Maríanna Trausta­dóttir, sér­fræð­ingur í jafn­réttis- og umhverf­is­málum hjá ASÍ, og ein margra kvenna sem koma að skipu­lagn­ingu við­burð­ar­ins. Að honum standa heild­ar­sam­tök launa­fólks, ASÍ, BSRB, BHM, KÍ og SSF, og kvenna­hreyf­ingin öll, með Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, Kven­fé­laga­sam­band Íslands, Stígamót, Kvenna­at­hvarfið, Knúz, Tabú og Fem­inísta­fé­lag HÍ inn­an­borðs.

„Kosn­ing­arnar eru þó ekki ástæðan fyrir því að við ákváðum að blása til kröfufundar nú, heldur voru það nið­ur­stöður launa­kann­ana und­an­far­inna vikna og mán­aða, meðal ann­ars frá BHM, VR og SFR. Allar eru þær konum mjög í óhag og sýna svo ekki verður um villst að launa­munur er sann­ar­lega til staðar og að hann fari ekki minnk­andi milli ára. Við viljum útrýma þessum mun. Hann er mein sem verður að vinna á,“ segir Maríanna. 

Maríanna Trausta­dóttir

„Þetta er óásætt­an­legt.“

Öllum sé ljóst að bar­átt­unnar sé enn þörf og tími sé kom­inn til að minna á mátt kvenna­sam­stöð­unnar aftur. Hún von­ast eftir því að tug­þús­undir kvenna flykk­ist á Aust­ur­völl. „Við þurfum að minna á að við konur erum ekk­ert að þagna og sýna þann mátt sem býr í kvenna­sam­stöð­unni. Við viljum kjara­jafn­rétti strax og við hljótum að geta náð til tug­þús­unda kvenna. Þetta er mál­efni okkar allra, hvort sem er ungra, mið­aldra eða eldri kvenna. Að sjálf­sögðu hvetjum við líka alla karla til að mæta.“  

Kyn­bund­inn launa­munur hafi áhrif á kjör kvenna almennt, frá upp­hafi starfsæv­innar og fram á eldri ár. Hann sé þó aðeins einn hluti af því mikla kjara­mis­rétti sem við­gang­ist á Íslandi. Það eigi sér margar birt­ing­ar­myndir. „Við sjáum ungar, mennt­aðar konur hefja störf á sömu launum og karl­arnir en fljót­lega byrjar bilið að aukast. Það er meðal ann­ars vegna þess að þær fara frá til að eign­ast börnin. Samfélag okkar er enn þannig að ólaunuð umönn­un­ar­vinna lendir meira á konum en körlum. Konur stunda frekar hluta­störf en karlar, oft vegna þess að þær eru undir meira álagi inn á heim­il­inu. Þar með hafa þær ekki aðgang að frek­ari fram­gangi í störfum sínum. Svona gengur þetta alla starfsæv­ina og endar í líf­eyr­is­kjör­unum, sem eru alla jafna verri hjá konum en körlum. Þetta er óásætt­an­legt.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár